Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stanslaust stuð í Braggaparkinu – Fyrsta flokks aðstaða fyrir línuskauta og hjólabretti og fleira

Stanslaust stuð í Braggaparkinu – Fyrsta flokks aðstaða fyrir línuskauta og hjólabretti og fleira

„Draumur bretta­kappans Eiríks Helga­sonar um inn­an­húss­að­stöðu fyrir hjóla­bretti, línu­skauta, hlaupa­hjól og BMX-hjól varð að veru­leika 25. maí árið 2020, þegar Braggap­arkið var form­lega opnað á Akureyri „Þessi hug­mynd var búin að vera mér lengi hug­leikin,“ segir Eiríkur og bætið við að árið 2019 hafi hann loks­ins fundið hent­ugt hús­næði í gömlu brögg­unum við Lauf­ás­götu, sem áður hýstu stál­smiðju til margra ára.

Ekki leið á löngu þar til Eiríkur og félagar hans hófu að hanna aðstöð­una og ári síðar hófst smíða­vinna á fyrri helm­ingi verk­efn­is­ins og var sá hluti opn­aður í maí.

„Seinni hlut­inn var opn­aður í jan­úar á þessu ári okkur öllum til mik­illar gleði og ánægju,“ segir stoltur Eiríkur og bætir við:

„Þegar maður á sér draum, eða að hug­mynd kviknar í koll­inum, er ekki svo auð­velt – sem betur fer – að ýta burtu frá sér draumnum og hug­mynd­inni.“

Eiríkur segir að Braggap­ark­inu hafi verið afar vel og þeir hafi fengið mjög jákvæð við­brögð frá fólki, ekki bara á Akureyri, heldur bara frá fólki alls­staðar á Íslandi og þá hafa ferða­menn – íslenskir og erlendir – líka lýst yfir ánægju með fram­takið og stað­inn.

Mannlíf hvetur fólk ein­dregið til þess að kíkja í heim­sókn til Eiríks og félaga í Baraggap­ark­inu; það verður eng­inn svik­inn af þeirri heim­sókn.

Þess má geta að opn­un­ar­tími er sem hér segir:

Mánudag til föstu­dags frá 14.00 – 19.00 og laug­ar­dag og sunnu­dag frá 12.00 – 19.00

Eiríkur nefnir að dag­skort og fleira er selt á staðnum og til að mynda kostar 1 dagur 1.000 kr. Og 10 daga klippikort er á 8.000 kr. og leyfi­legt er að fara og koma aftur, en það virkar ein­göngu á milli kl. 12-19.
Þá nefnir hann að mán­að­ar­kort kosti fyrir full­orðna 10.000 kr. Og fyrir börn 8.000 kr. – og hálfs­ár­skort fyrir full­orð­inn 30.000 kr., en fyrir barn 20.000 kr.

„Svo eru árskort fyrir full­orðna 50.000 kr. En fyrir börn 35.000 kr. Full­orð­ins­kortin (16+) virka allan sól­ar­hring­inn alla daga en barna­kortin virka ein­göngu milli kl. 12-19 alla daga.“

Eiríkur vill að lokum benda á að það er eng­inn posi á staðnum en hægt er að greiða með pen­ing, milli­færa eða greiða með Aur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur