Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Mér fannst ekkert eftir nema að jörðin myndi opnast og gleypa mig“

Ágústa lýsir ára­tuga­löngu ofbeldi.

„Mér fannst ekkert eftir nema að jörðin myndi opnast og gleypa mig“
Ágústa Ágústs­dóttir Vara­þing­konan er í við­tali í nýjasta blaði Vikunnar. Mynd: Alþingi

Ágústa Ágústs­dóttir, vara­þing­kona Mið­flokks­ins, hefur nú stigið fram og greint frá langvar­andi heim­il­is­of­beldi sem hún seg­ist hafa orðið fyrir af hendi fyrr­ver­andi eig­in­manns síns, Jóns Þórs Dag­bjarts­sonar. Jón hefur áður hlotið dóm fyrir kyn­ferð­is­brot og er nú ákærður fyrir til­raun til mann­dráps gegn Hafdísi Báru Ósk­ars­dóttur, fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sinni á Vopna­firði. Ágústa er í við­tali í nýjasta tölu­blaði tíma­rits­ins Vikunnar.

Jón var árið 2010 dæmdur fyrir kyn­ferð­is­lega mis­notkun á stúlku þegar hann starf­aði á með­ferð­ar­heim­il­inu Árbót í Aðaldal. Á þeim tíma tók Ágústa upp hansk­ann fyrir Jón og sak­aði stúlk­urnar sem höfðu stigið fram um mann­orðs­morð í fjöl­miðlum. Það hafði djúp áhrif á þolendur, sem voru allar 16 ára gamlar og úr brotnum aðstæðum.

Nú hefur Ágústa ákveðið að segja sína eigin sögu. Hún lýsir því í við­tali í Vikunni, hvernig hún kynnt­ist Jóni árið 1999 í Reykja­vík og flutti skömmu síðar til Grinda­víkur, þar sem hann leiddi mót­or­hjóla­klúbb­inn Fáfni, tengdan Hells Angels. Hún segir hann hafa verið heill­andi og spenn­andi í fyrstu, en sam­bandið hafi brátt breyst í ógn­ar­stjórn og ofbeldi.

„Hann til­heyrði þá vél­hjóla­klúbbnum Fáfni sem var tengdur Hells Angels og var for­maður þessa klúbbs. Þetta fannst mér mjög spenn­andi af því að ég var sjálf þessi villta týpa og upp­reisn­ar­seggur. Þannig hafði ég alltaf farið í gegnum lífið, ég bjarg­aði mér og fór á hnef­anum. Þó svo að skapið hafi verið mér oft til trafala, þá var það vöggu­gjöf því það kom mér áfram, í stað þess að verða undir. Það fylgdi mér allt mitt líf þó svo að það hafi ekki sést á mér því ég var ekki að brjót­ast út í skapofsa.“

Eftir að Jón hlaut dóm 2010, sat hann inni í eitt og hálft ár og kláraði refs­ingu sína með ökkla­bandi. Ágústa heim­sótti hann viku­lega í fang­elsið á Akureyri. „Ég upp­lifði algjört hrun, af því að ég var búin að berj­ast svo mikið fyrir öllu. Mér fannst ekk­ert eftir nema að jörðin myndi opn­ast og gleypa mig. Þannig leið mér, ég var í „sur­vi­val mode“ þar sem ég var að reyna að lifa af. Hann var færður í fang­elsið á Akureyri og ég heim­sótti hann í hverri viku. Mér fannst ég vera skyldug til að gera það og þannig var þrýst­ing­ur­inn. Ég tók þá ákvörðun hins vegar mjög fljót­lega að ég ætl­aði alls ekki að sofa hjá honum í þessu fang­elsi. Ég var svo brotin eftir hann og hafði sjálf mátt þola kyn­ferð­is­legt ofbeldi í okkar sam­bandi. Í fang­els­inu var gesta­her­bergi með svefn­sófa sem var fyrir gesti og ég gat ekki hugsað mér að sofa hjá honum í þessum sófa. Mér leið bara eins og ég væri skítug þegar ég kom út. Alls konar fólk var búið að sofa þarna. Ég til­kynnti honum að ég gæti þetta ekki, en hann gat aldrei virt þetta og það var alltaf þrýst­ingur. Það end­aði svo með því að ég ákvað að taka alltaf börnin með mér í heim­sókn til hans. Þá varð hann argur og pirr­aður og hafði engan áhuga á því að vera með börnin.“

Þegar hann losn­aði sýndi hann engan vilja til að sinna börn­unum þeirra, en síðar birt­ist hann aftur með nýja konu, Hafdísi Báru. „Ekki einu sinni um helgar. Hann fékkst ekki til að skrifa undir skiln­að­ar­papp­írana fyrr en ári síðar. Svo einn dag­inn sendir hann mér skila­boð um að hann vildi koma og hitta börnin. Ég sam­þykki það og hann sendi mér að VIÐ séum að koma. Þá átta ég mig á því að það er komin önnur kona í spilið og það er Hafdís, sem ég hélt reyndar í fyrstu að væri elsta dóttir hans vegna ald­urs­bils­ins,“ segir Ágústa. Fljót­lega fór ofbeldið að koma fram í því sam­bandi líka.

Hafdís hringdi síðar í Ágústu, skjálf­andi og bað hana afsök­unar fyrir að hafa ekki trúað henni fyrr. Þær tóku að mynda tengsl og Ágústa von­að­ist til að Hafdís sleppi út úr sam­band­inu. Þegar það gerð­ist hafði Jón ráð­ist á hana, reynt að nauðga henni og síðar reynt að drepa hana. Hún sagði mér að hún væri að fara að kæra hann. „Hún fer til lög­regl­unnar en fær sömu við­brögð og ég hafði fengið; Eru þetta ekki bara inni­halds­lausar hót­anir? Hún leggur inn beiðni um nálg­un­ar­bann en fær höfnun á það deg­inum áður en hann reynir að drepa hana. Ennþá gekk hann laus og er ekki tek­inn í gæslu­varð­hald. Sem betur fer var Hafdís hug­rökk að stíga fram og segja sögu sína í fjöl­miðlum, sem varð til þess að hann er loks­ins tek­inn inn í gæslu­varð­hald.“ segir Ágústa.

Aðal­með­ferð í mál­inu gegn Jóni hófst 7. maí í Hér­aðs­dómi Aust­ur­lands. Ágústa segir vilja fá svör við ýmsu. Til dæmis hvaða dóm hann fær? Hversu lengi fær hann að ganga laus áður en hann er tek­inn inn? Og þegar hann loks­ins fer inn, hvað afplánar hann raun­veru­lega mikið?.

Ágústa biður nú stúlk­urnar á Árbót afsök­unar opin­ber­lega, í við­tal­inu í Vikunni. Hún við­ur­kennir að fram­ganga hennar hafi valdið þeim djúpum sárs­auka og þján­ingu. Með því að segja sína sögu von­ast hún til að varpa ljósi á skað­ann sem ofbeldi og trún­að­ar­rof getur valdið, og að koma af stað umræðu um nauð­syn breyt­inga í kerf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur