Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Valur er fótbrotinn og fastur í Afríku

„Oftast hefði verið gott að fá rit­laun en sjaldan hefði það verið jafn gott og nú“

Valur er fótbrotinn og fastur í Afríku
Valur Gunn­ars­son Valur hefur átt betri daga Mynd: Facebook-skjáskot

Valur Gunn­ars­son, blaða­maður og rit­höf­undur, er í miklum vand­ræðum í Afríku en í Facebook-færslu í gær birti hann ljós­mynd af sér og lýsti raunum sínum.

Rit­höf­und­ur­inn ævin­týra­legi hefur verið að und­an­förnu notið lífs­ins í Naíróbí, höf­uð­borgar Kenía, þar sem hann vinnur nú að nýrri bók, en langar nú heim.

„Þá er maður víst fót­brot­inn og fastur í Afríku, með lokað kredit­kort og langar heim.“ Þannig hefst færsla Vals en hann heldur áfram og segir bank­ann hafa hafnað yfir­drátt­ar­heim­ild­inni og að reikn­ingar hafi komið um mán­að­ar­mótin.

„Oftast hefði verið gott að fá rit­laun en sjaldan hefði það verið jafn gott og nú,“ bætir Valur við að lokum en segir svo að lík­lega séu fleiri í Afríku sem væru til í að fá laun.

Vissi ekki af fótbrotinu

Mannlíf ræddi við Val og spurði hann út í fót­brotið og stöð­una.

„Ég gerði þau mis­tök að fara út í búð. Reyndar hafði ég verið á leið­inni allan dag­inn en það var hellidemba og þegar veðr­inu loks­ins slot­aði fór ég út en þá var farið að dimma. Ég vissi ekki að á öllum gang­stéttum hér eru stór, ómerkt göt til að safna vatni en komst að því þarna. Ég datt ofan í eitt og kram­bóler­að­ist en það gekk yfir. Það var svo ekki fyrr en tveim mán­uðum seinna eftir að hafa gengið út um allt að ég kom­ast að því að ég er fót­brot­inn og má helst ekki ganga.“

En hvar í Afríku er Valur staddur?

„Ég er að skrifa bók um Banda­ríkin á 21. öld og stríðið gegn hryðju­verkum. Það byrj­aði hér í Naíróbí, með hryðju­verka­árás árið 1998 sem kost­aði 220 manns lífið, og í fram­hald­inu gerðu Banda­ríkin árás á Afganistan. Hér hófst sú atburða­rás sem í raun enn sér ekki fyrir end­ann á og árásin á Íran er fram­hald af.“

Valur seg­ist hafa liðið mjög vel í Kenía en nú sé kom­inn tími til að snúa aftur til Íslands.

„Kenía er ann­ars með besta lofts­lag í heimi, hver dagur er með besta veður sem hægt er að ímynda sér enda erum við upp­runa­lega kenísk dýra­teg­und og hönnuð fyrir þessar aðstæður. Ég ákvað því að hafa hér vet­ur­setu og í ein­hverri merk­ingu er maður kom­inn heim. En nú langar mig aftur til Íslands.“

Tvírukkaður í hraðbanka

Aðspurður út í pen­inga­vand­ræðin segir Valur að mán­að­ar­mót séu alltaf erfið fyrir rit­höf­unda sem ekki hljóta rit­laun en að yfir­leitt redd­ist þetta. Hann hafi hins vegar lent í vand­ræðum með hrað­banka í Kenía sem vað til þess að hann var tví­rukk­aður.

„Mán­að­ar­mót eru ávallt erfið fyrir rit­launa­lausa rit­höf­unda, þá koma reikn­ing­arnir inn en engin laun. Þetta hefði samt getað sloppið, nema hvað að ég fór í hrað­banka til að taka út fyrir leig­unni. Hrað­bank­inn hikstaði og fraus en skil­aði kort­inu svo ég fór annað og tók út fyrir leig­unni. Þegar ég svo skoð­aði yfir­litið sá ég að ég hafði verið tví­rukk­aður fyrir færsl­una, og þar með var orðið úti­lokað að borga kreditt­korta­reikn­ing­inn.“

Valur grín­ast með að rit­launa­nefndin hafi senni­lega „keypt sig inn í Íslands­banka til að koma höggi“ á hann.

„Ég sótti um yfir­drátt heima en fékk ekki, mig grunar að rit­launa­nefnd hafi keypt sig inn í Íslands­banka til að koma höggi á mig. Í dag fer ég svo í fjórða sinn í afríska bank­ann til að reyna að fá end­ur­greitt. Í milli­tíð­inni er ég að fara í gegnum hverjir skulda mér pen­ing, það eru alltaf ein­hver van­goldin laun ein­hvers staðar og vantar ekki mikið upp á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur