Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Inga sakar stjórnarandstæðinga um málþóf í umræðu um kjarabætur fyrir fátækasta fólkið

„Við erum búin að þurfa að horfa upp á það hverjir eru raun­veru­lega þeir sem að vilja halda fátæk­asta fólkin okkar áfram í fátækt.“

Inga sakar stjórnarandstæðinga um málþóf í umræðu um kjarabætur fyrir fátækasta fólkið
Inga Sæland Inga hvetur almenn­ing til þess að horfa á umræð­una á Alþingi í dag Mynd: Víkingur

Inga Sæland, mennta- og barna­mála­ráð­herra, sakar Mið­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn um mál­þóf og að vilja halda fátæk­asta fólki lands­ins áfram í fátækt, í mynd­bandi sem hún birti í dag í tengslum við umræður á Alþingi um almanna­trygg­ingar og teng­ingu þeirra við launa­þróun.

Í mynd­band­inu hvetur Inga fólk til að fylgj­ast með umræðum á Alþingi eftir lok óund­ir­bú­ins fyr­ir­spurn­ar­tíma.

Hún segir umræð­urnar varpa skýru ljósi á það hverjir standi gegn breyt­ingum sem miði að því að bæta kjör tekju­lægstu hópa sam­fé­lags­ins. „Við erum búin að þurfa að horfa upp á það hverjir eru raun­veru­lega þeir sem að vilja halda fátæk­asta fólkin okkar áfram í fátækt. Það eru Mið­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­arslokk­ur­inn sem eru búin að standa í mál­þófi hér og finna því öllu til for­áttu.“

Inga segir að allt hafi verið gert til að koma í veg fyrir bætur til þeirra sem verst standa. „Það er allt fundið því til for­áttu til þess að koma í veg fyrir það að tekju­lægsta fólkið okkar fái ein­hverjar kjara­bætur. Það er allt gert þess að koma í veg fyrir það að við getum stöðvað þá kjaragliðnun sem almanna­trygg­inga­þegar hafa mátt þola núna á seinni árum. Allt gert.“

Hún hvetur kjós­endur til að velta því fyrir sér hverjum þeir treysta í þessum málum. „Þið sem eru til­búin til þess að setja ykkar dýr­mæta atkvæði á til dæmis Mið­flokk­inn, sem berst með kjafti og klóm gegn því að við getum raunvuru­lega leið­rétt kjaragliðnun almanna­trygg­inga­þega. Að við getum raun­veru­lega lyft upp fátæk­asta fólk­inu. Sjálf­stæð­islokk­ur­inn algjör­lega á sama vagni. Þetta er óþol­andi með öllu.“

Að hennar sögn er alger­lega óraun­hæft að ætla að árangur náist ef þessir flokkar kom­ist til valda. „Það er óþol­andi með öllu ef þið virki­lega trúið því að þið fáið að halda nokkru af þeim árangri sem að við höfum verið að berj­ast fyrir ef að þessir aðilar myndu koma að stjórn­inni.“

Inga segir jafn­framt rang­færslur vera settar fram í umræð­unni um aðgerðir stjórn­valda og hvetur fólk til að fylgj­ast með Alþing­is­sjón­varp­inu.

„Hlustið á það hvernig það er reynt að gefa það í skyn að með því að við séum að koma í veg fyrir áfram­hald­andi kjaragliðnun og aðstoða tekju­lægsta fólkið okkar, þá muni það setja þjóð­ar­skút­una á haus­inn.“

Hún vísar einnig til ummæla innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Þetta er eins og Guðrún Haf­steins­dóttir sagði, „Af öllum vondum þing­málum Flokks fólks­ins og þess­ara stjórnar þá er þetta það allra versta“. Það senn­lega vegna þess að þetta er það þing­mál sem mun hugs­an­lega koma og tryggja mestu kjara­bót fyrir almanna­trygg­inga­þegna.“

Þá hvetur hún almenn­ing ein­dregið til að fylgj­ast með umræð­unum í beinni útsend­ingu

„Sjáið það í beinni útsend­ingu hvernig er verið að koma fram og hvernig alþing­is­menn eru að tala um fátæk­asta fólkið í land­inu. Þetta er algjör­lega óþol­andi að þurfa að sitja undir því ítrekað. Ítrekað. Að þurfa að verja það. Verja það með kjafti og klóm að sé haldið áfram að nýð­ast svona á fátæk­asta fólk­inu.“

Hún bætir við að sam­bæri­legar deilur hafi áður komið upp, meðal ann­ars þegar rætt var um per­sónu­af­slátt. „Það var líka barist gegn því þegar við vorum að reyna og gerðum það raun­veru­lega að koma í veg fyrir það að per­sónu­af­sláttur yrði tek­inn af fólk­inu okkar sem býr hér erlendis. Meiri segja fólkið okkar sem býr erlendis, það var fljótt að gleyma því að þetta gaf þeim yfir 600.000 krónur á ári af því þau vildu fá þessar 70.000 krónur í jóla­bónus.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum