Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Palestínumenn lýsa niðurlægjandi yfirheyrslum við heimkomuna til Gaza

„Þeir vilja ekki að fólk snúi heim. Þeir vilja frekar að sem flestir fari“

Móðir og barn
Móðir og barn Mæðgur bíða í rútu eftir að kom­ast frá Gaza Mynd: BASHAR TALEB / AFP

Palestínu­menn sem nýlega fengu að snúa aftur til Gaza í gegnum Rafah-landamæra­stöðin lýsa niður­lægjandi meðferð, yfirheyrslum og þrýstingi af hálfu ísraelskra yfirvalda. Sumir segjast jafnvel hafa verið beðnir um að veita Ísraelska hernum upplýsingar í skiptum fyrir að fá að snúa heim.

Sabah al-Raqab og fimm dætur hennar voru meðal 12 Palestínu­manna sem fengu leyfi frá ísraelskum yfir­völdum til að snúa aftur til Gaza eftir að Rafah-landa­mærin við Egypta­land voru að hluta opnuð á ný. Hún sagði í viðtali við Al Jazeera Arabic að fjöl­skyldan hefði lagt af stað frá egypsku borginni Arish um klukkan tvö að nóttu og komið að landa­mærunum klukku­stund síðar. Þau biðu þar í nokkrar klukku­stundir áður en egypsk yfirvöld hleyptu þeim áfram.

Eftir ítarlegar spurningar og leit af hálfu fulltrúa Evrópu­sambandsins og palestínska heima­stjórnin fengu þau loks að halda áfram. Þegar þau voru komin inn á Gaza-svæðið mættu þau hins vegar ísraelskum hermönnum nærri svokallaðri Morag-gönguleið, sem aðskilur Rafah frá öðrum hlutum Gasa.

Samkvæmt frásögn al-Raqab voru hún og fjöl­skylda hennar yfirheyrð af tveimur ísraelskum yfirheyrslu­mönnum sem töluðu reip­rennandi arabísku. Þeir buðu henni val: að yfirgefa Gaza á ný eða veita hernum upplýsingar.

„Við þurfum að þú verðir augu okkar og eyru,“ sögðu þeir að hennar sögn. Fjöl­skyldunni var loks hleypt áfram eftir að fulltrúar Evrópu­sambandsins gripu inn í, og héldu þau til Nasser-sjúkra­hússins í Khan Younis.

Svipaða sögu segir Rotana al-Riqib, palestínsk kona á fertugsaldri, sem sneri einnig aftur frá Egypta­landi í gegnum Rafah. Hún lýsir ferðinni sem „niður­lægjandi“ og segir að hún, móðir hennar og önnur kona frá Khan Younis hafi verið yfir­heyrðar af Ísraelum.

„Þeir leyfðu okkur ekki að taka neitt með okkur. Þeir tóku allt, jafnvel eigur barnanna minna. Við fengum aðeins að halda eftir fötum,“ sagði hún í samtali við AFP.

Rafah-landamæra­stöðin, sem er eina leið Gaza til umheimsins sem liggur ekki um Ísrael, hafði verið að mestu lokuð síðan ísraelskar hersveitir tóku hana yfir í maí 2024 í stríðinu við Hamas, þar sem þær frömdu þjóðar­morð á Palestínu­mönnum.

Al-Riqib segir að opnunin sýni að yfirvöld vilji ekki hleypa mörgum Palestínu­mönnum aftur inn á Gaza.

„Þeir vilja ekki að fólk snúi heim. Þeir vilja frekar að sem flestir fari,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Hvetur fólk til að eiga reiðufé.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu