Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Saga Skuggabarna – Marri, tvítugur barnsfaðir Margrétar, tók eigið líf: „Jú, hann er dáinn.“

Margrét Finn­boga­dóttir kom fram í bók­inni Skugga­börn en hún missti barns­föður sinn, Marra, þegar hann tók eigið líf aðeins tví­tugur að aldri.

Margrét og Maríus, sem almennt var kall­aður Marri, fóru að vera saman þegar þau voru fjórtán ára að aldri. For­eldrar þeirra lögðu blessun sína yfir það að þau fengu að gista hvert hjá öðru en það atvik­að­ist þannig að Margrét eyddi heldur tíma á heim­ili Marra en öfugt. Þau komu bæði frá brotnum heim­ilum og Margrét segir að hún hafi snemma fundið sig í hlut­verki aðstand­and­ans. Hún pass­aði því ágæt­lega inn á heim­ili Marra.

Strax snemma á ung­lings­aldri var Marri far­inn að reykja hass dag­lega en Margrét leiðir að því líkum að það hafi verið til þess að deyfa sig. Neysla hans þró­að­ist svo þangað til hann var far­inn að nota sprautur.

Þau eign­uð­ust son en neysla Marra olli því að sam­band þeirra gat ekki gengið. Þau töl­uðu þó oft saman eftir það og hann hringdi gjarnan í hana ef hann van­hag­aði um eitt­hvað eða þurfti að fá far, gjarnan úr partýum.

Einn dag­inn þegar Margrét var að læra undir próf sem hún þurfti að taka dag­inn eftir áttu þau eitt slíkt sam­tal. Margrét segir að hún hafi þá verið komin á þann stað að þurfa að standa meira með sjálfri sér og í það skiptið ákvað hún að segja nei.

„Ég segi í þetta skiptið nei, ég er að fara í próf á morgun. Ég get ekki staðið í þessu. Síðan fer ég í þetta próf og þegar ég kem heim sé ég tólf ósvöruð sím­töl á sím­anum og þá fæ ég þessar fréttir. Ég vissi að þetta væri satt en ég vildi samt ekki trúa því. Ég man þennan dag og dag­ana á eftir rosa­lega skýrt. Þetta er stærsta sjokk sem ég hef á ævinni fengið. Það var ein stelpa sem hafði verið með honum þarna um kvöldið sem var búin að hringja svona oft í mig. Hún hringir akkúrat þegar ég er að kíkja á sím­ann, ég svara og það var hún sem sagði mér að hann væri dáinn. Ég man að það fyrsta sem ég sagði var „nei, hann er ekk­ert dáinn, ég var að tala við hann í gær“ en hún sagði „jú, hann er dáinn.“ “

Í kjöl­farið þurfti Margrét sjálf að há bar­áttu við áfengi og fíkni­efni en sögu Mar­grétar má sjá í heild sinni hér á hlað­varpsveitu Mannlífs.

Árið 2005 komu sam­hliða út bókin og heim­ild­ar­myndin Skugga­börn. Myndina fjallar um gerð bók­ar­innar en hana gerðu Jóakim Reyn­is­son og Lýður Árnason í sam­starfi við Þórhall Gunn­ars­son. Efn­is­tökin voru fíkni­efna­neysla hér­lendis á þessum tíma og meðal ann­ars skyggnst inn í líf ein­stak­linga sem voru í neyslu.

Nú tæpum 20 árum síðar skyggn­umst við inn í líf sumra þeirra ein­stak­linga sem komu fram í upp­runa­legu útgáf­unni í þátt­unum Hvað varð um Skugga­börn og að því til­efni sýnum við mynd­ina í fullri lengd.

Myndina má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar