Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fyrsta skipti sem „ríkisstjórn setur hagsmuni þjóðarinnar framar sérhagsmunum“

„Ríkis­stjórnin stóð af sér á­hlaup sér­hags­muna“ segir þing­konan Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir og bætir við að „eftir lengsta mál­þóf í sögu Alþingis tókst loks­ins að ljúka þing­störfum á fyrsta þingi rík­is­stjórn­ar­innar.“

Fyrsta skipti sem „ríkisstjórn setur hagsmuni þjóðarinnar framar sérhagsmunum“
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir er 1. þing­maður Flokks fólks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi Segir rík­is­stjórn­ina bara rétt vera að byrja Mynd: Víkingur

„Ríkis­stjórnin stóð af sér á­hlaup sér­hags­muna“ segir þing­konan Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir og bætir við að „eftir lengsta mál­þóf í sögu Alþingis tókst loks­ins að ljúka þing­störfum á fyrsta þingi rík­is­stjórn­ar­innar.“

Hún segir að þingið hafi verið óvenju stutt því það „hófst ekki fyrr en í byrjun febr­úar og stóð því í rétt rúma fimm mán­uði.“

Ást­hildur Lóa nefnir að „því er ekki að leyna að meiri­hlut­inn hefði viljað koma mörgum af þeim þjóð­þrifa­málum sem stjórn­ar­and­staðan stóð í vegi fyrir með for­dæma­lausu mál­þófi í gegn“ segir hún og bætir því við að „þau birt­ast ein­fald­lega full­búin þegar þing kemur saman eftir átta vikur.“

Hún segir að þrátt fyrir óbil­girni stjórn­ar­and­stöð­unnar hafi unn­ist margir stórir sigrar á vor­þing­inu:

„Ný lög um breyt­ingar á útreikn­ingi veiði­gjalda fela í sér leið­rétt­ingu sem þjóðin hefur kallað eftir í mörg ár og jafn­vel ára­tugi“ og segir hún að sam­kvæmt þeim mið­ast auð­lind­arentan til þjóð­ar­innar nú við „mark­aðsvirði afla en ekki verð sem útgerð og fisk­vinnsla í eigu sama aðila ákveða sjálfir. Það er stór sigur. Þetta er í fyrsta skipti sem rík­is­stjórn hefur sett hags­muni þjóð­ar­innar framar sér­hags­munum varð­andi nýt­gingu auð­linda í eigu hennar.“

Ást­hildur Lóa segir það ekki hafa komið á óvart að ein sterkasta „sér­hags­muna­blokk í land­inu lagði allt undir til að koma í veg fyrir þessa leið­rétt­ingu.“

Að mati þing­manns­ins stóðst rík­is­stjórn Flokks fólks­ins , Við­reisnar og Sam­fylk­ingar „áhlaup og rán­dýra aug­lýs­inga- og óhróð­urs­her­ferð Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) og umboðs­manna þeirra sam­taka á Alþingi“ og „stóðst“ einnig „linnu­lausar árásir þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Mið­flokks­ins og Fram­sóknar sem víl­uðu ekki fyrir sér að hag­ræða sann­leik­anum og reyna að ljúga því að þjóð­inni að með lög­unum ætl­aði rík­is­stjórnin að þurrka upp hagnað útgerð­ar­innar. Ekkert er fjarri lagi. Það er fáheyrt að haldnar séu yfir þrjú þús­und ræður og andsvör í einu máli á Alþingi. Að 160 klukku­stundir, fjórar starfsvikur, séu teknar undir eitt mál.“

Ást­hildur Lóa segir að stjórn­ar­and­staðan hafi hótað því bæði í ræðum sem og á fundum þar sem reynt var að semja um þing­lok að hún myndi ekki hleypa neinu máli rík­is­stjórn­ar­innar í gegn ef ekki yrði fallið frá veiði­gjalda frum­varp­inu:

„Málum sem varða hag allra Íslend­inga og þess vegna var nauð­syn­legt að stoppa mál­æðið með heim­ild í þing­skap­ar­lögum.“

Hún segir að engin önnur rík­is­stjórn hafi áður vogað sér að fara fram gegn sér­hags­munum stór­út­gerð­anna og að „fyrri rík­is­stjórnir Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og nú síð­ast einnig Vinstri grænna hafa þvert á móti farið í einu og öllu eftir því sem stór­út­gerðin hefur kraf­ist af þeim. Núver­andi rík­is­stjórn hefur hins vegar gert slag­orð Flokks fólks­ins að sínu: Fólkið fyrst og svo allt hitt. Þau mál sem stóðu útaf nú á vor­þingi bíða til­búin til fram­lagn­ingar á haust­þingi sem hefst eftir aðeins átta vikur, ásamt fjöl­mörgum öðrum góðum málum sem hafa verið í und­ir­bún­ingi í ráðu­neytum. Rík­is­stjórn er því rétt að byrja og hefur langt í frá gleymt strand­veiði­sjó­mönnum og þaðan af síður fötl­uðu fólki og eldri borg­urum.“

Ást­hildur Lóa segir að strax í þess­ari viku verði tryggt að bætt verði í afla­heim­ildir strand­veiði­sjó­manna og þá sé gert ráð fyrir því í fjár­mála­á­ætlun er sam­þykkt var á Alþingi á mánu­dag að greiðslur til fatl­aðs fólks og elli­líf­eyr­is­þega hækki sam­kvæmt launa­vísi­tölu:

„Frumvarp þar að lút­andi verður síðan lagt fram strax í haust. Þingmenn stjórn­ar­flokk­anna fagna þeim sig­urum sem náð­ust á þessu fyrsta þingi og við höfum og munum standa saman öll sem einn og hlökkum til að mæta til þings á ný. Næg eru verk­efnin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ