Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Nálægð við innsta hring Epsteins

„Ég get ekki úti­lokað það 100 pró­sent“

Nálægð við innsta hring Epsteins

Gögn sem komu fram í Epstein-skjöl­unum gefa til kynna að Dorrit Moussaieff hafi verið félags­lega stað­sett nær innsta kjarna umhverfis Jeffrey Epstein en áður hafði verið gert ráð fyrir. Dorrit hefur um ára­bil verið virkur þátt­tak­andi í félags­lífi breskrar yfir­stéttar og liggur fyrir að hún var meðal gesta í 51 árs afmæli Ghislaine Maxwell, sam­verka­konu Epsteins, sem nú afplánar fang­els­is­dóm. Meðal ann­arra gesta þar var einnig Andrés prins, sem síðar var ýtt út úr bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni.

Í umfjöllun Mannlífs er leit­ast við að varpa ljósi á raun­veru­leg tengsl Dorritar við Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell, meðal ann­ars í gegnum tvo tölvu­pósta sem vísa til Dorritar. Í öðrum þeirra greinir rit­höf­und­ur­inn og nýald­ar­spek­ing­ur­inn Deepak Chopra Epstein frá því að Dorrit og „íslenski eig­in­maður hennar“ séu stödd á The St. Regis Aspen Resort, lúx­us­hót­eli í Aspen í Colorado, þar sem Chopra stýrði hug­leiðslu. Þetta átti sér stað árið 2016, skömmu eftir að Ólafur Ragnar Grímsson lét af emb­ætti for­seta Íslands.

Hinn tölvu­póst­ur­inn var sendur á milli ein­stak­linga sem taldir eru til innsta hrings Epsteins og varðar Dorrit á tíma hennar sem for­seta­frú árið 2011. Sendandi pósts­ins var Ghislaine Maxwell og við­tak­and­inn Leon, sem talið er að sé auð­kýf­ing­ur­inn Leon Black. Hann greiddi Epstein sam­tals 158 millj­ónir Banda­ríkja­dala á árunum 2012 til 2017 og var helsta tekju­lind hans á þeim tíma.

Í póst­inum skrifar Maxwell:

„Hæ Leon. Ghislaine hér. Ég sat með Dorrit sem sagði mér að ég ætti að senda þér tölvu­póst strax!“

Síðar framsendi hún skila­boðin til Epsteins honum til upp­lýs­inga. Tilefni pósts­ins var að bjóða þjón­ustu Maxwell við að velja fólk í stjórnir fyr­ir­tækja. Árið eftir hóf Epstein að fá mjög háar greiðslur frá Black, allt að 40 millj­ónir dala á ári, fyrir ráð­gjaf­ar­þjón­ustu. Í kjöl­farið jókst spenna í sam­skiptum þeirra. Samkvæmt grein­ingu The New York Times lagði Black síðar hund­ruð þús­unda dala, jafn­vel tug­millj­ónir króna, inn á banka­reikn­inga að minnsta kosti þriggja kvenna sem tengd­ust Epstein. Black sjálfur hafði verið sak­aður um nauðgun af minnst tveimur konum í húsi Epsteins á Man­hattan í New York.

Í við­tali við Mannlíf er Dorrit spurð beint hvort hún þekki Leon Black og hafi hitt hann:

„Já, ég þekki Black-fjöl­skyld­una. Ég hef þekkt þau í marga ára­tugi. Þau eru vinir mínir.“

Þegar hún er spurð hvort hún úti­loki að hafa setið með Ghislaine Maxwell og rætt um Leon Black, líkt og tölvu­póst­ur­inn gefur til kynna, svarar hún:

„Ég get ekki úti­lokað það 100%, en ég sé nákvæm­lega enga ástæðu fyrir því að ég hefði átt að nefna hann, sér­stak­lega í þessu sam­hengi. Herra Black er mik­ill lista­safn­ari. Ég gæti hafa minnst á list hans, en örugg­lega ekki við­skipti hans. Og ég skil satt best að segja ekki hvers vegna ég hefði nefnt þetta við Ghislaine. Fyr­ir­tæki hans er skráð á markað. Síðasta mann­eskjan sem þyrfti að gefa þeim ráð er Ghislaine eða ég.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina