Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Ráðfærðu sig við Trump og drápu svo yfir 400 manns

Donald Trump hefur verið lýst sem frið­ar­sinna.

Ráðfærðu sig við Trump og drápu svo yfir 400 manns
Blaða­full­trúi Trumps Karoline Leavitt greindi frá því í við­tali við Fox News í morgun að Hvíta húsið hefði verið í ráðum með Ísraelum fyrir loft­árás­irnar í nótt. Mynd: AFP

„Ísraelar ráð­færðu sig við Trump-stjórn­ina og Hvíta húsið vegna árása þeirra á Gasa­svæð­inu í nótt,“ sagði blaða­full­trúi Hvíta húss­ins, Karoline Leavitt, í við­tali við Fox News í dag.

„Eins og for­seti Trump hefur tekið skýrt fram - Hamas, Hútarnir, Íran, allir þeir sem leit­ast við að hræða ekki aðeins Ísrael, heldur einnig Banda­ríkin, munu fá að gjalda fyrir það. Allt mun fara til fjand­ans,“ sagði þessi tals­maður Hvíta húss­ins.

Trump hafði áður gefið út opin­bera við­vörun með svip­uðum orðum, þar sem hann sagði að Hamas ætti að láta alla gísla í Gaza lausa eða „láta allt fara til fjand­ans.“

Yfir 400 manns hafa fund­ist látin eftir loft­árás­irnar, sem gerðar eru undir því yfir­skini að ekki hafi allir gíslar verið frels­aðir úr höndum Hamas sem teknir voru í árásum 7. októ­ber 2023. Í árásum Hamas voru 1.200 Ísraelar drepnir og 250 hand­teknir.

Hern­að­ar­að­gerðir Ísraels gegn Gaza í kjöl­farið hafa drepið yfir 48.000 Palest­ínu­menn, sam­kvæmt heil­brigð­is­ráðu­neyti svæð­is­ins, og einnig vakið ásak­anir um þjóð­ar­morð og stríðs­glæpi sem Ísrael neitar. Árás­irnar hafa valdið því að nán­ast allir 2,3 millj­ónir íbúa Gaza hafa þurft að flýja heim­ili sín og leitt til hung­ursneyðar.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur lagt fram þá til­lögu að Palest­ínu­menn verði fluttir frá Gasa­svæð­inu og þar byggi Banda­ríkin upp lúx­us­ferða­þjón­ustu. Yfirvöld í Banda­ríkj­unum hafa leitað leiða til að flytja Palest­ínu­menn til Austur-Afríku.

Donald Trump hefur verið lýst sem frið­ar­sinna, meðal ann­ars af honum sjálfum, en um helg­ina fyr­ir­skip­aði hann loft­árásir í Jemen þar sem yfir­völd segja að 53 hafi lát­ist, aðal­lega börn og konur. Er það gert eftir árásir Húta-hreyf­ing­ar­innar á skipa­um­ferð.

„Mín stoltasta arf­leið verður frið­ar­stillir og sam­ein­ing­ar­tákn,“ sagði Trump í vígslu­ræðu sinni 20. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Heimur

Heimur

Flug­velli í Póllandi lokað eftir sprengju­hótun

Annað sambærilegt atvik á skömmum tíma
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann