Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Voðaskot á Seyðisfirði: „Ég tel mig mikinn gæfumann, að ekki skyldi fara verr“

Voðaskot á Seyðisfirði: „Ég tel mig mikinn gæfumann, að ekki skyldi fara verr“
Seyði­fjörður. Mynd: east.is

Hinn átján ára Þor­steinn Bald­vins­son átti nokkuð góðan veiði­dag föstu­dag­inn 17. októ­ber árið 1975 en hann náði að fella sex rjúpur. Dagurinn átti þó eftir að breyt­ast í hálf­gerða martröð.

Seyð­firð­ing­ur­inn Þor­steinn keyrði eftir vel heppn­aða veiði­ferð að frysti­hús­inu í bænum og spjall­aði þar við félaga sína sem voru að landa. Eftir lönd­un­ina fór vinur hans, Gunnar upp í bíl­inn til Þorseins en þegar annan pilt bar að sem bað um far, var veiði­riff­ill Þorseins fyrir í sæt­inu. Gunnar greip þá byss­una og fyrir klaufa­skap tók hann óvart í gikk­inn. Gerði hann ekki fyrst grein fyrir því hvað hefði gerst en hvellur heyrð­ist vel í bílnum. Hélt hann fyrst að skot hefði farið úr hlaup­inu og í gegnum hurð í bílnum. Svo reynd­ist því miður ekki því Gunnar horfði á vin sinn, Þorstein, spenn­ast allan upp í bíl­stjóra­sæt­inu. Svo sá hann gat á peysu hans. Hann hafði óvart skotið vin sinn í gegnum fram­sætið og í bak hans. Kallað var eftir lækni und­ir­eins og hann fluttur á sjúkra­hús. Eftir stutta stund þar var farið með hann flug­leiðis til Reykja­víkur. Þar tókst að bjarga lífi hans.

Hér má sjá frétt Dag­blaðs­ins um voða­skotið:

VARÐ FYRIR VOÐASKOTI

18 ára piltur slasast á Seyð­is­firði, úr hœttu

Átján ára gam­all piltur varð fyrir voða­skoti úr hagla­byssu i gær austur á Seyð­is­firði. Var pilt­ur­inn fluttur á sjúkra­húsið á Seyð­is­firði og síðan með flug­vél til Reykja­víkur. Að sögn Hauks Árna­sonar, læknis á Slysa­varð­stofu Borg­ar­sjúkra­húss­ins, var hinn slas­aði ekki í lífs­hættu en rann­sókn var ekki alveg lokið er DAGBLAÐIÐ spurð­ist fyrir um líðan hans. Pilt­ur­inn, Þor­steinn Bald­vins­son, var að koma af rjúpna­veiðum. Hafði hann ein­hleypta hagla­byssu liggj­andi i aft­ur­sæti bif­reiðar sinnar. Ók hann að frysti­húsi Norð­ursildar, þar sem tveir kunn­ingjar hans komu upp í bif­reið­ina. Annar þeirra hand­lék byss­una og hljóp þá skot úr henni og í gegnum bakið á sæti öku­manns og í bak Þor­steins. Varð nær­statt fólk strax vart við skot­hvell­inn og voru læknir og lög­regla látin vita þegar í stað. Kom sjúkra­bíll­inn að vörmu spori og lækn­ir­inn, Magni Jónsson, einnig. Var farið með hinn slas­aða á sjúkra­húsið. Gerði lækn­ir­inn að sárum hans til bráða­birgða og kann­aði þau. Síðan var farið með Þorstein og Magna lækni upp á Egils­staði, þar sem Flug­leiða­flug­vél í áætl­un­ar­flugi beið þeirra til­búin að fara í loftið. Hafði verið til­kynnt um komu þeirra og beið flug­vélin eftir þeim og fór lækn­ir­inn með Þor­steini til Reykja­víkur. ,,Það er ekki ennþá lokið við að röntgen­mynda sjúk­ling­inn,” sagði Haukur Árnason læknir, ,,en eftir því sem bezt verður séð er ástæða til að ætla að hann sé ekki i lífs­hættu.” Þetta er fyrsta slysið, sem verður eftir að rjúpna­veiði­tím­inn hófst í ár, og von­andi um leið það síð­asta.Vonandi verður það til alvar­legrar áminn­ingar um að menn gæti ýtr­ustu var­kárni í með­ferð skot­vopna. ,,Ekki er hægt að sjá annað en þetta hafi verið óvilja­verk,” sagði Erlendur Björns­son, bæj­ar­fó­geti á Seyð­is­firði við frétta­mann DAGBLAÐSINS.

Daginn eftir birti Dag­blaðið við­tal við þann sem skaut Þorstein, fyrir slysni í bakið. Sagðist hann telja sig vera hepp­inn mann að ekki hafi farið verr og að hann hefði verið nið­ur­brot­inn eftir slysið.

Hér má lesa við­talið:

Óvar­kárni í með­ferð skot­vopns:

TEL MIG MIKINN GÆFUMANN AÐ EKKI FÓR VERR

segir pilt­ur­inn, sem varð þess vald­andi að skot hljóp úr byssu og sœrði eig­anda byssunnar

„Ég hélt fyrst að skotið hefði farið út í hlið­ina á bílnum, en svo sá ég að Þor­steinn stirðn­aði upp. Þá leit ég í fram­sætið og sá gatið á peys­unni hans. Ég hljóp út úr bílnum og opn­aði hurð­ina hjá honum.” Þetta er hluti af frá­sögn Gunnars Guð­laugs­sonar á Seyð­is­firði. Hann var svo óláns­samur með ógæti­legri með­ferð hagla­byssu að valda því, að vinur hans, Þor­steinn Bald­vins­son, varð fyrir slysa­skoti. Þennan föstu­dags­eft­ir­mið­dag var Gunnar ásamt öðrum manni staddur niðri á bryggju við fisk­verk­un­ar­hús Norð­ursildar. Þeir voru nýlega konnir úr róðri á Farsæli SF 65, sem er 12 tonna bátur, sem hefur róið með linu und­an­farið. Að þessu sinni höfðu þeir fengið tæp­lega 2 tonn af fiski. Mest var það þorskur, nokkuð af ýsu og stein­bít, en ein lúða. Þarna var Gunnar við annan mann að landa afl­anum, þegar Þorstein Bald­vins­son bar þar að á bif­reið sinni, sem er af gerð­inni „Fiat—125”. Í bílnum með Þor­steini var maður í fram­sæti. Komu þeir báðir út úr bilnum. „Við hættum að landa og tókum tal saman, enda var Þor­steinn land­maður á Farsæli”, sagði Gunnar Guð­laugs­son, „Og mað­ur­inn, sem með honum var, kunn­ingi okkar líka. Þeir fóru síðan inn í bíl­inn en við kláruðum að landa úr bátnum. Þá fór ég inn í bíl­inn líka. Þar lá þá hagla­byssan ásamt skot­pakka og skot­belti. Steini var að koma af skytt­eríi utan af Vestdal með 6 rjúpur, sem hann hafði fengið. Þegar við vorum að leggja af stað, stöðv­aði okkur maður á plan­inu og bað um að fá akstur heim. Ég hélt þá á byss­unni og lá skeftið i kjöltu minni en hlaupið í sæt­inu. Ég spurði um leið og ég færði hlaupið fram, svo að mað­ur­inn gæti setzt: „Er skot í byss­unni?” Þor­steinn svar­aði því neit­andi, en bætti við: „ann­ars er öryggið á.” Ég ætl­aði að opna byss­una, en hefi komið við gikk­inn í stað­inn fyrir lás­inn — og skotið hljóp úr byss­unni. Ég gerði mér litla grein fyrir því, hvað gerð­ist þarna næst. Byssan sló ekki mikið, að mig minnir, en í henni var skot með höglum nr. 4, „Seller-Bellon”. Ég hélt fyrst að skotið hefði farið út um hlið­ina á bílnum en ekki bakið á fram­sæt­inu. Svo sá ég að Þor­steinn stifn­aði upp í sæt­inu, og ég sá gatið á peys­unni hans.” Gunnar kvað Þorstein hafa talað við sig. Hefði hann ekki misst með­vit­und þarna niður frá. „Það var Sigurður Júl­í­us­son, sem hljóp og hringdi í lækni. Var farið með Steina upp á spít­ala og síðan suður til Reykja­víkur. Ég var nið­ur­brot­inn maður eftir þetta, og ég tel mig mik­inn gæfu­mann, að ekki skyldi fara verr. Ég og við félagar Steina hér heima biðjum fyrir kveðjur til hans. Við óskum þess eins, að honum batni til fulls og það sem allra fyrst, svo að hann geti komið hingað austur heim til sin”, sagði Gunnar Guð­laugs­son að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni