Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Milljón ástæður til að deyja en engin til að lifa af“

Bisan Owda lýsir stöð­unni á Gaza í til­finn­inga­þrungnu mynd­skeiði

„Milljón ástæður til að deyja en engin til að lifa af“
Bisan Owda Hin unga blaða­kona hefur meðal ann­ars unnið Emmy-verð­laun Mynd: X-ið

Hin marg­verð­laun­aða blaða­kona Bisan Owda, sem er býr á Gaza, birti til­finn­inga­þrungið mynd­skeið á Instagram þar sem hún lýsir lífs­hættu­legum aðstæðum almennra borg­ara á svæð­inu, þrátt fyrir full­yrð­ingar víða um heim um að hern­að­inum sé lokið.

Í mynd­skeið­inu segir Bisan frá atviki sem átti sér stað aðeins hálf­tíma áður en hún tók upp mynd­skeiðið. Hún lýsir miklum hávaða sem minnti á spreng­ingu og síðan örvænt­ing­ar­fullum öskrum ungs manns sem kall­aði á for­eldra sína þegar nágrannar flykkt­ust að í myrkr­inu.

„Ég er að tala til ykkar frá Gaza, þar sem það eru milljón ástæður til að deyja og engin til að lifa af. Fyrir um það bil þrjá­tíu mín­útum heyrði ég rosa­legan hvell, eins og spreng­ingu. Síðan heyrð­ist ungur maður öskra, kalla á föður sinn, móður sína, nöfn … og allt hverfið fór að safn­ast saman og öskra líka. Í myrkr­inu sá ég aðeins ljósin frá far­símum fólks­ins, rykið og rúst­irnar í kringum þau.“

Hún segir að um hafi verið að ræða hús­þak sem hrundi vegna óveð­urs, en ekki árásar. Vindur hafi verið um 60 kíló­metrar á klukku­stund og mikil rign­ing, sem hafi orðið til þess að hluti af fimm hæða bygg­ingu sem þegar var illa farin hafi fallið ofan á húsið þar sem fólk svaf.

„Vegna vinds­ins og vatns­veð­urs­ins féll loft eða þak úr nálægri bygg­ingu sem hafði þegar orðið fyrir skemmdum, ofan á heim­ilið sem þau voru að sofa í. Þetta er ekki í fyrsta skipti. Þetta hefur gerst aftur og aftur síð­ustu fimm vik­urnar. Ekki bara með hús heldur líka með tjöld.“

Bisan segir að á einni klukku­stund hafi fjögur hús hrunið á Gaza og að í flestum þeirra hafi fólk verið inni.

„Á síð­ustu einni klukku­stund hrundu fjögur heim­ili. Fjögur heim­ili á einni klukku­stund. Flest þeirra með fólki inni.“

Hún beinir orðum sínum að alþjóða­sam­fé­lag­inu og gagn­rýnir þá mynd sem dregin sé upp af því að átökum sé lokið.

„Þetta mynd­skeið er fyrir heim­inn fyrir utan, sem heldur að Ísrael hafi hætt þjóð­ar­morði sínu og að allt sé búið. Ekkert er búið fyrr en þetta fólk er öruggt.“

Bisan segir Ísrael koma í veg fyrir að nauð­syn­leg verk­færi ber­ist inn á Gaza, ekki aðeins til end­ur­upp­bygg­ingar heldur einnig til ein­faldra við­gerða sem gætu bjargað manns­lífum.

„Ísrael kemur í veg fyrir að verk­færi ber­ist inn á Gaza. Það er ekki bara verið að koma í veg fyrir að end­ur­upp­bygg­ing hefj­ist, heldur líka verk­færi sem þarf til að laga hluti, til að styrkja veggi svo fólk geti ein­fald­lega lifað af næt­urnar.“

Hún lýsir djúpri von­leysis­kennd og upp­lifun af því að líf Palest­ínu­manna sé metið lít­ils virði.

„Ég get bara ekki trúað því að líf okkar sé svona ódýrt. Líf okkar er svo ódýrt. Þessi heimur er ekki fyrir okkur. Hann er ekki fyrir fólk sem getur ekki keypt sér höll þegar það missir heim­ili sitt. Þessi heimur er ekki okkar.“

Í lokin rifjar hún upp umfang eyði­legg­ing­ar­innar und­an­farna mán­uði og spyr hvenær þessu muni ljúka.

„Á und­an­förnum vikum hafa yfir þús­und tjöld verið eyðilögð, flætt eða rifin í sundur, og tugir heim­ila hrunið ofan á fólkið sem bjó í þeim. Hvenær á þessu að ljúka?“

Mynd­skeið Bisan Owda hefur vakið sterk við­brögð á sam­fé­lags­miðlum og er enn ein áminn­ing um að mann­úð­ar­á­standið á Gaza er áfram afar alvar­legt, þrátt fyrir póli­tískar yfir­lýs­ingar um hið gagn­stæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta