Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þrjár bækur hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar

Lóa Hlín, Rán, Elías Rúni og Mars eru sig­ur­veg­arar árs­ins.

Þrjár bækur hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar
Lukku­legir sig­ur­veg­arar. Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri, Sigrún Margrét Guð­munds­dóttir for­maður dóm­nefndar, Elías Rúni, Mars Proppé, Rán Flygenring og Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir. Mynd: Reykjavik.is

Barna­bóka­verð­laun Reykja­vík­ur­borgar voru veitt við hátíð­lega athöfn í Höfða síð­degis á síð­asta vetr­ar­degi, en það var Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri sem afhenti verð­launin. Um er að ræða elstu barna­bóka­verð­laun lands­ins, en þau voru fyrst veitt árið 1973 og hafa verið veitt árlega í núver­andi mynd frá árinu 2016, í þremur flokkum: frum­samin verk á íslensku, mynd­lýs­ingar og þýð­ingar.

Í ár bár­ust dóm­nefnd­inni 66 hand­rit til skoð­unar, og voru fimm bækur til­nefndar í hverjum flokki áður en úrslitin voru kynnt. Dóm­nefnd­ina skip­uðu Sigrún Margrét Guð­munds­dóttir, sem gegndi for­mennsku, ásamt Arngrími Vídalín og Bergrúnu Öddu Páls­dóttur.

Verð­launa­hafar árs­ins 2025 eru eft­ir­far­andi:

  • Frum­samið efni: Mamma sand­kaka eftir Lóu Hlín Hjálmtýs­dóttur (útg. Salka).
  • Mynd­lýs­ingar: Tjörnin eftir Rán Flygenring (útg. Angústúra).
  • Þýðing: Kynsegin eftir Maia Kobabe, í þýð­ingu Elíasar Rúna og Mars Proppé (útg. Salka).

Verð­launin eru veitt í þeim til­gangi að styðja við og efla vandað barna- og ung­menna­bók­mennta­efni á Íslandi.

Hér fyrir neðan má lesa umsögn dóm­nefndar um bæk­urnar:

Mamma sand­kaka eftir Lóu Hlín Hjálmtýs­dóttur. Útgef­andi: Salka.

Lóa Hjálmtýs­dóttir er eng­inn nýgræð­ingur í því að sprengja fólk á öllum aldri úr hlátri og Mamma sand­kaka er þar engin und­an­tekn­ing. Bókin er sjálf­stætt fram­hald af Mamma kaka, sem er afskap­lega fyndin bók, en hér gengur Lóa jafn­vel lengra í húmornum. Hér ríkir ein­tóm gleði og for­eldrar fá tals­vert fyrir sinn snúð á sama tíma og börnin.

Tjörnin eftir Rán Flygenring. Útgef­andi: Angústúra.

Í Tjörn­inni sjáum við sann­kallað ævin­týri í garð­inum þar sem er svo svaka­lega margt í gangi. Við hvern lestur þá sýna mynd­irnar okkur eitt­hvað nýtt og á sama tíma gefa þær sög­unni svo mikla dýpt. Teikn­ing­arnar flæða, rað­ast í röð, fylla upp í rýmið og stundum geta þær meira að segja stöðvað tím­ann. Rán hefur hér gefið okkur kunn­ug­legan en jafn­framt ævin­týra­legan heim.

Kynsegin eftir Maia Kobabe, þýð­ing: Elías Rúni og Mars Proppé. Útgef­andi: Salka.

Elías Rúni og Mars Proppé þýddu skáld­sög­una Kynsegin, sjálfsævi­sögu þar sem Maia Kobabe segir frá því hvernig hán fann sjálft sig eftir margra ára sjálfs­efa og óvissu. Þessi teikni­mynda­saga er listi­lega gert verk um mik­il­vægt mál­efni og hefur án efa verið áskorun fyrir þýð­end­urna tvo sem leystu ýmiss konar vanda­mál af lagni og virð­ingu fyrir efn­inu.

Hér má svo sjá aðrar bækur sem til­nefndar voru:

Frum­samin skáld­verk 

  1. Kúkur, piss og prump, Sævar Helgi Bragason, útgef­andi JPV
  2. Stór­kost­lega sum­ar­nám­skeiðið, Tómas Zoëga, útgef­andi Mál og menn­ing
  3. Kasia og Magda­lena, Hildur Knúts­dóttir, útgef­andi JPV
  4. Kóngsi geim­fari, Laufey Arn­ar­dóttir, útgef­andi Lofn

Mynd­lýs­ingar

  1. Matti og Maurún, Laufey Jóns­dóttir, útgef­andi Bóka­fé­lagið
  2. Kúkur, piss og prump, Elías Rúni, útgef­andi JPV
  3. Skrímsla­veisla, Áslaug Jóns­dóttir, útgef­andi Mál og menn­ing
  4. Tumi fer til tungls­ins, Lilja Cardew, útgef­andi Bóka­beitan

Þýðingar

  1. Risa­eðlu­gengið: Leynd­ar­málið, Sverrir Jak­obs­son, útgef­andi Mál og menn­ing
  2. Matti og Maurún, Andreas Guð­munds­son Gähwiller, útgef­andi Bóka­fé­lagið
  3. Lockwood og co: Öskrin frá stig­anum, Sólveig Sif Hreið­ars­dóttir, útgef­andi Kver bóka­út­gáfa
  4. Ég og Milla: Allt í köku, Jón St. Krist­jáns­son, útgef­andi Vaka Helga­fell
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar