Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Birta myndbönd af dularfullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög vanmáttug gagnvart árás úr geimnum“

Birta myndbönd af dularfullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög vanmáttug gagnvart árás úr geimnum“

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir niður kump­án­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríð­ar­legri aukn­ingu meintra til­fella fljúg­andi furðu­hluta.  

Síðan í lok nóv­em­ber á síð­asta ári hefur til­fellum fjölgað alveg gríð­ar­lega þar sem venju­legt fólk seg­ist verða vitni af fljúg­andi furðu­hlutum eða UFO. Ferlið sem virt­ist hefj­ast með dul­ar­fullum hnetti sem virt­ist bara svífa um á flug­vell­inum í Manchester varð svo að dul­ar­fullri atburð­ar­rás í New Jersey í BNA sem ekki er útséð hvernig muni enda. Kvöld eftir kvöld hefur him­in­inn verið fullur af því sem virt­ust í fyrstu líkj­ast risa­vöxnum drónum en svo smátt og smátt eru flygildin farin að taka á sig aðra mynd. Myndefni af dul­ar­fullum hnöttum (e. orbs) eru farin að streyma um á bæði frétta og sam­fé­lags­miðlum og virð­ist sem nýr veru­leiki sé að eiga sér stað. Eitthvað sem þótti tabú eða aðeins eitt­hvað sem kæmi frá vilt­ustu álhöttum er nú farið að streyma frá afar venju­legu fólki sem verða fyrir því að sjá fljúg­andi furðu­hluti sem þau botna ekk­ert í. 

Þessi flygildi kom­ast upp með að sveima tímunum saman yfir vernd­aðri loft­helgi vatns­bóla, kjarn­orku­vera, vopna­geymsla og her­stöðva án þess að stjórn­völd svo mikið sem lyfti fingri. Yfirvöld halda frétta­manna­fundi þar sem almenn­ing er sagt að engin hætta stafi af þessum flý­gildum en samt segj­ast þeir ekki hafa neina ein­ustu hug­mynd um hvaðan þau eru að koma, hvert þau eru að fara eða hvað þau eru að gera; eitt­hvað sem Gunnari og Arnóri finnst væg­ast sagt mjög dul­ar­fullt. 

Ekki nóg með það að þessar sýnir virð­ast vera að dreifa sér um öll Banda­ríkin, heldur eru fréttir að ber­ast víðs­vegar úr heim­inum, meðal ann­ars frá Íslandi. Strák­arnir töl­uðu um og sýndu myndir og mynd­bönd sem tekin voru á Aust­fjörðum í nóv­em­ber og des­em­ber sem sýna rauðar og bláar blikk­andi stjörnur sem halda stöðu sinni í langan tíma áður en þær svo allt í einu hverfa. Einnig má sjá mynd­band frá Íslandi í þætt­inum sem sýnir stjörnu sem lík­ist gervi­hnetti, nema hvað að bæði hraða- og stefnu­breyt­ingar eiga sér stað á mjög svo dul­ar­fullan hátt. 

Í sam­hengi við þessa sveiflu sem Gunnar vill meina að sé ein­hvers­konar vit­und­ar­for­ritun af hálfu djúp­ríkis, ræða þeir um þá atburð­ar­rás sem hófst árið 2017 þegar þremur mynd­böndum frá banda­ríska hernum var lekið í New York Post. Pentagon stað­festi svo tveim árum seinna að um þeirra efni væri að ræða og þeir við­ur­kenndu fús­lega að flygildin sem kæmu þarna fram væru ekki bara af óþekktum upp­runa heldur líka virt­ust sýna flug­hæfni sem engin mann­legur máttur væri fær um að útfæra. Síðan sum­arið 2023 hafa svo verið haldnar þrjár eið­svarnar vitna­leiðslur á vegum banda­ríska þings­ins þar sem upp­ljóstr­arar, sem allir hafa starfað á vegum banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar og hers­ins, hafa komið fram undir nafni og talað opin­skátt um mál sem lík­ist ein­hverju sem fengið er úr vís­inda­skáld­sögu. 

Gunnar telur að ákveðin end­ur­for­rit­unin sé hafin sem snúi að lokatrompi hinnar fámennu elítu sem starfi í skugg­anum og ætli sér algjört heims­yf­ir­ráð með sviðs­setn­ingu inn­rásar utan úr geimnum. Hann vill meina að þetta ferli sé búið að vera í undi­bún­ing í ára­tugi og nú þegar mað­ur­inn standi á barmi kjarn­orku­styrj­aldar sé tíma­setn­ingin ákjós­an­leg fyrir djúp­ríkið að láta til skara skríða. Gunnar segir: „Hann [Dr. Steven Greer] segir að til­gang­ur­inn með þessu öllu sé að skapa aðstæður þar sem einn sam­eig­in­legur óvinur allra jarð­ar­búa verður búinn til. Þar sem einn dag­inn, þegar búið er að segja okkur réttu sög­urnar og það er búið að sýna okkur réttu hlut­ina, það er búið að veita okkur „shock effect“, þá verður árás. Þá verður ein­hver kata­st­rófísk 9/11 í okkar helgu vest­rænu ríkjum í ein­hverju formi, þar sem hrædd verður bók­staf­lega úr okkur líf­tóran. Og við erum auð­vitað sjúk­lega van­máttug gagn­vart árás úr geimnum.“

Gunnar og Arnór töl­uðu tals­vert um skila­boð Dr. Steven Greer sem er mennt­aður bráða­læknir en hefur helgað sig þessum mála­flokki í rúma þrjá ára­tugi. Dr. Steven Greer vill meina að ákveðnir ein­stak­lingar innan þessa djúp­ríkis hafi fengið sig full sadda á þessu leyni­makki og muni koma fram undir nafni í kringum miðjan jan­úar með allar þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir í von um að þessi vægð­ar­lausa sviðs­setn­ing nái ekki fram að keyra. Ef spár hans reyn­ast réttar eru líkur á því að fram komi upp­lýs­ingar um tækni sem gerir okkur kleift að draga raf­magn úr and­rúms­loft­inu og þannig hafa ótak­mark­aðan aðgang að óþrjót­andi- og ókeypis orku­lind; eitt­hvað sem orku­fyr­ir­tæki og ríkj­andi vald­hafar eru sjálf­sagt mjög ugg­andi yfir. 

Niðu­staða Gunnars og Arnórs í við­tal­inu var að leyfa viku eða tíu dögum að líða og taka svo upp þráð­inn aftur í öðrum þætti og sjá hvort stað­hæf­ingar Greer hafi raun­gerst auk þess að mál tengd Roswell atvik­inu, Pheonix lights og að sjálf­sögðu atburð­ar­rás Roberts Lazar verði tekin fyrir fyrir, en saga Robert Lazar er að Gunnars mati eitt það áhuga­verð­asta sem komið hefur fram frá upp­hafi í heimi fljúg­andi furðu­hluta. 

Einnig er hægt að hlusta á þátt­inn á öllum helstu streym­isveitum á borð við Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar