Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Játar fordóma gegn hinsegin fólki

„Sú mann­eskja sem ekki getur elskað, lifir inn­an­tómu lífi,“ segir Geir og lýsir hvernig for­dómar stafa af óör­yggi og ótta

Játar fordóma gegn hinsegin fólki
Geir Gunnar Markússon Deilir reynslu sinni af for­dómum sem mið­aldra gagn­kyn­hneigður karl­maður Mynd: Geir Gunnar Markússon

Geir Gunnar Mark­ús­son opnar sig um reynslu sína að takast á við eigin for­dóma gagn­vart hinsegin fólki í skoð­anapistli sem birtur var á Vísi í morgun. Hann seg­ist hafa verið mjög for­dóma­fullur þegar hann var ungur. „Um leið var ég óör­uggur í eigin skinni, hræddur og kvíð­inn,“ skrifar Geir í pistli sínum.

Þegar Geir var rúm­lega tví­tugur kom nákom­inn ætt­ingi hans úr skápnum og Geir brást illa við og sagði ætt­ingj­ann hljóta að vera að grín­ast. „Ég hafði fram að því ekki þekkt neinn sem var opin­ber­lega sam­kyn­hneigður. Þetta kvöld bauð þessi ætt­ingi minn mér og vin­konu minni út að borða á veit­inga­staðnum Ítalíu og síðan á bar­inn 22 til að hitta vini sína og kær­ustu/a. Með þessu var ætl­unin að sýna fyrir mér að þetta væri ekk­ert grín, en ég afneit­aði þessu öllu og vissi ekki einu sinni að bar­inn 22 væri yfir­lýstur skemmti­staður sam­kyn­hneigðra á þessum tíma,“ segir Geir.

Geir seg­ist sjá mikið eftir fram­komu sinni á þessum tíma en hann hafi þroskast mikið á liðnum ára­tugum. Hann hefur grátið og hlegið að for­dóma­fullu við­brögðum sínum með ætt­ingj­anum og gert upp fyrir hegðun sína á þeim tíma.

„Ég hvet alla sem finna fyrir for­dómum gagn­vart hinsegin fólki að reyna að eign­ast vin í hinsegin sam­fé­lag­inu. Þegar þú kynn­ist mann­eskj­unni á bak við skil­grein­ing­una, breyt­ist sjón­ar­hornið,“ skrifar Geir í pistl­inum. Hann segir að af hans reynslu sé meiri kær­leikur, hlýja og vin­semd í hinsegin sam­fé­lag­inu en víða ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu.

„Það er ástæða fyrir því að fólk hatar. Fordómar spretta af óör­yggi, ótta og oft van­líðan. Enginn fæð­ist for­dóma­fullur — en við lærum það af umhverf­inu,“ skrifa Geir. Þess vegna er fræðsla, vin­átta, opin sam­töl og kær­leikur svo mik­il­vægur því það vinnur gegn for­dómunum og ótt­anum.

Sem for­eldri seg­ist Geir þó skilja ótta ann­arra for­eldra um að börnin þeirra komi út úr skápnum, ekki vegna eigin for­dóma heldur ótta við for­dóma sam­fé­lags­ins. „Þau spyrja sig: Hvernig mun barnið mitt bregð­ast við þegar ein­hver eys yfir það fúk­yrðum og for­dómum fyrir að vera hinsegin?“ skrifar Geir. „Sem betur fer hefur hin mikla bar­átta fyrir rétt­indum hinseg­in­leik­ans í okkar sam­fé­lagi skilað okkur því að umræðan er opin og vel­komin þrátt fyrir bakslag.“

Það er vissu­lega aukið bakslag í heim­inum gagn­vart rétt­indum hinsegin fólks. Sem dæmi voru allir hinsegin við­burðir voru bann­aðir með lögum í Ung­verja­landi í ár. Hér á Íslandi hafa for­dómar gegn trans fólki blossað upp. Þar má nefna alvar­lega lík­ams­árás á trans konu fyrir utan lík­ams­rækt­ar­stöð sem RÚV greindi frá í vor. „Við þurfum fleiri þjóð­ar­leið­toga og stjórn­mála­menn sem klæð­ast dragi í gleði­göngum og fagna fjöl­breyti­leik­anum,“ skrifar Geir.

„Vonum inni­lega að fólk sem hatar og sýnir mikla for­dóma sjái ljósið einn dag­inn. Því sú mann­eskja sem ekki getur elskað, lifir inn­an­tómu lífi,“ segir Geir Gunnar Mark­ús­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur