Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Peningar geta verið hættulegir og þeir geta skemmt vináttu og fjölskyldur”

Reynir Grét­ars­son við­skipta­maður opnar sig upp á gátt í nýrri bók

„Peningar geta verið hættulegir og þeir geta skemmt vináttu og fjölskyldur”
Reynir Grét­ars­son Við­skipta­mað­ur­inn opnar sig um erf­ið­leika Mynd: YouTube-skjáskot

Reynir Grét­ars­son við­skipta­maður seg­ist hafa ákveðið að opna sig upp á gátt í nýrri sjálfsævi­sögu, eftir að hafa forð­ast að tala um sjálfan sig í áraraðir. Reynir, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist þegar hafa fengið mikil við­brögð frá hátt settu fólki í sam­fé­lag­inu sem tengi óþægi­lega við þá erf­ið­leika sem hann lýsir í bók­inni:

„Ég hef í gegnum árin forð­ast að tala um sjálfan mig og það er nýtt fyrir mér að opna mig á þennan hátt. En ef maður ákveður að gera svona bók þarf maður að koma henni á fram­færi og hluti af því er að tala um sjálfan sig. Ég ákvað að vera per­sónu­legur í þessarri bók og tala bara um það sem var í gangi á hverju tíma­bili fyrir sig. Hvort sem það var þegar ég var þung­lyndur, eða að opna mig um áfeng­is­vanda­mál eða ást­ar­sorg, þá lét ég það bara flakka. Það er erfitt að stíga þetta skref og setja þetta út, en ég finn að ég er að fá mjög jákvæð við­brögð eftir að bókin kom út. Það hefur mikið af fólki haft sam­band við mig og sagt að því finn­ist óþægi­legt hvað það tengir mikið við sög­una mína. Það að deila er heilandi fyrir bæði þann sem deilir og þann sem hlustar á sög­una. Það að gefa út svona per­sónu­lega bók er heilandi fyrir mig,“ segir Reynir og heldur áfram:

„Þeir sem hafa haft sam­band við mig eru oft aðilar sem eru í svip­aðri stöðu, hefur gengið vel fjár­hags­lega, en eru samt að díla við það sama og annað fólk. Fólk sem segir kannski: „Ég er búinn að taka þung­lynd­is­lyf í 15 ár og þori ekki að segja nokkrum lif­andi manni frá þv.” Fólk sem er fram­ar­lega í við­skipta­líf­inu eða stjórn­málum eða öðrum stöðum þar sem það þarf að halda í ákveðna ímynd. Þér finnst að þú eigir að vera sterk­ari og betri en aðrir og fyr­ir­mynd sem á ekki að vera að díla við svona hluti. Það er áhuga­vert hvað þetta er enn mikið taboo að opna á sjálfan sig. Ég á alveg vini sem ráð­lögðu mér ein­dregið að segja bara bis­ness-hlut­ann af sög­unni minni, en alls ekki vera að opna á vanda­málin mín, kon­urnar í lífi mínu eða annað per­sónu­legt. En ég hugs­aði með mér að ég vildi einmitt opna á þessa hluti til að neyða les­and­ann til að taka með­alið með súr­mjólk­inni.”

Í Bókinni „Fjórar árs­tíðir” rekur Reynir sögu sína og fer meðal ann­ars yfir tíma­bilið þegar hann stofn­aði og stjórn­aði fyr­ir­tæk­inu Láns­traust, sem varð síðar Creditinfo. Eftir að hafa byggt upp öfl­ugt alþjóð­legt fyr­ir­tæki frá grunni, hefur hann nú selt sinn hlut í fyr­ir­tæk­inu og ákvað fyrir nokkrum árum að taka algjöra u-beygju. Í þætt­inum ræðir Reynir um þann veru­leika að eiga mikið af eignum og hvernig það getur breytt sam­skiptum við fólk:

„Ég ákvað fyrir ein­hverju síðan að halda því sem ég á inni í fyr­ir­tækja­rekstri og gera það sem ég gæti til að lifa sem venju­leg­ustu lífi. Allar mínar eignir eru inni í félagi sem aðrir stýra og ég er ekki með 100 millj­ónir inni á banka­bók­inni minni. Mér finnst mjög þægi­legt að vera búinn að kúpla mig út úr þessu. Eftir að ég skipti um takt man ég eftir því þegar ég var á eyju í Asíu og kom­inn frá því að vera stans­laust inni í þessarri hring­iðu. Allt í einu var ég þarna á ein­hverri eyju hinum megin á hnett­inum og sím­inn hættur að hringja og það var bara allt í góðu lagi í líf­inu,” segir Reynir og heldur áfram:

„Mörgum finnst að ég geti alveg gefið þeim pen­inga eða að það þurfi ekki að borga til baka. Þannig hef ég tapað vinum. Líka fólk sem hefur unnið fyrir mig og rukkar svo allt of mikið bara af því að það er ég. Ég er ekki að barma mér yfir neinu, en ég lýsi ákveðnum veru­leika í bók­inni. Það bendir margt til að þegar eignir þínar fara yfir ákveð­inn þrösk­uld fari lífs­gæðin niður. Meðal ann­ars af því að fólk fer að umgang­ast þig öðru­vísi. Peningar geta verið hættu­legir og þeir geta skemmt vin­áttu, fjöl­skyldur og fleira. Sumir halda að þeir séu betri en aðrir af því að þeir eign­ast pen­inga. Það er algengt að fólk noti valdið sem pen­ingum fylgir til að drottna yfir fólki. Sumir fara gjör­sam­lega í hausnum við það að eign­ast pen­ing og fólk smjaðrar oft fyrir þeim sem eiga pen­inga og það býr til skrýtna stöðu. Ég hef aldrei viljað láta ver­ald­lega hluti, pen­inga eða eignir skil­greina mig sem mann­eskju.”

Reynir og Sölvi tala í þætt­inum um Ísland í gegnum áranna rás og hvernig fyrri kyn­slóðir ólust upp í mik­illi hörku, sem yngra fólkið í dag þekkir yfir­leitt ekki:

„Eldri kyn­slóðin á Íslandi var með þann hugs­un­ar­hátt að það þyrfti að herða börnin til að und­ir­búa þau undir lífið. Lífið væri bara erfitt og hart og þú gætir ekki náð neinum árangri nema með ákveð­inni hörku. Ég var all­inn upp þannig og flestir af minni kyn­slóð. En svo erum við komin í allt aðra stöðu núna. Almennt séð er lífið á Íslandi mjög gott núna og ef þú berð það saman við Ísland á árum áður eða bara flest sam­fé­lög yfir höfuð, þá erum við á mjög góðum stað. En þá er auð­vitað mögu­legt að pendúll­inn snú­ist og við förum að verða of góð við okkur og að það verði ákveðin bómull­ar­væð­ing. Ég hafði áhyggjur af þessu með börnin mín af því að ég vildi alls ekki að þau væru byrjuð að vinna sex ára og taka lífið svona alvar­lega frá barns­aldri. En svo hafði ég áhyggjur af dóttur minni þegar hún var ung­lingur að hún væri bara í sóf­anum í sím­anum. En núna er hún læknir, rosa­lega dug­leg og flott og á fal­legt heim­ili og tvö börn. Ég hélt að við værum að ala upp heila kyn­slóð af aum­ingjum af því að við vildum ekki ala upp börn í sömu hörku og ábyrgð og við vorum alin upp í. En mér sýn­ist að það séu að koma upp tals­vert heil­brigð­ari ein­stak­lingar núna en áður.”

Hægt er að nálg­ast við­talið við Reyni og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur