Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sverrir tók þátt í klikkuðustu landkynningu Íslands: „Jakob Frímann er með botnlausar hugmyndir“

Nýjasti gestur Mann­lífs­ins er kontra­ten­ór­inn og lífskúntsner­inn Sverrir Guð­jóns­son. Flestir Íslend­ingar þekkja Sverri en hann er eini kontra­tenór þjóð­ar­innar en hann var ekki nema átta ára gam­all þegar hann hóf söng­feril sinn.

Í við­tal­inu segir Sverrir frá barna­stjörnu­ár­unum, söng­ferl­inum, óvæntu ævin­týri sem Jakob Frímann Magn­ús­son kom honum í þegar hann bjó í Lundúnum og ýmis­legt fleira sem á daga hins bráð­skemmti­lega manns hefur drifið.

Ein magn­að­asta en um leið umdeildasta land­kynn­ing Íslands­sög­unnar er gjörn­ingur sem fram­kvæmdur var á íslenskri menn­ing­ar­viku í Gul­benkian-gall­er­í­inu í Lundúnum árið 1991. Jakob Frímann Magn­ús­son var þá menn­inga­full­trúi Íslands í Lundúnum og stóð fyrir þess­ari menn­ing­ar­viku. Datt honum í koll þá hug­mynd, í miðjum blaða­manna­fundi, að aug­lýsa gjörn­ing án þess að vera búinn að ræða það við þá sem áttu að fram­kvæma hann. Sverrir segir Reyni Trausta­syni frá því þegar Human Body Percussion Ensemble-gjörn­ing­ur­inn sló í gegn í Lundúnum en reiddi Íslend­inga.

„Jakob Frímann er með botn­lausar hug­myndir,“ segir Sverrir og Reynir tekur undir. Heldur hann svo áfram: „Og margar frá­bærar. Og ég vissi ekki alveg hvað á mig stóð veðrið þegar hann hringdi í mig en þá bjó ég úti í London, var þá að takast á við kontra­ten­ór­söng, og bar­rokk­músík og sam­tímatón­list, var á kafi í þessu. Þá kemur hring­ing frá Jakobi. Þá var hann menn­ing­ar­full­trúi Íslands í gegnum sendi­ráðið og er að búa til stemmn­ingu fyrir 1. des­em­ber hátíð Íslend­inga­fé­lags­ins. Og hann er svo stór­tækur þannig að hann býr til mynd­lista­sýn­ingu, hann býr til tón­leika, alls konar tón­leika og ég veit ekki hvort það var leik­rit líka. Og hann er að reyna að kynna þetta fyrir blaða­fólki í London. Og hann er að nefna öll þessi nöfn sem við þekkjum en eng­inn þekkir úti í London. Og það er eng­inn áhugi fyrir þessu og blaða­menn­irnir eru farnir að fær­ast nær úti­dyr­unum. Voru farnir að láta sig hverfa af þessum fundi sem þeir vildu ekki vera á.“

Sverrir segir að Jakob hafi þá fengið flugu í höf­uðið, til að ná athygli blaða­mann­anna:

„Og þá segir hann „Jú, það er eitt atriði í við­bót og það er The Human Body Percussion Ensemble “. Bara nafnið er stór­kost­legt.“

Reynir: „Og það varð til á staðnum bara?“

Sverrir: „Já, já en að vísu hafði hann hugsað þetta nafn ein­hvern tíma. Þannig að það var í heil­anum á honum og hann bara kastar þessu fram og það bara stoppa allir á sinni leið út úr salnum.“

Þegar for­vitnir blaða­menn spyrja Jakob nánar út í þetta atriði var hann með svörin á reiðum höndum, að sögn Sverris: „Hann fer að lýsa því að þetta sé bara stundað á Íslandi. Að þetta sé ein­hvers konar sam­bland af glímu og svo yfir í búk­slátt, til að halda á sér hita og allt þetta. Og þeir grípa þetta.“

Í kjöl­farið hrönn­uð­ust upp pant­anir fyrir þennan furðu­lega gjörn­ing og hóaði Jakob þá í Didda fiðlu, Röggu Gísla, sem þá var eig­in­kona Jakobs og Sverri, sem öll slógu til og slógu svo ræki­lega í gegn, meðal ann­ars í vin­sælum sjón­varps­þætti Jonathan Ross. Ekki voru þó allir ánægðir en margir Íslend­ingar urðu reiðir yfir þess­ari frum­legu land­kynn­ingu.

Hlusta má á við­talið í heild sinni hér.

Hér fyrir neðan má síðan sjá hinn frum­lega gjörn­ing sem um er rætt:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar