Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður
Sauð­ár­krókur.

Hópur afbrotaung­linga var hand­samaður á Sauð­ár­króki í des­em­ber árið 1980 en höfðu þeir þá stolið úr versl­unum í bænum fyrir hátt á fjórðu milljón króna.

Í ein­hvern tíma á seinni­hluta árs­ins 1980, hafði stór hópur afbrotaung­linga á Sauð­ár­króki gert það sem „starfs­heiti“ þeirra ber með sér, framið afbrot víðs­vegar um bæinn. Ekki höfðu þeir ein­ungis brot­ist inn í versl­anir í hinum fagra bæ, á nótt­unni, heldur stálu þeir einnig vörum úr búðum á dag­inn. Þá lögð­ust þeir svo lágt eina nótt­ina eftir að jóla­skraut hafði verið hengt upp af bænum í aðal versl­un­ar­götu Sauð­ár­króks, að stela öllum jóla­ljósum nótt­ina á eftir.

Lög­reglan hafði að lokum hendur í hári þriggja ung­linga en talið var að hóp­ur­inn væri mun stærri, eða um 15 manns. Tekið var sér­stak­lega fram í frétt Dag­blaðs­ins um málið, að tveir þeirra sem napp­aðir voru, hafi verið einn verið heima­maður og tveir aðkomu­menn frá Blöndu­ósi og Skaga­strönd.

Hér má lesa frétt Dag­blaðs­ins frá 18. des­em­ber 1980:

Hópur afbrotaung­linga gómaður á Sauð­ár­króki:

Stöðug inn­brot, þjófna­öir og skemmd­ar­verk

fundið þýfi skiptir millj­ónum króna. Bæði aðkomu­ung­lingar og heima­menn í hópnum

Lög­reglan á Sauð­ár­króki kom upp um afbrota­hring ung­linga i bænum í síð­ustu viku. Hópur þessi hefur þrá­fald­lega brotizt inn í verzlanir að næt­ur­lagi, stolið úr búðum á dag­inn og unnið skemmd­ar­verk í bænum. Að sögn Guð­mundar Páls­sonar lög­reglu­þjóns á Sauð­ár­króki í morgun, hefur fundizt þýfi fyrir á fjórðu milljón. Þar af hefur fundizt þýfi úr Radíó- og sjón­varps­þjón­ust­unni fyrir u.þ.b. 2,7 millj­ónir króna. Aðallega hafa staðið fyrir inn­brot­unum þrír aðkomu­ung­lingar, sem búið hafa sér í íbúð með nokkrum öðrum. Hópurinn er þó mun stærri og taldi Guð­mundur að alls hefðu um 15 ung­lingar staðið að þjófn­uð­unum og skemmd­ar­verk­unum, bæði aðkomu­ung­lingar og heima­menn. „Það er óhætt að segja að það hafi verið mikið að gera í alls konar þjófn­uðum og inn­brotum hér að und­an­förnu,” sagði Guð­mundur. Talið er að þrír þeir iðn­ustu hafi brotizt í allt 12 sinnum inn í Radíó og sjón­varps­þjón­ust­una. Þá brut­ust þeir einnig inn í verzlunina Rafsjá. Ung­linga­hóp­ur­inn lét einnig greipar sópa í verzlunum kaup­fé­lags­ins að degi til, verzluninni Tinda­stóli, byggingarvöruverzlun og hót­el­inu. Þýfið er hið fjöl­breyti­leg­asta, verk­færi, hljóm­flutn­ings­tæki, hljóm­plötur, kjöt og harð­fiskur svo nokkuð sé nefnt. Aðal verzlunargatan á Sauð­ár­króki var lokuð umferð á laug­ar­dag og umhverfi skreytt með jóla­ljósum og jólatrjám. Ung­ling­arnir tóku sig hins vegar til aðfara­nótt sunnu­dags og stálu öllum jóla­ljós­unum og nokkrum jólatrjám. Ung­ling­unum var sleppt að lok­inni yfir­heyrslu. Aðkomu­pilt­arnir eru frá Blöndu­ósi og Skaga­strönd, en ekki liggur fyrir hvenær þjófn­að­irnir hófust. Vegna mik­illa anna lög­regl­unnar að und­an­förnu liggur lög­reglu­skýrsla ekki fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni