Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nýjar og sláandi upplýsingar um Glitfaxa-slysið: „Ætla að lenda í Reykjavík“

Nýjar og sláandi upplýsingar um Glitfaxa-slysið: „Ætla að lenda í Reykjavík“

Nikulás Sveins­son var staddur í flug­turni Kefla­vík­ur­flug­vallar er Dakota flug­vélin Glitfaxi fórst 31. jan­úar árið 1951. Hann man orð­rétt hvað fór fram milli flug­um­ferða­stjórnar og flug­stjóra vél­ar­innar.

Mannlíf fjall­aði um í bak­sýn­is­spegli sínum á föstu­dag­inn, eitt dul­ar­fyllsta og sorg­leg­asta flug­slys Íslands­s­sög­unnar, Glit­faxaslysið 1951. Flug­vélin var að koma frá Vest­manna­eyjum með 17 far­þegar og þrjá áhafn­ar­með­limi inn­an­borðs en veðrið var slæmt. Þegar Glitfaxi reyndi í annarri til­raun að lenda á Reykja­vík­ur­flug­velli hvarf hann af rat­sjá og hefur ekki fund­ist síðan. Brot úr vél­inni fannst þó á sínum tíma en talið er að hún hafi farist undan Álfta­nesi.

Sjá einnig: Glitfaxi – flug­vélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hug­hvarf“

Í kjöl­far bak­sýn­is­speg­ils­ins hafði sonur Niku­lásar Sveins­sonar sam­band við Mannlíf og kom á sam­skiptum á milli mið­ils­ins og föður hans. Upp­lýs­ing­arnar sem Nikulás kemur hér með hafa aldrei heyrst áður opin­ber­lega, svo vitað sé.

„Ég er búinn að lúra á þessu alla tíð frá því að þetta skeði, þetta hefur legið á mér eins og mara“ sagði Nikulás Sveins­son, 94 ára í sam­tali við Mannlíf en hann vann við raf­ör­ygg­is­mál á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Ég hef ekki viljað hafa hátt um þetta vegna aðstand­enda og ég var bund­inn þagn­areið á þessum vinnu­stað mínum,“ sagði Nikulás en hann var staddur í flug­turn­inum í Keflavík en hann var að end­ur­nýja raf­lagnir í turn­inum þennan örlaga­ríka dag árið 1951.

„Ég man orða­skipti aðflugs­stjórnar, flug­um­ferða­stjóra og flug­manns vél­ar­innar alveg orð­rétt. Þetta situr svo í mér, þetta er búið að pirra mig alla mína tíð,“ sagði Nikulás og bætti við að hann hefði lengi spáð í að segja frá þessu en ekki viljað það því þá myndu kannski ein­hverjir vilja „pumpa upp úr“ honum frek­ari upp­lýs­ingar sem hann hefði ekki.

Orðaskiptin

„Það var þannig að það var vél að koma frá Banda­ríkj­unum, Dakota-vél en hún kom inn á radar eða það sem kallað var GCA sem stendur fyrir Ground Control Approach. Þegar hún var lent segir ungur maður í rad­ar­tæk­inu frá aðflugs­stjórn­inni í Reykja­vík: „Heyrðu, ég sé hérna flug­vél suð-austan við völl­inn, er hún ekki næst að koma inn á rad­arnum, því það er alveg ólend­andi í Reykja­vík?“.“

Flug­vélin sem hafði komið stuttu áður frá Banda­ríkj­unum hafði þá fengið aðstoð við að lenda í gegnum leið­bein­ingar frá rad­arnum á Kefla­vík­ur­flug­velli og ungi mað­ur­inn frá aðflugs­stjórn­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli var að spyrja flug­um­ferða­stjór­ann á Kefla­vík­ur­flug­velli hvort hann gæti ekki leið­beint Glitfaxa við að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli.
Sam­skiptin héldu áfram.

„Þá segir flug­um­ferða­stjór­inn í Keflavík, sem var Banda­ríkja­maður, „Stand By“, sem þýðir bíddu. Hann kallar í flug­mann­inn og segir honum að rad­ar­inn sé til­bú­inn til að aðstoða hann við að koma inn í Keflavík því það sé ólend­andi í Reykja­vík og spyr hvort hann vilji ekki vera næstur í röð­inni að lenda með hjálp rad­ars­ins. Eftir sirka 10-15 sek­úndur kom svar: „Ætla að lenda í Reykja­vík.“ Þá segir strák­ur­inn í GCA-tæk­inu „Hann getur alls ekki lent í Reykja­vík, viltu ekki spyrja hann aftur hvort hann vilji ómögu­lega nota sér aðflugið. „Stand by“ segir flug­um­ferða­stjór­inn þá. Hann kallar aftur í flug­vél­ina og segir honum það að það sé ómögu­legt að lenda í Reykja­vík og spyr hvort hann vilji ekki nota sér það að koma inn með aðstoð aðflugs­ins í Keflavík.“ Nikulás segir að þá hafi liðið um hálf mín­úta en svo hafi svarið komið frá flug­mann­inum: „Ætla að lenda í Reykja­vík.“ Sagði Nikulás að ungi mað­ur­inn í GCA tæk­inu, sem hafi verið afar góður í sínu fagi hafi þá sagt: „Jesus Christ!“ Nikulás sagði að strák­ur­inn hefði beðið þann banda­ríska að bjóða flug­manni Glitfaxa í þriðja skiptið að lenda frekar á Kefla­vík­ur­flug­velli. „„Stand by“ segir flug­um­ferða­stjór­inn og kallar enn einu sinni í flug­vél­ina og svarið kemur bara frekar fljótt; „Ætla að lenda í Reykja­vík“. Strák­ur­inn í GCA tæk­inu varð alveg miður sín, hann var gráti nær. Hann var bara skjálf­radd­aður. Hann ætl­aði ekki að trúa sínum eigin eyrum.“

Samband við vélina slitnar

Nikulás sagði í sam­tali við Mannlíf að þegar þarna var komið við sögu hafi hann og vinnu­fé­lagi hans vitað hvað ætti eftir að ger­ast. „Við vorum búnir að sjá fyrir hvað myndi ske ef þetta myndi ganga svona og við þurftum að vinna úti við þannig að við fórum úr turn­inum. Við vorum að gera við ljós eða eitt­hvað í svona hálf­tíma, þrjú kortér. Þá fórum við aftur inn í flug­stöð sem þá var inni á hót­el­inu, þá var það nýtt. Nema hvað, þar æða menn um gólf og hár­reita sig nán­ast. Það var bara uppi fótur og fit því að sam­bandið við vél­ina hafði slitnað.“ Útskýrði Nikulás að margir þeirra sem þutu um gólfið hefðu verið íslenskir flug­menn sem ekki höfðu fengið önnur störf hjá flug­fé­lag­inu, önnur en þau að keyra stræt­is­vagna fyrir flug­fé­lagið.

Aðspurður um það sem áður hefur komið fram, að flug­stjóra Glitfaxa hafi verið ráð­lagt að taka hring út á Faxaflóa og reyna í annað skiptið að lenda í Reykja­vík, segir Nikulás það vel geta stað­ist en það hafi þá gerst eftir að flug­stjór­inn hafi neitað að lenda á Kefla­vík­ur­flug­velli. Með Glitfaxa fór­ust 17 far­þegar og þrír áhafn­ar­með­limir en flug­vélin hefur aldrei fund­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð