Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ný heimildarmynd varpar ljósi á sjúkan huga Brueckners

Barna­sund­föt, leik­föng og við­bjóðs­legar sögur af barns­ránum fund­ust í hús­næði níð­ings­ins.

Ný heimildarmynd varpar ljósi á sjúkan huga Brueckners
Maddie litla og mögu­legur morð­ingi hennar. Heim­ild­ar­myndin varpar skýr­ara ljósi á sjúkan huga Brueckners. Mynd: Samsett

Eldfim ný heim­ild­ar­mynd um hvarf Madel­eine McCann varpar ljósi á ný og mögu­lega afdrifa­rík sönn­un­ar­gögn sem kunna að styrkja þá kenn­ingu að Christian Brueckners sé sá seki í mál­inu. Þetta er full­yrt í breska frétta­miðl­inum Mirror.

Myndin bein­ist að vís­bend­ingum sem fund­ust á felu­stað hans og gætu varpað ljósi á hvers vegna þýski rík­is­borg­ar­inn Brueckner er í brennid­epli í einu umtal­að­asta saka­máli heims, þegar Madel­eine hvarf árið 2007.

Frá því Madel­eine litla hvarf í fjöl­skyldu­fríi í Algarve fyrir 18 árum hafa vís­bend­ingar verið af skornum skammti. Í mynd­inni eru sýndar óhugn­an­legar upp­götv­anir sem gerðar voru í yfir­gefnu verk­smiðju­hús­næði Brueckners, auk þess sem fjallað er um sjúk­legan áhuga hans á ungum börnum.

Heim­ild­ar­myndin, „Madel­eine McCann: Inside the Secret Evidence“, fjallar meðal ann­ars um barna­sund­föt og leik­föng sem fund­ust á eign Brueckners. Þá greinir hún frá því að lög­regla hafi fundið grímu, skot­vopn og við­bjóðs­legar sögur um barns­rán sem Brueckner skrif­aði sjálfur.

Í einni slíkri sögu skrifar hann: „Mjög lítil stelpa gengur inn í her­bergið. Hún er örugg­lega ekki eldri en fimm ára. Ljóst, sítt hár í tagli skoppar á eftir henni þegar hún kemur til mín. Mér líður eins og ég sé í para­dís.“

Í annarri óhugn­an­legri frá­sögn, sem Brueckner á að hafa skrifað, lýsir hann því að hafa notað eit­ur­loft­teg­und, etervökva, á móður og barn fyrir utan leik­skóla. Einnig er greint frá 80gb hörðum diski sem hafi gegnt lyk­il­hlut­verki í því að sann­færa rann­sókn­ar­að­ila um að ein­blína á Brueckner.

Harð­disk­ur­inn stað­setti Brueckner nálægt leit­ar­svæði við Arade-stífl­una í Portúgal. Myndin greinir einnig frá því að Brueckner hafi skrifað að hann vildi „fanga eitt­hvað lítið og nota það í nokkra daga“. Hann hót­aði einnig að það myndi ekki skipta máli þótt „sönn­un­ar­gögnum yrði eytt á eftir“ áður en hann bætti við: „Ég mun gera margar kvik­myndir ... hehe.“

Lög­reglu­skýrslur greina frá að þetta séu mik­il­væg­ustu upp­lýs­ingar sem komið hafa fram í mál­inu frá því þýsk yfir­völd til­kynntu árið 2020 að Brueckner væri aðal­sak­born­ingur í hvarfi Madel­eine McCann.

Í mynd­inni kemur einnig fram að Brueckner hafi neitað að svara spurn­ingum lög­reglu og ekki gefið neina afsökun. Hann hefur þó ekki verið form­lega ákærður fyrir hvarf eða hugs­an­legt morð á Madel­eine.

Í heim­ild­ar­mynd­inni er einnig við­tal við írska ferða­ráð­gjafann Hazel Behan, 41 árs, sem Brueckner var sýkn­aður af að hafa nauðgað árið 2005, í rétt­ar­höldum í Þýska­landi á síð­asta ári. Þar kemur fram að rann­sókn­ar­að­ilar ótt­ast að Brueckner muni taka leynd­ar­málin með sér í gröf­ina, án þess að veita fjöl­skyldu Madel­eine nein loka­orð eða svör.

Síðasta leit að vís­bend­ingum í mál­inu stóð yfir í þrjá daga í Praia da Luz í síð­ustu viku, nálægt þeim stað þar sem Brueckner er sagður hafa tjaldað á sínum tíma.

Þýskir rann­sak­endur fengu aðstoð frá portú­gölsku lög­regl­unni og not­uðu bæði gröfur og rat­sjár­búnað til að leita í jörðu. Þrátt fyrir umfangs­mikla leit fund­ust engin hald­bær sönn­un­ar­gögn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco