Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fyrrum útrásarvíkingur reisir lúxushótel og þyrlupall á Snæfellsnesi

Talið er að um 300 störf skap­ist með upp­bygg­ing­unni

Fyrrum útrásarvíkingur reisir lúxushótel og þyrlupall á Snæfellsnesi
Ólafur Ólafsson Ólafur hyggst byggja lúx­us­hótel á Snæ­fells­nesi Mynd: Skjáskot

Félagið Lax­ár­bakki Resort ehf. hyggst ráð­ast í umfangs­mikla ferða­þjón­ustu­upp­bygg­ingu í Eyja- og Mikla­holts­hreppur á Snæ­fells­nesi. Þetta kemur fram í frétt Bænda­blaðs­ins.

Samkvæmt fyr­ir­tækja­skrá eru hjónin Ólafur Ólafsson og Ingi­björg Krist­jáns­dóttir stærstu eig­endur félags­ins.

Í mats­á­ætlun sem ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Verkís vann fyrir verk­efnið kemur fram að fyr­ir­hugað sé að reisa fimm stjörnu hótel í hæsta gæða­flokki með 45 her­bergjum. Meðal mann­virkja sem áformað er að byggja eru heilsu­m­ið­stöð, veit­inga­staður, þjón­ustu- og starfs­manna­hús auk allt að 19 sjálf­stæðra frí­stunda­húsa. Þá er einnig gert ráð fyrir þyrlu­palli, þar sem búast má við allt að fimm lend­ingum á dag. Aðgangur að svæð­inu verður fyrst og fremst ætl­aður gestum ferða­þjón­ust­unnar.

Jörðin Lax­ár­bakki spannar um 645 hekt­ara land­svæði. Hún afmarkast af Laxá í norðri og Stakk­ham­arsósi í vestri, sem telst hluti af Löngu­fjörur. Að austan liggur jörðin að Mikla­holti II og Blöndulæk í suðri. Lax­ár­bakki var áður nýttur til land­bún­aðar en hefur legið í eyði frá árinu 1947. Áætlað er að fram­kvæmdir hefj­ist árið 2027 og fari fram í nokkrum áföngum, þar sem stærsti áfang­inn eigi að ljúka árið 2030.

Í mats­á­ætl­un­inni kemur jafn­framt fram að fram­kvæmda­svæðið sé að hluta innan svo­kall­aðs C-hluta nátt­úru­minja­skrár, þar sem finna megi nátt­úru­svæði sem talin eru verðug frið­unar, þar á meðal Löngu­fjörur. Stór hluti svæð­is­ins fellur einnig innan mik­il­vægs fugla­svæðis sam­kvæmt gögnum Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands, auk þess sem þar er arnar­óðal. Fram­kvæmd­ar­að­ili seg­ist þó ætla að leggja áherslu á að mann­virki, vegir og bíla­stæði sam­ræm­ist lands­lagi og nátt­úru eins vel og kostur er, og að rask á fram­kvæmda­tíma verði haldið í lág­marki. Gert er ráð fyrir að starf­semin geti skapað allt að 300 var­an­leg störf, en starfs­fólk mun að stórum hluta dvelja tíma­bundið í sér­stökum starfs­manna­húsum.

Athuga­semda­frestur vegna verk­efn­is­ins í skipu­lags­gátt rann út 14. jan­úar. Í umsögn frá Ungir umhverf­is­sinnar er varað við því að upp­bygg­ingin muni ganga á verð­mæt vist­kerfi og líf­ríki. Þar er hvatt til þess að sam­bæri­leg ferða­þjón­ustu­verk­efni verði fremur stað­sett á svæðum þar sem inn­viðir eru þegar til staðar, í stað þess að raska ósnortnum og alþjóð­lega mik­il­vægum nátt­úru­svæðum.

Ólafur Ólafsson á jafn­framt fleiri jarðir á sunn­an­verðu Snæ­fells­nesi, en sam­kvæmt frétt RÚV frá árinu 2019 á hann einnig Borg, Eiðhús og Miðhraun í grennd við Lax­ár­bakka. Ólafur og Ingi­björg eiga fast­eigna­fé­lagið Festi, þar sem Ólafur gegnir for­mennsku í stjórn, auk þess sem þau eiga meiri­hluta í Samskip og Land­flutn­ingum.

Ólafur er einn fjög­urra svo­kall­aðra útrás­ar­vík­inga sem dæmdir voru til fang­els­is­vistar á Kvía­bryggju þann 12. febr­úar 2012 fyrir efna­hags­brot.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Peningar

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
  • Peningar

    Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega