Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gunnar Smári opnar sig um erfiða dvöl á barnaheimili

„Annars man ég fátt, nema þrúg­andi til­finn­ingu sökn­uðar, ótta og ein­mana­leika.“

Gunnar Smári opnar sig um erfiða dvöl á barnaheimili
Gunnar Smári Egilsson Sós­í­alista­for­ing­inn fyrr­ver­andi opnar sig um erfitt sumar. Mynd: Ljósmynd: Facebook

Gunnar Smári Egilsson opnar sig um erf­iða dvöl sína á sum­ar­dval­ar­heim­ili sem barn, í nýrri Facebook-færslu.

Fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Sós­í­alista­flokks­ins, Gunnar Smári Egilsson, segir frá því í nýrri færslu á Facebook að hann hafi verið á sum­ar­dvala­heim­ili þegar hann var fjög­urra ára gam­all. Færslan hefst á eft­ir­far­andi orðum:

„Það var mynd í sjón­varp­inu um börn á sum­ar­dval­ar­heim­ili, lík­lega á sjö­unda ára­tug­unum, Sum­ar­börn. Ég var á svona heim­ili, barna­heim­il­inu Vor­boð­anum sem verka­lýðs­fé­lög kvenna ráku upp við Rauðhóla. Það eru engar menjar um þetta heim­ili þar lengur, en hluti skál­ans er núna íbúð­ar­hús á Fram­nes­vegi 66. Ég var þarna held ég sum­arið 1965, fjög­urra ára, sum­arið þegar pabbi og mamma skildu.“

Segist Gunnar Smári seg­ist ekki eiga margar góðar minn­ingar um þessa dvöl sína og sagði hana hafa ein­kennst af ótta og ein­mana­leika.

„Ég á fáar góðar minn­ingar frá þess­ari dvöl, ég skildi ekk­ert í því hvers vegna ég var allt í einu lok­aður þarna inni ásamt sex­tíu börnum, kannski fleirum. Við sváfum í kojum í skálum og áður en dregið var fyrir glugg­ana sagði gæslu­kona okkur að í Rauð­hól­unum fyrir utan byggi hún Grýla sem myndi læð­ast til okkar og stela þeim börnum sem ekki væru sofnuð. Skrítin aðferð við að svæfa börn. Annars man ég fátt, nema þrúg­andi til­finn­ingu sökn­uðar, ótta og ein­mana­leika.“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn sagði í færslu sinni að eitt ljós hafi verið þetta erf­iða sumar en það hafi verið ung­lings­stúlka sem vann á barna­heim­il­inu umrætt sumar. Fann hann í henni sálu­fé­laga.

„Ljósið er ein gæslu­konan, sem hefur lík­lega verið ung­lings­stúlka þetta sumar. Hún var sú eina sem ég man til að hafi séð mig, og ég lað­að­ist að henni. Henni hefur fund­ist gaman að stríða mér þegar ég mændi upp á hana í von um ein­hverja teng­ingu. Þegar við gengum fram á Hólmsá sagði hún mér að þarna rynni Þjórsá í öllu sínu veldi. Svo benti hún á Rauð­hól­ana og sagði að þarna risi hún Hekla, lík­lega að und­ir­búa gos. Og þarna liggur Þing­valla­vatn, sagði hún og benti í átt að Elliða­vatni. Fróð­leiks­fúst barnið hafði fundið sál­ar­fé­laga, gat ekki hugsað sér skemmti­legri göngu­för.“

Þegar Gunnar Smári var sóttur af fjöl­skyld­unni eftir sum­arið var hlegið af honum þegar hann sagði þeim frá því sem ung­lings­stúlkan hafði kennt honum.

„Það eina góða þetta sumar var blekk­ing. Ég myndi gjarnan vilja vita hver gæslu­konan var sem bjargði mér þetta sumar, með því að ljúga mig fullan.“

Að lokum segir hann frá því að til­raun hafi verið gerð til þess að setja hann á dag­heim­ili vet­ur­inn á eftir en eftir að hann harð­neit­aði því fylgdi hann móður sinni í vinn­una. Þá var einnig reynt að senda hann í sveit næsta sumar en hann komst hjá því með því að gera sér upp kíg­hósta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ