Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Viðar Símonarson er látinn

Viðar Símonarson er látinn

Viðar Sím­on­ar­son, íþrótta­kenn­ari, fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í hand­bolta og síðar lands­liðs­þjálf­ari, lést á Land­spít­al­anum í Fossvogi þann 2. júní síð­ast­lið­inn, 80 ára að aldri.

Viðar fædd­ist í Hafn­ar­firði 25. febr­úar 1945 og ólst þar upp. For­eldrar hans voru Símon Mar­in­ós­son mat­sveinn og sjó­maður, og Ólöf Helga­dóttir hús­móðir.

Eftir nám í heima­bænum lauk Viðar prófi sem íþrótta­kenn­ari árið 1965. Hann starf­aði lengi við íþrótta­kennslu, en hann kenndi í Haga­skóla og Verzlunarskóla Íslands. Sem leik­maður með íslenska lands­lið­inu í hand­bolta átti hann glæsi­legan feril en hann skor­aði 203 mörk í 93 lands­leikjum. Meðal minn­is­stæð­ustu augna­blika hans á vell­inum var jöfn­un­ar­markið gegn heims­meist­urum Rúmena í æsispenn­andi leik í Laug­ar­dals­höll árið 1971, sem end­aði með jafn­tefli 14:14.

Viðar tók þátt í Ólymp­íu­leik­unum í München árið 1972 og var val­inn hand­knatt­leiks­maður árs­ins árið 1974. Árið eftir var hann lyk­il­leik­maður þegar Ísland sigr­aði Danmörku 20:16 í vin­áttu­leik í Laug­ar­dals­höll­inni. Á ferli sínum lék hann með Haukum og síðar FH, þar sem hann hlaut marga titla. Hann þjálf­aði einnig bæði félög, og tók við þjálfun lands­liðs­ins á árunum 1975–1976.

Sem þjálf­ari náði hann góðum árangri, meðal ann­ars þegar hann leiddi karla­lið Hauka til bik­ar­meist­ara­tit­ils árið 1980 og kvenna­lið Stjörn­unnar til sama árang­urs árið 1989, fyrsti bik­ar­meist­ara­tit­ill beggja liða.

Viðar var kvæntur Halldóru Sig­urð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi flug­freyju, fæddri 1949. Börn þeirra saman eru Sigurður (f. 1976) og Dóra (f. 1981). Hann átti einnig dótt­ur­ina Guðnýju Björk (f. 1967) með fyrri eig­in­konu sinni, Guðfinnu Jóns­dóttur. Viðar lætur eftir sig fimm barna­börn.

Útför hans fer fram frá Hafn­ar­fjarð­ar­kirkju þriðju­dag­inn 18. júní kl. 13:00.

Mbl.is sagði frá and­lát­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá