Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fyrsti formaður Pírata hefur áhuga á framtíðinni

Oktavía Hrund bjó í 30 ár erlendis.

Fyrsti formaður Pírata hefur áhuga á framtíðinni
Oktavía Hrund Flutti til Dan­merkur sjö ára og sneri aftur til Íslands þremur ára­tugum síðar. Mynd: Víkingur

Nýkjör­inn for­maður Pírata, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, hefur sér­stakan áhuga á fram­tíð­inni, eins og hán greindi frá í kosn­inga­ræðu sinni.

Oktavía sagð­ist hafa áhuga á fram­tíð­inni og mögu­leik­anum á að skapa „ekki bara eina fram­tíð, heldur margar fram­tíðir,“ sagði hán í kynn­ing­ar­ræðu sinni.

Hán starf­rækir einka­hluta­fé­lagið fut­ure404 ehf, sem var með 10,7 millj­ónir króna í tekjur í fyrra. Félagið veitir ráð­gjöf um per­sónu­vernd, heild­rænt öryggi og lög­fræði­leg mál­efni.

Oktavía fædd­ist 1979, en ólst upp í Danmörku frá sjö ára aldri. Hán gekk í mennta­skóla um skeið í Banda­ríkj­unum og bjó sömu­leiðis í Þýska­landi. Hán bjó í 30 ár erlendis. Fram hefur komið að hán búi yfir kunn­áttu í sjö tungu­málum, en út frá einu er íslenskan snúin.

Fyrsta kvárið á formannsstóli

Hán er fyrsta kvá­rið til að gegna for­mennsku í stjórn­mála­flokki á Íslandi. Í við­tali við Vísi sagði Oktavía frá hvers­dags­legum áskor­unum fólks við for­nafna­notkun.

„Þetta er ekk­ert svo flókið og snýst ekk­ert um það að fólk þurfi að passa sig á því hvort það eigi að segja hún, hann eða hán. Þetta snýst meira um þá sem rang­kynja með­vitað, sem oft eru sömu aðilar og verða ösku­reiðir ef þú rang­kynjar kött­inn þeirra eða hund­inn,“ sagði hán og benti um leið fólki á að nota ein­fald­lega nöfn.

Oktavía hafði áður lýst efa­semdum um að Píratar ættu að vera með for­mann, sem nú ger­ist í fyrsta sinn. „Ég var pínu frægt fyrir það á tíma­bili að vera gegn því að vera með for­mann,“ sagði hán í kynn­inga­ræðu sinni, en tók fram að áherslan á for­manns­hlut­verkið hafi oft í umræð­unni snú­ist um að leysa vanda­mál for­tíðar, frekar en fram­tíðar.

„Við þurfum sam­helda fram­tíð­ar­sýn til þess að ná í gegn um þær áskor­anir sem við höfum og við gerum það best með því að vera leið­andi inn­a­n­á­við eins og við erum uta­n­á­við,“ útskýrði hán.

Óþarfi að flækja kynin

Oktavía Hrund er sem stendur vara­borg­ar­full­trúi Pírata og fram­kvæmda­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks­ins. Árin 2016 til 2021 var hán vara­þing­maður Pírata í Suð­ur­kjör­dæmi. Oktavía sat í stjórn Pírata árið 2017 og gegndi síðan for­mennsku evr­ópskra Pírata árin 2017 til 2018.

Til við­bótar situr Oktavía í ráð­gjafa­hóp Sam­ein­uðu þjóð­anna um alþjóð­lega stjórn­sýslu inter­nets­ins og var í fyrra kjörið í stjórn Vertonet, sam­taka kvenna og kvára í upp­lýs­inga­tækni á Íslandi.

Í fyrr­greindu við­tali við Vísi sagði Oktavía að í tækni­geir­anum væru konur oft settar í mjúku málin, á meðan fólk vilji ein­fald­lega fá að for­rita í friði óháð kyni.

„Orðræðan er oft: Vertu karl, en bara ekki svona. Eða vertu flink og góð kona. Að fagna fjöl­breyti­leik­anum og efla hann, er leið til að veita öllum aðkomu og tryggja að við endum með að búa til enn betri tækni­vörur. Fjöl­breyti­leik­inn felur í sér okkur öll; konur, karla og kvára. Við þurfum ekk­ert að flækja það neitt. Mér finnst við oft flækja þetta um of en satt best að segja finnst mér aldrei vegið að mínu frelsi, nema ég verði vör við að fólk sé að rang­kynja vilj­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum