Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Rjúpnaskyttur skutu úr byssum nærri sumarbústöðum

„Dálítið óþægi­legt þegar maður er sestur niður í nota­leg­heitum í sveit­inni að heyra skot­hvelli fyrir utan“

Rjúpnaskyttur skutu úr byssum nærri sumarbústöðum
Rjúpur á Sval­barða Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint Mynd: Shutterstock

„Það er dálítið óþægi­legt þegar maður er sestur niður í nota­leg­heitum í sveit­inni að heyra skot­hvelli fyrir utan og finna svo nýdauða fugla skammt frá hús­inu, sjá bíla keyra fram og aftur og menn stara í sjón­aukum heim að hús­inu.“

Þannig segir Vigfús Hjörtur Jónsson, eig­andi sum­ar­bú­staðar í Vopna­firði, frá þeirri óhugn­an­legu reynslu sem hann og fjöl­skylda hans urðu fyrir um liðna helgi þegar kyrrðin í sveit­inni var rofin af byssu­skotum. Fjöl­skyldan hafði farið í bústað­inn til að njóta friðar og hvíldar í faðmi nátt­úr­unnar, en í stað þess urðu þau vitni að skot­veiðum í nágrenn­inu. Við nán­ari athugun fund­ust nokkrar nýdauðar rjúpur rétt við bústað­inn, og Vigfús tók eftir veiði­mönnum sem virt­ust skjóta fugla beint úr bílum sínum.

„Það var aðili sem ók þarna fram og aftur á veg­inum skammt frá bústaðnum, beindi sjón­auka ítrekað að bústaðnum og skaut svo óhikað í átt­ina beint úr bíl sínum. Ég geri ráð fyrir að menn viti af því að hér er trjá­lundur þar sem nokkrar rjúpna­fjöl­skyldur halda sig gjarnan oft yfir allan vet­ur­inn. Ég hef reglu­lega verið að týna upp skot­hylki á vorin svo þetta er hreint ekki í fyrsta skipti sem verið er að skjóta þarna um slóðir. Þá virð­ast þeir lítið virða afgirt einka­lönd því hér sáust spor víða innan girð­ingar.“

Vigfús seg­ist undr­andi á því að veiði­menn sýni ekki meiri aðgæslu, sér­stak­lega þar sem margir dvelji nú yfir vet­ur­inn í sum­ar­bú­stöðum sínum, oft í skógi eða trjá­lundum þar sem rjúpur leita sér skjóls.

„Ég hélt að það væri nóg pláss ann­ars staðar til að stunda veiðar en niður í byggð. Stór heiða­lönd og heilu eyði­dal­irnir þar sem engin er byggð og skot­veiði hvorki truflar né veldur hættu.“

Lög­reglan á Aust­ur­landi segir engar form­legar til­kynn­ingar hafi borist um rjúpna­veiði í sum­ar­bú­staðalöndum á yfir­stand­andi veiði­tíma­bili. Hins vegar segir Hjalti Bergmann Axelsson, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, að lög­reglan hafi virkt eft­ir­lit með slíku meðan á veiðum stendur, og bendir á að það sé strang­lega bannað að hafa hlaðin skot­vopn í öku­tækjum.

Aust­ur­frétt sagði fyrst frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil