Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hótel Kjarnalundur -falin perla á Akureyri

Hótel Kjarnalundur -falin perla á Akureyri
Huggu­legt á Hótel Kjarna­lundi

Á köldu sum­ar­kvöldi runnu tveir þreyttir ferða­langar; ljós­mynd­ari og blaða­maður, í hlað Hótel Kjarna­lundar. Tekið var á móti okkur af ein­skærri hlýju, en fyrir innan sat Guddi með bros á vör og fræddi hann okkur um sögu bygg­ing­ar­innar. Hótelið rekur hann ásamt systur sinni, Hildi og föður þeirra, Magnúsi.

Góð hvíld í góðu rúmi

Eftir klukku­tíma spjall og gott kaffi var okkur vísað til her­bergj­anna sem eru nota­leg og hljóð­lát, með rúm­góðu bað­her­bergi. Við vorum afar þreytt og lögð­umst til hvílu og þá gerð­ist það. Ég svaf yfir mig! Ég snús­aði vekjara­klukk­una þangað til að ég þurfti að þeyt­ast af stað til að fara í tökur á þætt­inum um Akureyri. Með úfið hár mætti ég í morg­un­mat­inn sem var dásam­legur og kaffið góða.

Við lögðum svo í hann í tökur sem stóðu yfir í 16 tíma. Eftir þær fórum við á hót­elið, sem við vorum farin að kalla heima, því það var svo nota­legt. Um leið og við erum komin inn mætir okkur hún Hildur með sinn dill­andi hlátur og frá­bæra skop­skyn og býður okkur á rúnt­inn á Fordinum sínum sem er frá 1975. Inn var hoppað og það var eins og að stíga til for­tíðar með örlít­illi bens­ín­lykt, en inn­sogið var fært fram og til baka til að halda bílnum í gangi.

Notalegt að stinga sér í pott­inn á hót­el­inu

Hún sýnir okkur einn af bústöð­unum sem pabbi þeirra byggði með þeim. Hann minnti helst á höll alveg við Kjarna­skóg. Úti voru kan­ínur að snigl­ast og hestar við girð­ing­una og það eina sem ég gat hugsað var: Ef ég væri barn þá ætti ég milljón leyni­staði og bú allt í kringum bústað­inn.
Svo kom ákvörð­unin! Hér skyldi ég gista með litla kút­inn minn og mann­inn og farið skyldi í öll þessi ævin­týri sem ég sá fyrir mér og nesti borðað á teppi í rjóðri sem bara við vissum af.

Fallegir munir til sölu á Hótel Kjarna­lundi

Þetta er allt gert af fjöl­skyld­unni, fyrir fjöl­skyldur og stað­setn­ingin virkar hvort heldur fyrir róm­an­tík eða fjöl­skyldu­ferð. Það eru pottar með rjóðri allt um kring og sána með inn­rauðu ljósi en fyrir framan hana er leikja­tölva, svo barn­inu leið­ist ekki meðan for­eldr­arnir detoxa sig.

Þegar ég hitti fjöl­skyldu­föð­ur­inn hann Magnús þá skyldi ég af hverju þetta er svona hjá þeim, hann er bara einn stór pabbi og stoltið skín í gegnum stríðn­ina.
Hann er týpan sem gerir hlut­ina með börnum sínum frekar en fyrir þau, svo að draumar þeirra þeirra geti ræst!
Hann byggði sinn rekstur með sínum föður og það var það sama uppi á pall­borð­inu þar; allt byggt upp saman.
Það er ást í öllu sem þú sérð á hót­el­inu og bústöð­unum. Upp­lifunin á að vera „heima“ fyrir þann sem gistir hjá þeim. Hver ein­asti hlutur á sér stað og sögu; pen­inga­skápur úr norska sendi­ráð­inu, tré frá afa af tré­smíða­verk­stæð­inu, útsaumur frá ömmu, hand­gerðir hlutir frá starfs­fólk­inu, vin­tage sófa­sett sem minna á aust­ur­ríska skíða­skála og svo frægu tómat­plönt­urnar sem eru miðja húmors­ins alla daga.

Það verður engin svik­inn af því að gista hjá Magnúsi, Hildi og Gudda í miðri para­dís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur