Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Anna Kristjáns átti kakkalakka sem gæludýr: „Ég er enn með samviskubit yfir fjöldamorðinu“

Anna Kristjáns átti kakkalakka sem gæludýr: „Ég er enn með samviskubit yfir fjöldamorðinu“
Kakka­lakkaó­geð. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Anna Krist­jáns­dóttir átti sér kakka­lakka sem gælu­dýr um stutta stund er hún var á sjó fyrir all­mörgum árum síðan. Endaði það ævin­týri á fjöldamorði, sem bitið hefur sam­visku hennar síðan.

Í fyrra­dag sagði Mannlíf frá dag­bók­ar­færslu vél­stjór­ans Önnu Krist­jáns­dóttur sem hún birti á Facebook þar sem hún sagði frá reynslu sinni af hinum sér­lega óvin­sælu kakkalökkum. En þar með var ekki öll sagan sögð því Anna laumar á sögu af kakka­lakka sem hún fann um borð í skipi sem hún starf­aði á fyrir meira en hálfri öld síðan en hún ákvað að setja hann í krukku og gefa honum að borða. Anna skrif­aði sög­una af kakka­lakka­ræktun sinni á sinn ein­staka máta og sendi Mannlífi en hana má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Kakka­lakka­sögur.

Það er vissu­lega meira en hálf öld síðan ég var ráðin sem háseti um borð í íslenskt far­skip sem sigldi með íslenskan gæða­fisk til Ameríku og kom aftur til baka upp­fullt af kakkalökkum. 

Nafn skips­ins né útgerð skipta litlu máli, en þegar ég mætti um borð voru flestir áhafn­ar­með­limir fjarri. Ég fór með mitt haf­urtask um borð og fór svo að svip­ast um í skip­inu. Í borð­sal und­ir­manna var engin lif­andi sála að ég hélt og ég ákvað að opna skúffu í borð­salnum. Hún var svört að innan, en sek­úndum síðar sá ég eftir að kakka­lakk­arnir forð­uðu sér, að leynd­ist smjör­stykki og eitt­hvert fleira góð­gæti í skúff­unni. Skipið var ein­fald­lega mor­andi í kakkalökkum.

Næstu mán­uð­ina undum við okkur um borð í nánu sam­neyti við kakka­lakka­plág­una, en kvart­anir okkar við útgerð­ina voru huns­aðar að mestu og við héldum áfram að sigla til Ameríku og stundum til Evrópu. Við dund­uðum okkur við það á frí­vökt­unum að dæla eitri inn í göt á stokkum til þess eins að sjá kakka­lakk­ana koma hlaup­andi út úr næsta gati á stokknum þar sem þeir dóu í hrönnum, en samt var nóg til, því útgerðin fékkst ekki til að svæla út skipið.

Ég man ekki hvort ég hafi verið háseti eða dag­maður í vél á skip­inu þegar ég kom ein­hvern­tím­ann út úr klef­anum mínum á leið­inni til Ameríku og sá þennan feita kakka­lakka skríð­andi á miðju þil­inu and­spænis klef­anum mínum. Ég átti stóra gler­krukku sem hafði áður borið hinn dásam­lega drykk Flori­dana sem var til­val­inn í Screwdriver en hún var tóm. Ég skrúf­aði lokið af, skellti krukk­unni yfir kakka­lakk­ann sem datt ofan í krukk­una og skrúf­aði lokið á á nýju. Síðar bætti ég smá­sykri og smjöri ofan í krukk­una auk þess sem ég pikk­aði nokkur göt á lokið til að end­ur­nýja loftið í krukk­unni.

Það breytti ekki þeirri stað­reynd að tveimur dögum síðar var kakka­lakk­inn dauður. Krukkan fékk að vera óáreitt og vel skorðuð á borð­inu í klef­anum mínum næstu dag­ana, en svo gerð­ist eitt­hvað skrýtið. Innihald krukk­unnar fór að iða af lífi. Þarna voru komnir tugir eða hund­ruð ungra kakka­lakka sem áttu sér þá ein­ustu ósk af kom­ast út á meðal fólks til að hrella mann og annan.

Við komum til hafnar í Banda­ríkj­unum og það var mikil umferð um klef­ann minn. Sumir gestir dáð­ust að kakka­lakka­ör­tröð­inni í krukk­unni góðu um leið og aðrir fyllt­ust við­bjóði á þessum nýju gælu­dýrum mínum. Það var enda von, því kakka­lakk­arnir voru fljótir að vaxa og verða stórir. 

Við héldum frá Ameríku í átt til Íslands og það var bræla í haf­inu. Ég fór að ótt­ast um gælu­dýrin mín og þegar ég sá að böndin um krukk­una virt­ust byrja að gefa sig, ákvað ég að kveðja þau, hélt með yfir­fulla krukk­una af kakkalökkum út að borð­stokk og lét hana falla í hafið.

Ég er enn með sam­visku­bit yfir fjöldamorð­inu sem þarna var framið. Síðan er liðin meira en hálf öld.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar