Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hinsta ferð Stuðlabergsins – Björgunarhring rak á land

Hinsta ferð Stuðlabergsins – Björgunarhring rak á land

Þegar áhöfn Stuðla­bergs NS 102 lögðu af stað til síld­ar­veiða frá Seyð­is­firði fyrir bráðum 60 árum, í febr­úar 1962, óraði þá ekki fyrir því að þetta yrði þeirra hinsta ferð enda á nýlegum og sterk­legum báti. Að kvöldi 17 febr­úar fórst þessi nýlegi síld­ar­bátur undan ströndum Suð­ur­lands. Öll áhöfnin, 11 manns, lét lífið þessa nótt.

Sjó­manna­blaðið Víkingur sagði svo frá slys­inu:

Stuðla­bergs­slysið er sjó­slys sem varð að kvöldi 17. febr­úar eða aðfara­nótt 18. febr­úar 1962. Síld­ar­bátur frá Seyð­is­firði Stuðla­berg NS 102 með 11 manna áhöfn fórst þá út af Stafnesi að talið er og rak brak úr bátnum á fjörur milli Garð­skaga og Sand­gerðis. Meðal þess sem rak á land var bjarg­hringur með nafni báts­ins sem fannst hjá Þór­odd­stöðum. Stuðla­berg var á síld­veiðum fyrir Suð­ur­landi. Síðast heyrð­ist í bátnum þar sem hann var staddur út af Selvogi á leið til Kefla­víkur til lönd­unar og voru mörg skip á þeirri sigl­inga­leið. Stuðla­berg kom hins vegar aldrei til Kefla­víkur og var talið þar að bát­ur­inn hefði haldið til Hafn­ar­fjarðar þar sem hann hafði áður landað. Vegna þessa varð báts­ins ekki saknað fyrr en 21. febr­úar er Slysa­varna­fé­lagi Íslands var gert við­vart. Eins og áður segir rak tals­vert brak úr bátnum á fjörur milli Hafna og Garð­skaga og fannst lík eins skip­verja rekið undan bænum Fuglavík. Stuðla­berg NS 102 var 152 lesta stál­bátur sem gerður var út frá Suð­ur­nesjum.

Jón Jör­unds­son og Pétur Þor­f­inssson

Mið­viku­dag­inn 21. febr­úar s. 1. var Slysa­varna­fé­lag­inu til­kynnt, að Seyð­is­fjarð­ar­báts­ins
Stuðla­bergs NS 102, hefði ekki orðið vart síðan á laug­ar­dags­kvöld, er síð­ast var haft sam­band við hann út af Selvogi. Um leið og leit var hafin kom í ljós, að brak hafði fundizt á fjör­unum milli Garð­skaga og Sand­gerðis, þar á meðal merktur bjarg­hringur, og nót hafði sézt mílu út af Stafnesi á mánu­dag. Á Stuðla­berg­inu voru 11 menn, en ekk­ert hefur til þeirra spurzt. Það var bróðir stýri­manns­ins, Björn Þor­finns­son,, skip­stjóri á Heima­skaga, sem til­kynnti Henry Hálf­dan­ar­syni, fram­kvæmda­stjóra Slysa­varna­fé­lags­ins, að aðstand­endur væru orðnir ugg­andi um bát­inn, en útgerð­ar­stjór­inn, Jón Jör­unds­son úr Keflavík, var jafn­framt skip­stjóri báts­ins og því um borð. Útgerð­ar­fé­lagið er Berg h.f. á Seyð­is­firði, og eig­endur auk skip­stjór­ans Björgvin Jónsson á Seyð­is­firði og Kristján Jör­unds­son, bróðir skip­stjór­ans, sem einnig var á Stuðla­bergi. Er áhöfnin skráð í Njarð­víkum, aðeins einn skip­verja frá Seyð­is­firði og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá útgerð­inni á Seyð­is­firði hefur bát­ur­inn lagt upp hjá Bæjarútg. Hafn­ar­fjarðar.

Þess ber að nefna að einn í áhöfn­inni, mat­sveinn­inn Birgir Guð­munds­son var frá Reykja­vík.

Hinir áhafn­ar­með­lim­irnir

BRAK REKIÐ

Margir höfðu séð brak í sjónum en skeyttu því engu því ekki hafði verið til­kynnt um að skip væri saknað. Eitt af því sem hafði rekið á land var björg­un­ar­hringur merktur Stuðla­bergi. Sjó­manna­blaðið Víkingur segir svo frá;

Stuðla­berg var á síld­veiðum fyrir Suð­ur­landi og er skip­stjór­inn hafði sam­band við Albert Bjarna­son útgerð­ar­mann í Keflavík á laug­ar­dags­kvöld, var bát­ur­inn staddur út af Selvogi á heim­leið. Það kvöld var slæmt veður á þessum slóðum. Mörg skip voru á þess­ari sigl­ing­ar­leið, bæði á undan bátnum og eftir, en eng­inn virð­ist hafa heyrt neitt til hans eftir þetta. Slysa­varna­fé­lagið sendi strax út til­kynn­ingu um að báts­ins væri saknað og bað fólk á svæð­inu frá Höfnum að Garð­skaga um að leita, svo og slysa­varna­deild­irnar á þessu svæði. Kom þá í Ijós, að þarna hafði rekið heil­mikið brak af þil­far­inu, án þess að því væri veitt athygli, þar sem ekki var saknað neins skips, þar á meðal bjarg­hringur með nafni báts­ins hjá Þór­odds­stöðum, milli Garð­skaga og Sand­gerðis. Birtu var farið að bregða er leitin hófst í fjör­unni.

LANDFÖST NÓT FANNST

Síld­ar­nót hafði sést á mánu­dags­morgun mílu undan Stafnesi. Þegar betur var að gáð virt­ist hún föst við botn­inn. Sjó­manna­blaðið Víkingur;

Þá kom í ljós, að Jök­ul­fellið hafði kl. 8,30 á mánu­dags­morgun til­kynnt að sézt hefði síld­ar­nót lið­lega mílu undan Stafnesi. Hafði landhelgisgæzlan beðið Maríu Júlíu að huga að þessu, en hún komst hvergi nærri vegna þess, hve þar var grunnt, krappur sjór og hvasst.
í gær flaug svo land­helg­is­flug­vélin Rán yfir og sá þá, að nótin var enn á svip­uðum stað, en
lítið eitt innar. — Þegar fréttam. Mbl. í gær­kvöldi hitti skip­stjór­ann á Jök­ul­fell­inu, Arnór Gíslason, að máli, sagð­ist hann gera ráð fyrir því, að nótin væri föst í botni.

STAÐURINN SEM HERMÓÐUR FÓRST

Vita­skipið Hermóður

Stuðla­bergið reynd­ist hafa sokkið á sama stað og skipið Herj­ólfur hafði gert, nokkrum árum áður. Í því sjó­slysi lést einnig öll áhöfnin, 12 manns. Sjó­mann­blaðið Víkingur;

Þegar blaðið hafði fengið fregnir af því, að föst nót hefði sézt lið­lega mílu út af Stafnesi,
rak okkur minni til að þetta væri á sama stað og Hermóður fórst. Við hringdum því í Lárus
Þor­steins­son, skip­herra, en það var hann, sem fann brakið, sem talið var vera af Hermóði.
Lárus stað­festi,. að þetta væri sami staður og aðspurður um, hvernig þarna hátt­aði, sagði hann: „Þetta er á venju­legri sigl­inga­leið, þegar gott er í sjó, en í verra veðri fara menn yfir­leitt dýpra. Þar sem fer að grynnka verður ákaf­lega kröpp alda,, en strax betra 3 mílum utar. Mér hefur fundizt að svona 1,7 ,mílur út væri sjó­lagið verst“.

Stuðla­berg NS 102 var stál­bátur, 152 lestir að stærð, byggður í Noregi árið 1960 og hefur s. 1. ár verið gerður út frá Suð­ur­nesjum.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist áður á vef Mannlífs þann 4. febr­úar 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni