Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Afríka breytti mér sem manneskju“

Kristján Gíslason um ævin­týrin sem breyttu öllu

„Afríka breytti mér sem manneskju“
Kristján Gíslason Kristján er nýjasti gestur Sölva Mynd: Skjáskot/YouTube

Kristján Gíslason ævin­týra­maður segir ferða­lög sín um heim­inn þveran og endi­langan hafa gjör­breytt lífs­sýn sinni. Kristján, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, hefur í meira en ára­tug annað hvort verið á flakki um heim­inn, að und­ir­búa næstu ferð eða vinna að bókum eða ferða­þáttum tengdum flakk­inu. Hann lauk nýverið sinni annarri ferð hring­inn í kringum heim­inn, þar sem hann upp­lifði enn og aftur magn­aða hluti:

„Það má segja að þetta sé alvöru ástríða hjá mér. Ég á í dag vini um allan heim eftir þessi ferða­lög, enda virka hlut­irnir þannig að þegar maður er einn á ferð kemur fólk til manns og allir vilja aðstoða. Þessi seinni ferð hring­inn í kringum hnött­inn byrj­aði af því að mig hafði alltaf langað að fara silki­leið­ina, hina fornu leið milli Evrópu og Kína, í gegnum -stan­löndin í Mið-Asíu. Þessi leið er þekkt sem ein fræg­asta við­skipta­leið mann­kyns­sög­unnar og mörg löndin sem hún liggur um voru áður hluti Sov­ét­ríkj­anna.”

Kristján segir að sér­stakasta landið sem hann kom til hafi án vafa verið Túrk­menistan, sem er ein­ræð­is­ríki og því varð hann að fara í gegnum landið með leið­sögu­manni:

„Ég var bíl­stjóra og leið­sögu­mann sem fylgdu mér hvert fót­mál. Þegar ég kom svo inn í Asgabad, sem er höf­uð­borgin í land­inu var ég alger­lega orð­laus yfir feg­urð­inni á bygg­ing­unum og því hver stór­feng­legt allt var. Hvítar marm­ara­hallir í röðum og meira að segja götu­ljósin eru lista­verk. Svo eru magn­aðir minn­is­varðar um allt við breið­göt­urnar og stærsta marm­ara-moska í heimi. Allir bíl­arnir eru hvítir eða ljós­gráir og fólk er sektað ef það er á óhreinum bíl. En það var ekki fyrr en ég var búinn að vera tals­verðan tíma í borg­inni sem ég átt­aði mig á því að eitt­hvað vant­aði. Eftir tals­verða umhugsun fatt­aði ég að það var ekk­ert fólk þarna!“

Í þætt­inum ræða Sölvi og Kristján um öll ævin­týri Krist­jáns, hvort sem það eru ferð­irnar í kringum heim­inn, flakkið um Banda­ríkin og Suður-Ameríku, eða ferð­ina í gegnum alla Afríku, sem Kristján segir hafa verið magn­aða:

„Afríka er í mínum huga magn­að­asta heims­álfan og það breytti mér sem mann­eskju að ferð­ast yfir alla Afríku. Ég upp­lifði gríð­ar­lega hjálp­semi og kær­leika hvert sem ég kom og það var bara magnað að átta sig á því hvað mynd manns af þessarri heims­álfu var skökk,” segir Kristján, sem lenti í ótrú­legum hlutum í Afr­íku­reis­unni, meðal ann­ars tveimur stjórn­ar­bylt­ingum:

„Ég skipu­legg mig alltaf vel áður en ég fer af stað og taldi mig vera búinn að kynna mér allt þó nokkuð vel. Ég vissi að það hefði oft verið slæmt ástand í Súdan, en ákvað samt að láta bara vaða að fara þangað eftir að ég fór í gegnum Egypta­land. En fyrsti dag­ur­inn í Súdan end­aði svo með því að ég kem að vega­tálma sem upp­reisn­ar­menn höfðu sett upp og mér var aftrað í því að halda áfram. Þá kemur á dag­inn að það byrj­aði stjórn­ar­bylt­ing í land­inu þennan sama dag og ástandið var orðið mjög ótryggt. Mér var tjáð að ég væri ekki öruggur, en gæti heldur ekki farið til baka. Á end­anum var mér siglt út á litla eyju í ánni Níl á pramma, þar sem fjöl­skylda sem bjó á eyj­unni skaut yfir mig skjóls­húsi. Þarna var ég algjör­lega sam­bands­laus við umheim­inn, læstur inni í Súdan og einu upp­lýs­ing­arnar voru áróður frá stjórn­völdum. En svo bár­ust fréttir um að það væri búið að opna aftur landamæra­stöð­ina til Egypta­lands, svo að ég brun­aði af stað og keyrði svo hratt að mót­or­hjólið end­aði á að gefa sig. Það var mjög skrýtin lífs­reynsla að vera þarna fastur og gjör­sam­lega ósjálf­bjarga og þurfa að treysta í einu og öllu á þessa fjöl­skyldu sem hýsti mig. Hitinn var óbæri­legur og vökva­skort­ur­inn orð­inn mik­ill líka. Mér skilst að lamb sé hægeldað í fimm­tíu gráðum, þannig að mér leið eig­in­lega eins og það væri verið að elda mig. En ég get varla lýst því hversu mikla hjálp­semi ég upp­lifði. Að vera staddur í miðjum átökum og vita ekki neitt, algjör­lega sam­bands­laus og fá þetta öryggi frá blá­ó­kunn­ugu fólki er eitt­hvað sem gerði mig svo þakk­látan að það er erfitt að færa það í orð.”

Ævin­týrum Krist­jáns í Afríku var alls ekki lokið og hann end­aði í annarri stjórn­ar­bylt­ingu í Eþíópíu. Þá gerði hann hlé á ferða­lag­inu, en end­aði svo á að þræða alla Afríku einn síns liðs á mót­or­hjól­inu. Hann seg­ist sjá heim­inn í algjör­lega nýju ljósi eftir öll ævin­týrin á und­an­förnum árum

„Þegar ég sett­ist í fyrsta skipti á mót­or­hjól var ég að verða sex­tugur. Mig hafði alltaf langað að eiga ævin­týra-ár áður en ég yrði of gam­all fyrir það. Auðvitað er það ákveðin fifldirfska að fara einn á alla þessa staði með ekki meiri reynslu á hjól­inu. En ég hef fengið svo stór verð­laun fyrir að hafa ákveðið að gera þetta og er gríð­ar­lega þakk­látur fyrir allt það sem ég hef lært á þessum ferða­lögum. Það að upp­lifa alla þessa gleði, ham­ingju og ein­fald­leika í sumum af fátæk­ustu hér­uðum þessa heims er eitt­hvað sem breytir manni sem mann­eskju. Það sem ég hef lært er að heim­ur­inn er ekki jafn­slæmur og maður myndi halda. Ég hef nær alls staðar upp­lifað hjálp­semi, sam­heldni, kær­leika og hreina mann­gæsku. Stærsta lexían er að fólk er gott.”

Hægt er að nálg­ast við­talið við Kristján og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur