Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Afi Önnu varð bráðkvaddur um borð í M.S. Heklu: „Við eigum að minnast forfeðranna með virðingu“

Afi Önnu varð bráðkvaddur um borð í M.S. Heklu: „Við eigum að minnast forfeðranna með virðingu“
Anna Krist­jáns­dóttir.

„Þegar ég fædd­ist voru báðar ömmur mínar látnar sem og föð­ur­afi minn, en móð­ur­afi minn vél­stjór­inn enn lif­andi og í fullu starfi á strand­ferða­skip­inu Heklu. Reyndar var langamma mín í beinan kven­legg, (Gunn­hildur Ólafs­dóttir ekkja Bene­dikts Magn­ús­sonar á Vallá á Kjal­ar­nesi) enn á lífi (lést 1966), en um leið má segja að systir ömmu minnar Arndísar Bene­dikts­dóttur og eig­in­maður hennar, Steinunn Bene­dikts­dóttir og Jakob Margeir Bjarna­son vél­stjóri, tóku við ömmu og afa­hlut­verk­inu á meðan þeim ent­ist aldur til. Já lambið mitt.“ Þannig hefst nýjasta dag­bók­ar­færsla Önnu Krist­jáns­dóttur en þar minn­ist hún móð­urafa síns, Þor­bjarnar Pét­urs­sonar.

Anna heldur áfram:

„Móðurafi minn, Þorbjörn Pét­urs­son var fæddur 1. sept­em­ber 1892 í kot­inu Grjóta í Garða­hreppi skammt vestan við Garða­kirkju, missti föður sinn í sjó­slysi ein­ungis fimm mán­aða gam­all og eftir sat ekkjan með tvö börn og þau systk­inin alin upp á sveit­ar­fram­færi fyrstu árin. Að sögn kunn­ugra byrj­aði afi minn á skútu ein­ungis ell­efu ára gam­all og varð sjó­mennskan hans ævi­starf upp frá því. Hann var á skútum, hann var kynd­ari og síðar vél­stjóri á tog­urum, en eftir að hann tók gufu­véla­próf í Vél­skól­anum 1936 varð hann yfir­vél­stjóri á línu­skipum og tog­urum þar til hann hætti til sjós og fór á fragt­ara, nánar til­tekið á strand­ferða­skipið Heklu sem þá var ný eða mjög nýleg og var þá ýmist sem aðstoð­ar­vél­stjóri eða 4. vél­stjóri, enda ein­ungis með próf á gufu­vélar.“

Þá segir Anna að gott orð­spor hafi farið af afa sínum og segir frá kynnum sínum af yfir­vél­stjór­ann Hauk Lárusson, sem henni leyst ekk­ert alltof vel á í byrjun.

„Það fór gott orð­spor af honum afa mínum, en hann var lengi vél­stjóri á Rifsnesi RE-272(?). Þegar ég byrj­aði á Lag­ar­fossi (II) í árs­byrjun 1971, var ég ekki alveg sátt við yfir­vél­stjór­ann Hauk Lárusson í byrjun og fannst hann líta niður á okkur aðstoð­ar­fólkið í vél­inni. Samt mætti hann alla daga í hálf­ell­efu kaffið á morgn­anna í véla­mess­ann og þá kjaft­aði á honum hver tuska. Einn dag­inn byrj­aði þessi hefð­bundna yfir­heyrsla, Hverra manna ertu? Ég sagði honum það. „Ertu að segja mér það að Þorbjörn Pét­urs­son hafi verið afi þinn“? Eftir þetta slitn­aði vart slefan á milli okkar. Haukur tjáði mér að þegar hann lauk Vél­skól­anum, að því er mig minnir árið 1939, hafi hann byrjað sem 2. vél­stjóri á Rifs­nes­inu og betri leið­bein­anda í starfi en afa minn hefði hann aldrei getað fengið.“

Anna segir afa sinn vera einn sam­visku­samasta mann sem hún hafi heyrt um og kemur með dæmi:

„Afi minn var ein­hver sá sam­visku­samasti maður sem ég hefi heyrt um. Einu sinni missti hann putta í vinnu­slysi, að mig minnir vísi­fing­ur­inn, (leið­rétt) en að sögn þeirra sem til þekkja, var búið um sárið og síðan var haldið áfram að vinna. Ég veit þó ekki sann­leik­ann í mál­inu. Svo kom að efsta degi og þá gætti hann þess vand­lega að deyja á frí­vakt, þá orð­inn 72 ára gam­all og enn starf­andi sem vél­stjóri á M.s. Heklu.“

Að lokum reiknar Anna út dán­ar­dag­inn en hún er nú á sama aldri og afi hennar þegar hann dó.

„Ég fór að reikna út dán­ar­dag­inn. Hann var 72 ára, 8 mán­aða og ca 21 dags gam­all að auki er hann varð bráð­kvaddur um borð í Heklu 21. maí 1965. Í dag hefi ég lifað í 72 ár, 8 mán­uði og ca 21 dag að auki, en öfugt við hann afa minn sem var á sjó í um 61 ár, þá er ég löngu hætt að vinna og mín 55 ár á vinnu­mark­aði, þar af rúm 25 ár á sjó, munu að sjálf­sögðu aldrei vera neitt í lík­ingu við starfsævi móð­urafa míns.Við eigum að minn­ast for­feðra okkar og for­mæðra með virð­ingu. Þau gerðu okkur að því sem við erum í dag.Dagurinn í dag er um leið dán­ar­dagur föður míns sem lést 1996, 82 ára að aldri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar