Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Þann 31. jan­úar 1951 lagði Dagota flug­vél Flug­fé­lags Íslands að nafni Glitfaxi af stað í áætl­un­ar­flug frá Vest­manna­eyjum til Reykja­víkur. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján far­þegar. Veðrið var vafa­samt en hríða­bylur var úti og ekki hafði verið flogið til eða frá Eyjum í þrjá daga vegna veð­urs­ins. Rétt fyrir fimm var Glitfaxi staddur yfir stefnu­vita Reykja­vík­ur­flug­vallar á Álfta­nesi en flug­stjór­anum, Ólafi Jóhanns­syni var gefin heim­ild til að lækka flug og stefna í átt að flug­braut­inn í snjón­flugi. Flaug flug­stjór­inn vél­inni niður en þá var flug­brautin hvergi sjá­an­leg. Stýrði Ólafur því vél­inni aftur upp að ráði flug­turns­ins og flaug út á Faxaflóa. Var honum þá til­kynnt af flug­turn­inum að nú væri veðrið orðið skárra og honum ráð­lagt að reyna annað aðflug. Lækkaði Ólafur því flugið og setti flug­vél­ina í stefnu en skyndi­lega rofn­aði allt sam­band við vél­ina. Glitfaxi var horf­inn í sæinn.

Um er að ræða eitt dul­ar­fyllsta flug­slys Íslands­sög­unnar en flak flug­vél­ar­innar hefur aldrei fund­ist.

Tíminn fjall­aði um flug­slysið á sínum tíma:

Glitfaxi hefir farizt milli Álfta­ness og Keil­is­ness

Olíubrák á sjónum út af Hrauns­nesi, björg­un­ar­belti á floti nokkru utar, tveir flekar úr hreyfli flug­vél­ar­innar út af Keil­is­nesi

Það má nú telja víst, að flug­vélin Glitfaxi hafi farið í sjó­inn ein­hvers staðar á svæð­inu milli Álfta­ness og Keil­is­ness, og allir, sem í henni voru farizt þar. Fannst á þessum slóðum brak úr gólfi flug­vélar og eitt björg­un­ar­belti, og brák á sjónum út af Hrauns­nesi. Virðist allt benda til þess, að slysið hafi borið mjög skjótt að og fólkið drukknað þegar í stað.

Reköld finn­ast

Jóhannes flug­stjóri Snorra­son kom fyrstur manna auga á brakið um þrjúleytið í gær, og til­kynnti þegar, að hann sæi á tveim stöðum eitt­hvað í sjónum, sem gæti verið fleki úr flug­vél­ar­gólfi. Risi það á rönd upp úr sjónum, og sæi í nýlegt brotsár. Voru flök þessi út af Keil­is­nesi i stefnu frá Akra­fjalli á Keflavík. Sendi Jóhannes svohljóð­andi skeyti: „Hef fundið brak á sjónum. Það lík­ist kross­við­ar­fleka, brotið á hliðum og upp úr því stendur eitt­hvað. Gæti verið hluti af gólfi úr flug­vél.“ Varð­skipið Ægir var þá statt í sex mílna fjar­lægð, og kom það nú á vett­vang. Kastaði björg­un­ar­flug­vél frá Kefla­vík­ur­flug­velli út fljót­andi blysi til þess að merkja stað­inn, þar sem flökin voru. Fann Ægir brátt reköldin og auk þess eitt björg­un­ar­belti. Kom hann með þetta til Reykja­víkur í gær­kvöldi.



Brakið tví­mæla­laust úr Glitfaxa

Þegar er Ægír var kom­inn að landi, var brakið, sem fundizt hafði, tekið til rann­sóknar og varð nið­ur­staðan sú, að brakið væri tví­mæla­laust úr Glitfaxa. Var um að ræða tvo gólf­fleka, um tveggja metra langa eða rösk­lega það, og var annar mun mjórri en hinn. Er talið, að annar hafi verið hægra megin úr gólfi flug­vél­ar­innar, en hinn vinstra megin. Stærri flek­inn var flagn­aður og brot­inn í annan end­ann og skein þar í hvítan bals­a­við. Við fleka þennan voru einnig brot af stóla­fest­ingum, og hluti af áklæði af einum stólnum. Björg­un­ar­beltið, sem fannst, var með órofnu inn­sigli, og hafði því sýni­lega ekki verið notað. Hluti þessa alla töldu flug­virkjar og flug­menn sig þekkja, að væru úr Glitfaxa, enda voru brotsár á viði og málmi alveg ný, og ekki um brak úr annarri flug­vél að gera á þessum slóðum. Umfangs­mikil leit. Þegar brakið úr flug­vél­inni hafði fundizt, og sýnt þótti, að það væri úr Glitfaxa, voru leit­ar­flokkar allir á landi kvaddir heim, og skip og flug­vélar beðin að hætta leit. — Höfðu tólf flug­vélar tekið þátt í Ieitinni, en auk þess mörg skip og bátar og fjöldi fóiks á landi allt umhverfis Faxaflóa. Var leitað allt frá sjáv­ar­máli upp til fjalla.

Fólkið, sem fórst

Eins og skýrt var frá í gær voru margir Vest­manna­ey­ingar meðal beirra, sem fór­ust með Glitfaxa. Páll Jónsson skip­stjóri var að koma hingað til þess að taka við bátnum Faxaborg, og var í för með honum sumt af mönn­unum, sem átti að vera á bátnum. — Kona sú, sem í blað­inu í gær var sam­kvæmt far­þega­list­anum sögð heita Marta Hjart­ar­dóttir, hét María Hjart­ar­son, og barn hennar var korn­ungt svein­barn, aðeins fimm mán­aða. Bræð­urnir Magnús Guð­munds­son úr Reykja­vík (rang­lega sagður úr Keflavík í gær) og Guðmann Guð­munds­son í Keflavík voru að koma frá arfa­skiptum, sem farið höfðu fram eftir lát­inn bróður þeirra í Eyjum. Loks skal það leið­rétt, að Guð­mundur bóndi í Arn­ar­holti var rang­lega nefndur Guð­björns­son i gær. Hann var Guð­bjarna­son. Flug­stjóri á Glitfaxa, Ólafur Jóhanns­son, var sonur Jóhanns Þ. Jós­efs­sonar alþing­is­manns.

Minnist afa síns

Sigfús Gutt­orms­son frá Krossi í Fella­sveit á Aust­ur­landi skrif­aði fal­lega færslu á Facebook á dög­unum. Í færsl­unni segir hann sögu afa síns og alnafna, Sigfús Gutt­orms­son á Krossi en hann fórst með Glitfaxa þennan afdríf­a­ríka dag fyrir 72 árum. Gaf hann Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta færsl­una

„Í jan­úar 1951 fór afi á Krossi, Sigfús Gutt­orms­son, til Vest­manna­eyja. Hann hafði kennt sér meins og fór að hitta Einar bróður sinn sem var lengi læknir í eyjum til að ráð­færa sig við hann. Reyndar bjó Guð­laugur bróðir þeirra líka í Vest­manna­eyjum

Mið­viku­dag­inn 31. jan­úar vildi afa fara með flugi frá eyjum til Reykja­víkur. Hann vildi fara að koma sér áleiðis heim þar sem amma, Sólrún Eiríks­dóttir, var ein heima á Krossi með sjö af börnum þeirra. Oddur, Guðný Sólveig, Gutt­ormur, Sveinn Eiríkur, Baldur, Jón og Oddbjörg voru heima. Páll elsti son­ur­inn var þennan vetur í skóla á Eiðum. Þórey ólst upp á Reyð­ar­firði. Níu börn afa og ömmu komust til full­orð­ins­ára.

Hjónin á Krossi

Veður var ekki sem best og það mok­aði niður snjó í logni í Vest­manna­eyjum. Að afi skyldi endi­lega vilja fara með flugi þennan dag í þessu veðri lagð­ist illa í Margréti konu Einars bróður afa. Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hug­hvarf og bað hann að um að fresta för sinni til morg­uns. Afi hélt sínu striki með þá ætlun sína að kom­ast sem fyrst heim til fjöl­skyldu sinnar sem beið hans.

Seinni part­inn tók flug­vélin Glitfaxi á loft frá flug­vell­inum í Vest­manna­eyjum. Áfanga­staður var Reykja­vík­ur­flug­völlur. Flug­vélin kom til aðflugs en varð frá að hverfa vegna þess að dimmt él gekk yfir borg­ina. Flug­menn­irnir fengu skila­boð frá flug­turni um að fljúga hring og bíða þess að birti til. Í þessu flugi lenti Glitfaxi í haf­inu og fórst. Önnur flug­vél fór, á svip­uðum tíma þetta síð­degi, sömu flug­leið frá eyjum og til Reykja­víkur. Hún lenti heilu og höldnu í Reykja­vík.

Margar spurn­ingar og kenn­ingar vökn­uðu í kjöl­farið á slys­inu og hafa lifað með fjöl­skyldum allra þeirra sem fór­ust. Svör hafa ekki legið á lausu. Mörgum sem tengj­ast harm­leiknum hefur fund­ist að hægt væri að varpa ljósi á eitt og annað. Opin­ber­lega er stað­setn­ing flaks Glitfaxa óþekkt. Með Glitfaxa fór­ust 20 manns.

Frá­sögnin hér að ofan kemur til mín frá pabba, systk­inum hans, tveimur börnum Einars læknis og fleirum. Þetta er okkar saga. Fjöl­skyldur allra hinna sem fór­ust eiga sér sínar sögur.

Í dag eru 72 ár liðin frá því að afi fórst. Í kvöld logar á kerti á ferða­koff­orti afa hér í stof­unni.Hvíl í friði!“

Glænýjar upplýsingar koma fram

Þegar Mannlíf rifj­aði upp hið dul­ar­fulla flug­slys árið 2023, komu fram nýjar upp­lýs­ingar sem köst­uðu ljósi á málið sem ekki hafði birst áður. Hér má sjá hlekki á þær fréttir sem Mannlíf gerði í kjöl­farið af Bak­sýn­is­spegl­inum.

Sjá einnig: Nýjar og slá­andi upp­lýs­ingar um Glitfaxa-slysið: „Ætla að lenda í Reykja­vík“

Sjá einnig:

Graf­ar­helgi yfir flaki Glitfaxa rennur út 2026 – Hið opin­bera leitar ekki að gömlum flökum

Sjá einnig:

Arnar Þór fékk ábend­ingu um flak Glitfaxa: „Ég tók Side Scan sónar með og kort­lagði svæðið alveg“

Sjá einnig:

Glit­faxaslysið – Kenn­ingin um elds­neyt­is­skort röng

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 3. febr­úar 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni