Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Vill að RÚV geri samning við Vesturport um árlegar þáttaraðir:„Allt small hér sem best mátti verða“

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands
Vigdís Finn­boga­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti Íslands

„Mikið megum við vera þakk­lát fyrir þá stór­kost­lega vel heppn­uðu þætti um líf elsku Vigdísar okkar allra, sem haldið hafa okkur hug­föngnum und­an­farin sunnu­dags­kvöld.“ Þannig hefst lof­ræða Jakobs Frímanns Magn­ús­sonar um þætt­ina um Vigdísi Finn­boga­dóttur, sem slegið hafa í gegn að und­an­förnu.

Jakob stingur upp á því að RÚV geri sér­stakan samn­ing við Vest­ur­port, sem gerði þætt­ina um Vigdísi, um árlegar þátt­araðir af svip­uðu meiði.

„Enn ein fjöður í hatt Vest­ur­ports­fólks­ins sem RUV mætti nú gjarnan ganga til samn­inga við um árlegar þátt­araðir af svip­uðum toga – sam­tíma­sögur sem snerta okkur, mennta og skemmta í senn. Hér er verið að svara vax­andi eft­ir­spurn áhorf­enda eftir upp­lif­unum sem á ensku eru nefndar EDUTAINMENT – og á íslensku mætti nefna SKEMMTIMENNT.“

Stuð­mað­ur­inn á Alþingi telur síðan upp hvað honum fannst svona gott við þætt­ina en það er bók­staf­lega allt:

„Allt small hér sem best mátti verða:

Stór­leikur Nínu Daggar og Elínar Hall, Eggerts Þor­leifs­sonar, Hönnu Maríu og allra hinna, frá­bær hand­rits­gerð og leik­stjórn, kvik­mynda­taka, speglun tíð­ar­anda í leik­mynd, bún­ingum og öðru.“

Að lokum þakkar hann frá­far­andi dag­skrár­stjóra RÚV fyrir þætt­ina:

„Hafi þetta verk­efni markað loka­punkt á far­sælum ferli Skarp­héð­ins Guð­munds­sonar frá­far­andi dag­skrár­stjóra RUV, þá hlýtur þetta að vera afar gef­andi hápunktur að kveðja með. Hjart­an­lega til ham­ingju aðstand­endur allir, RUV, Stefán Eiríks­son og Skarp­héð­inn Guð­munds­son! Takk fyrir okkur og meira svona!!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur
Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­ver­andi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Heimur

Sátu uppi með ónýta lúx­us­ferða­tösku

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027