Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Greta opnar sig loks um pyntingar og niðurlægingu í haldi Ísraela

Kölluðu hana lilla hora, spörk­uðu í hana og tóku sjálfur

Greta opnar sig loks um pyntingar og niðurlægingu í haldi Ísraela
Greta Thunberg Greta opnar sig um illa með­ferð í haldi Ísraela Mynd: ARIS MESSINIS / AFP

Sænski umhverf­is­vernd­ar­að­gerð­ar­sinn­inn Greta Thunberg hefur loks lýst þeirri með­ferð sem hún hlaut í haldi Ísraela þegar hún var tekin við að reyna að koma hjálp­ar­gögnum til Gaza á dög­unum. Það gerði Greta í ítar­legu við­tali við Aften­bla­det.

Greta segir að hún hafi orðið fyrir lík­am­legu og and­legu ofbeldi þegar hún var hand­tekin af ísra­elskum her­mönnum eftir að Frels­is­flot­inn sem hún tók þátt í var stöðv­aður á leið til Gaza.

„Mér var ekki leyft að vera í bolnum mínum þar sem stóð Free Palestine og mér var skipað að skipta um bol. Ég fór þá í app­el­sínugulan bol með text­anum Decolonize í stað­inn,“ segir Greta.

„Svo setti ég á mig froska­húf­una mína. Þegar ég var að fara út úr bátnum biðu fjöldi lög­reglu­manna eftir mér. Þeir gripu í mig, köst­uðu mér á jörð­ina og þöktu mig með ísra­elska fán­anum.“

„Þetta fór úr engu í hund­rað“

Samkvæmt frá­sögnum vitna tók ofbeldið þá að magn­ast hratt. „Þetta fór úr engu í hund­rað,“ segir Greta. Hún lýsir því hvernig hún var dregin út á mal­bikað svæði girt af með járn­girð­ingum. Atburða­rásin stóð yfir í meira en sex klukku­stundir, stað­fest af öðrum þátt­tak­endum Frels­is­flot­ans sem Afton­bla­det ræddi við.

„Þetta var eig­in­lega eins og úr dystópískri kvik­mynd. Ég sá kannski fimm­tíu manns sitja í röð á hnjánum með hendur í hand­járnum og ennið við gólfið,“ segir hún. Greta sýnir stöð­una á teppi í stof­unni heima hjá sér þegar hún rifjar upp augna­blikið.

„Þeir drógu mig yfir á gagn­stæða hlið­ina frá hinum og ég hafði fán­ann utan um mig allan tím­ann. Þeir börðu mig og spörk­uðu í mig,“ segir Greta.

„Svo rifu þeir af mér froska­húf­una mína, köst­uðu henni á gólfið, troðu á henni og spörk­uðu í hana, eins og þeir væru í móð­ur­sýkiskasti.“

Henni var síðan komið fyrir í horni. „Þeir sögðu: „sér­stakur staður fyrir sér­staka dömu“. Þeir höfðu lært að segja lilla hora og hora Greta á sænsku og end­ur­tóku það stöðugt.“

Greta segir að þegar ein­hver reyndi að lyfta höfð­inu, hafi hann verið lam­inn aftur niður. „Í horn­inu þar sem ég sat, settu þeir fána. Fáninn var þannig stað­settur að hann snerti mig. Þegar hann blakti við mig hróp­uðu þeir „Ekki snerta fán­ann!“ og spörk­uðu í hlið­ina á mér.“

„Eftir smá stund bundu þeir hendur mínar með plast­böndum, mjög fast. Hópur varð­manna stillti sér upp í röð til að taka sjálfu með mér á meðan ég sat svona.“

Hún segir að her­menn­irnir hafi tekið tösk­una hennar og eyði­lagt allt sem þeir tengdu við Palest­ínu. „Þeir tóku hvern hlut, horfðu beint í augun á mér og skáru hann hægt í sundur með hníf, á meðan tíu manns tóku sjálfur.“

Greta segir að á þessum tíma­punkti hafi öfga­hægri ráð­herr­ann Itamar Ben-Gvir komið inn á svæðið. „Hann hróp­aði: „Þið eruð hryðju­verka­menn. Þið viljið drepa gyð­inga­börn“. Þeir sem hróp­uðu á móti voru teknir til hliðar og lamdir. Ég sá það bara út undan mér, því í hvert skipti sem ég lyfti höfð­inu, var ég spörk­uð niður aftur.“

Hún minn­ist einnig atviks sem hún kallar hjart­næmt. „Ég bað um að fá að fara á sal­ernið. Þá þurfti ég að ganga fram­hjá fólk­inu sem sat þar. Ein sænsk kona sagði: „Við erum með þér, Greta“. Þá var hún tekin til hliðar og beitt ofbeldi.“

Greta segir að þegar hún gekk áfram hafi fang­arnir tekið upp slag­orðið hennar. „Þeir sögðu „Slay!“, það er orðið sem ég nota oft. En þá voru þeir lamdir. Svo öskr­aði einn „Slaaaay!“ og fleiri og fleiri tóku undir, þar til allir voru að öskra það, og þá gátu þeir ekki barið alla. Það var …“ Hún þagnar og brosir lít­il­lega.

Engin samúð né mannúð

Síðar var Greta færð inn í bygg­ingu þar sem á henni var leitað og hún svipt klæðum.

„Varð­menn­irnir sýndu enga samúð né mannúð, og tóku stöðugt sjálfur með mér. Ég man ekki allt, svo margt gerð­ist á sama tíma. Þú ert í áfalli, þér er illt, en reynir að halda ró.“

„Skyndi­lega var ég dregin inn í ræsti­her­bergi þar sem ég var neydd til að krjúpa,“ segir hún.

„Þá koma Ben-Gvir og fjöl­miðlateymi hans inn og byrja að taka upp. Hann sagði: „Ég mun per­sónu­lega sjá til þess að þú verðir með­höndluð sem hryðju­verka­maður og rotna í fang­elsi. Þú ert Hamas. Þú vilt drepa gyð­inga­börn“.

Á meðan hann hrópar sit ég eins róleg og ég get og vitna í sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ég sagði að Ísrael væri ekki und­an­þegið alþjóða­lögum og yrði að virða þau.“

Ben-Gvir lýsti síðar sjálfur yfir stolt­inu yfir með­ferð­inni. „Ég er stoltur af því að við komum fram við Frels­is­flota­hóp­inn sem stuðn­ings­menn hryðju­verka,“ sagði hann við Yedioth Ahronoth.

Eftir þetta var Greta flutt í fanga­bíl, bundin á höndum og með klút fyrir augun . Hún segir að nóttin hafi verið köld. „Það var ískalt. Við vorum bara í bolum.“

Í fang­els­inu var hún aftur svipt klæðum. „Það var háð og nið­ur­læg­ing, og allt var tekið upp. Allt sem þeir gera er ótrú­lega ofbeld­is­fullt. Þeir köst­uðu lyfjum fólks, hjarta­lyfjum, krabba­meinslyfjum, insúl­íni, í ruslið fyrir framan augun á því.“

Greta segir að fanga­klef­arnir hafi verið 15 fer­metrar og þar hafi 13 fangar verið saman. Þau hafi þurft að drekka vatn úr sal­ern­is­skál­unum og fjöl­margir veikt­ust. „Það var 40 stiga hiti. Við grát­báðum um vatn, hróp­uðum að lokum. Verð­irnir gengu fram­hjá, hlógu og héldu á vatns­flöskum. Þeir köst­uðu þeim svo í ruslið fyrir framan okkur.“

Á einum tíma­punkti voru 60 manns settir í lítið járn­búr utandyra í sól­inni. „Þegar það fór að líða yfir fólk börðum við í búrið og báðum um lækni, en þeir sögðu bara: „Við ætlum að gasa ykkur“ og héldu uppi gaskút, til að hræða okkur“. Þá segir Greta frá því að fanga­verðir hafi reglu­lega barið á riml­ana og lýst úr vasa­ljósi á fang­ana á nótt­unni til að koma í veg fyrir hvíld.

Gagn­rýnir sænska sendi­ráðið harð­lega

Það var ekki fyrr en á föstu­dag að þrír ein­stak­lingar frá sænska sendi­ráð­inu í Tel Aviv komu til að hitta Svíana í búri, utandyra. „Við vorum saman og sögðum þeim frá með­ferð­inni sem við fengum. Frá skorti á mat, vatni, frá mis­þyrm­ing­unum. Pynt­ing­unum. Við sýndum þeim lík­am­legu meiðslin sem við höfðum, mar­bletti og rispur. Við gáfum þeim allar upp­lýs­ingar um okkur, ég gaf þeim síma­númer föður míns og síma­númer tengiliðs okkar innan sam­tak­anna. Við vorum skýr: allt sem við segjum núna verður að koma til fjöl­miðla.“ Samkvæmt Gretu Thunberg var svarið að þeirra hlut­verk væri að hlusta á þau. „Þau gerðu ekk­ert, þau sögðu bara: „Okkar hlut­verk er að hlusta á ykkur. Við erum hér og þið eigið rétt á ræð­is­manns­að­stoð“. Við sögðum aftur og aftur: við þurfum vatn. Og þau sáu að verðir voru með vatns­flöskur. Starfs­fólk sendi­ráðs­ins sagði: „Við punktum það niður hjá okkur.“ Einn okkar, Vincent, sagði: „Næst þegar við hittum ykkur verðið þið að koma með vatn.“ Svo liðu tveir dagar þar til starfs­fólk sendi­ráðs­ins mætti ​​aftur. Þau komu ekki með neitt vatn, nema litla flösku sem var hálf­tóm. Vincent, sem var í verstu ástand­inu, fékk að drekka hana. Við héldum áfram að spyrja fanga­verð­ina: „Megum við fá vatn?“ en þeir gengu bara um með vatns­flösk­urnar sínar og svör­uðu ekki. Að lokum ákvað sænski hóp­ur­inn, í við­ur­vist sendi­ráðs­starfs­manna, að neita að fara aftur í klefa sína fyrr en þeim væri gefið vatn, sam­kvæmt nokkrum vitnum sem Afton­bla­det hefur talað við. En þá vildu sendi­ráðs­starfs­menn yfir­gefa fang­elsið, full­yrða þau. „Ég sagði: „Ætlið þið að skilja okkur eftir svona? Ef þið farið núna munu þeir berja okkur.“ En þau héldu bara áfram að ganga. Nokkrir aðgerð­ar­sinnar sögðu Afton­bla­det frá því að kven­kyns aðgerðasinni hefði orðið reið og sparkað í rusla­tunn­una þar sem fanga­verð­irnir höfðu kastað vatns­flösk­unum sínum. Flöskur hellt­ust á gólfið og Greta og hin köst­uðu sér á gólfið og flýttu sér að opna flösk­urnar og drekka vatnið sem fanga­verð­irnir skildu eftir. „Starfs­fólk sendi­ráðs­ins sér þetta en heldur samt áfram að ganga.“ Sama dag og þátt­tak­end­urnir eru látnir lausir úr fang­elsi eftir fimm daga í haldi segir Ulf Kristers­son, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, í sænskum fjöl­miðlum að það hafi verið „mjög heimsku­legt“ að ferð­ast til Gaza þrátt fyrir við­var­an­irnar.

Hægt er að lesa allt við­talið við Gretu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife