Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Breskur ferðamaður drukknaði á gamlárskvöld

„Ferðin átti að marka nýtt upp­haf fyrir hann, skref í átt að líf­inu, ekki enda­lok þess.“

Michael Clarke
Michael Clarke Clarke fór í hjarta­stopp í sund­laug­inni Mynd: GoFundMe

Breskur maður lést á gamlárs­kvöldi meðan hann var í fríi í Gambíu en and­látið hefur skilj­an­lega valdið fjöl­skyldu hans miklum harmi.

Michael Clarke, sem var frá York­skíri á Englandi, drukkn­aði í sund­laug á Mansea Beach hót­el­inu í Kololi, við Atl­ants­hafs­strönd vestur-afríska rík­is­ins. Slysið átti sér stað 31. des­em­ber.

Að sögn aðstand­enda var eng­inn starfs­maður eða sund­laug­ar­vörður á staðnum þegar slysið varð. Clarke, sem var 64 ára, fór í laug­ina og er talið að hann hafi fengið hjarta­stopp, hugs­an­lega vegna kalds vatns. Þar sem engin taf­ar­laus aðstoð barst drukkn­aði hann í laug­inni.

Fjöl­skylda hans vinnur nú að því að flytja lík hans heim til Bret­lands og hefur sett upp söfnun á GoFundMe til að standa straum af kostn­aði við heim­flutn­ing og útför. Dóttir hans, Victoria Walker, segir að nauð­syn­legt sé að safna fé til að koma föður hennar heim.

„Faðir minn hafði glímt við þung­lyndi í yfir 20 ár, ástand sem hann bar í hljóði og barð­ist við af mik­illi seiglu,“ segir hún.

Hún bætir við að und­an­farna mán­uði hafi faðir hennar verið á raun­veru­legri bata­göngu og lagt áherslu á and­lega heilsu sína og að end­ur­heimta innri ró. Ferðin hafi verið honum afar mik­il­væg, enda fyrsta utan­lands­ferð hans í 20 ár.

„Það sem gerir þennan missi sér­stak­lega sárs­auka­fullan er að ferðin átti að marka nýtt upp­haf fyrir hann, skref í átt að líf­inu, ekki enda­lok þess. Fjöl­skyldan er enn að reyna að melta hvernig ferð sem ætlað var til lækn­ingar og hvíldar end­aði í svo skyndi­legum harm­leik,“ segir Victoria.

Hún segir fjöl­skyld­una afar þakk­láta fyrir allan stuðn­ing sem geti hjálpað til við að standa straum af kostn­aði við útför og heim­flutn­ing lík­ams­leifa.

„Við leitum til fólks eftir aðstoð, hvert fram­lag, sama hversu lítið, mun fara beint í að koma honum heim og veita honum þá útför sem hann á skilið,“ segir hún.

Söfnunin á GoFundMe hefur þegar safnað yfir 1.200 pundum frá um 40 ein­stak­lingum og mark­miðið er að ná 10.000 doll­urum fyrir fjöl­skyld­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

HPV-bólu­setn­ingar taldar hafa komið í veg fyrir um 200 dauðs­föll í Englandi

Engin kona á aldrinum 20–24 ára lést úr leghálskrabbameini í Englandi á árunum 2020 til 2024. Án bólusetninga hefðu þær verið um 23, að mati vísindamanna.
Heimur

Rétt­ar­höld hafin vegna ban­vænnar hnífa­árásar á sextán ára stúlku

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Heimur

Leik­ar­inn Stacy Keach lát­inn 85 ára að aldri

Heimur

Dóm­stólar hafna beiðnum um lausn 14 palest­ínskra lækna

Heimur

Heimur

Hundruð skóla rýmdir vegna sprengju­hót­ana í Skotlandi og á Norður-Írlandi

Skilaboðin minna á hótun frá síðasta mánuði sem reyndist gabb. Svipaðar hótanir bárust einnig skólum á Ítalíu, en ekki er vitað hvort málin tengjast.
Heimur

David Walliams sak­aður um að hafa tælt ung­lings­stúlkur

Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Heimur

Gam­an­leik­kona upp­lýsti Guardian um ásak­anir á hendur David Walliams

Heimur

Net­anyahu sak­aður um að nota kyn­þátta­hatur sem síð­asta tromp í valda­bar­átt­unn

Heimur

Kim Kar­dashian neyð­ist til að end­ur­greiða við­skipta­vinum