Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sigurður sjómaður sakaður um að nema taílenska konu á brott: „Hún hringdi oft grátandi“

Sigurður sjómaður sakaður um að nema taílenska konu á brott: „Hún hringdi oft grátandi“
Sigurður bjó í Ólafsvík – Mynd: Funiceland.is

DV greindi frá nokkuð furðu­legu sam­bands­máli sem kom upp árið 2004.

Forsaga máls­ins er að Watsana Phosueu flutti til Íslands snemma árið 2004 með Sævari Sig­urðs­son sjó­manni eftir að þau kynnt­ust út í Taílandi. Samkvæmt Watsana var Sævar hins vegar allt annar maður eftir að hún flutt­ist með honum til Íslands. Hann hafi ítrekað haldið fram­hjá henni og drukkið mikið. Hún hafi í sept­em­ber sama ár yfir­gefið Sævar meðan hann var út á sjó og hafið sam­búð með Sigurði Krist­jáni Garð­ars­syni, sjó­manni í Ólafsvík.

Sævar var allt annað en sáttur við þetta og segir Sigurð hafa „keypt“ Watsana af nekt­ar­dans­mær sem leigði af Sævari en ekki er farið nánar í þá sálma í DV. Hann kærði málið til lög­reglu og Útlend­inga­stofn­unar og sagði að Watsana hafi tekið ýmis­legt af heim­il­inu sem hann átti, meðal ann­ars DVD-spil­ara.

Kynntust á balli

Watsana og Sigurður Kristján neita þessu öllu í sam­tali við DV.

„Okkur líður vel saman og mín hlið er ósköp hlut­laus í þessu máli,“ sagði Sigurður við DV. „Þetta var bara þannig að kunn­ingja­fólk mitt kom hérna á rétt­ar­ball í sept­em­ber og Watsana kom með þeim. Við fórum á ballið og allt í lagi með það. Svo fóru þau öll bara suður morg­un­inn eftir. Þá byrja þessar hring­ingar, hún er að hringja alltaf í mig. Þá var þetta ábyggi­lega eitt­hvað svo­leiðis að hún hefur séð leið til að losna frá skip­stjór­anum. Hún hringdi oft grát­andi og alla­veg­ana á meðan hann var úti á sjó og bað mig að koma og sækja sig,“ sagði Sigurður.

„Það var ekki gott fyrir mig að vera hjá honum. Ég er ánægð hér“ sagði Watsana um sam­band sitt við Sævar.

Eins og öllu önnur sambönd

Sigurður sagði við DV að þeim gengi erf­ið­lega að tala saman þar sem Watsana tal­aði litla íslensku og ensku en þau væru svo sann­ar­lega ást­fang­inn. Þá kveðst hann hafa heyrt um að taí­lenskar konur séu fórn­ar­lömb mansals hér­lendis.

„Þær eru ber­skjald­aðar greyin og þetta er voða­lega erfitt fyrir þær. Maður hefur heyrt þetta, en ég geri þetta ekki. Eins og hún segir kom hún hérna fyrir Sævar en varð fyrir ógur­legum von­brigðum með hann. Ég var á báðum áttum hvað ég átti að gera, en ég sótti hana suður. Þetta er eins og í öðrum sam­böndum, ef annar aðil­inn er óánægður fer hann. Ég held að Sævar hafi ekk­ert í hönd­unum til að kæra. Ég vil biðja hann um að gleyma þessu og þessum látum út af þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni