Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Segir ísraelska leyniþjónustumenn hafa planað sprengjuárásir í Sádí-Arabíu og Katar

„Eru þau ekki á sama bandi?“

Tucker Carlson
Tucker Carlson Carlson er ekki vin­sæll í Ísrael Mynd: OLIVIER TOURON / AFP

Bandaríski álits­gjafinn og hlaðvarps­stjórn­andinn Tucker Carlson heldur því fram að stjórn­völd í Sádi-Arabíu og Katar hafi handtekið ísraelska Mossad-njósnara sem hafi verið að undirbúa sprengju­árásir í löndunum tveimur. Þetta kemur fram í frétt Middle East Eye og er sagt í skugga aukinnar spennu á svæðinu eftir sameiginlegar árásir Banda­ríkjanna og Ísraels á Íran.

Í þætti sínum í gær sagði Carlson að Sádi-Arabía og Katar hefðu „handsamað og handtekið ísraelska Mossad-fulltrúa sem ætluðu að fremja sprengju­árásir þar í landi“. Hann dró í efa hvatir Ísraela og spurði: „Af hverju myndu Ísraelar fremja sprengju­árásir í Persaflóa­ríkjum sem einnig eru undir árásum Írans?“

Hann bætti við: „Eru þau ekki á sama bandi?“

Carlson hélt því ennfremur fram að „Ísrael vilji veikja Íran, og Katar, og Sameinuðu arabísku fursta­dæmin, og Sádi-Arabíu, og Barein, og Óman og Kúveit“ og fullyrti að Ísrael reyni markvisst að skapa óstöðug­leika meðal arabískra banda­manna Washington.

Í febrúar var Carlson og tökulið hans um stundar­sakir handtekin af ísraelskum öryggis­yfirvöldum í Tel Aviv eftir að hann tók viðtal við sendi­herra Banda­ríkjanna í Ísrael, Mike Huckabee.

Í viðtalinu sagði Huckabee að gyðingar hefðu „guðlegan rétt“ til að nema land Palestínu­manna og hafnaði hugmyndinni um sérstaka palestínska þjóðernis­vitund.

Viðtalið fylgdi opinberum deilum þeirra á samfélags­miðlum, þar sem Carlson gagnrýndi „sjokkerandi“ meðferð Ísraela á kristnum mönnum og sakaði Huckabee um að gera ekki nóg til að vernda kristna sem hefðu orðið fyrir árásum ólöglegra land­tökumanna á hernumda Vestur­bakkanum og í Jerúsalem.

Árið 2025, eftir heimsókn Carlson til palestínskra flótta­manna frá Gaza í Katar þar sem hann vakti athygli á morðum á börnum, var hann útnefndur „gyðinga­hatari ársins“ af bandarískum hagsmuna­samtökum sem styðja Ísrael. Samtökin vísuðu þar til andstöðu hans við aðgerðir Ísraels á Gaza, sem hann hefur kallað þjóðar­morð.

Ummæli Carlsons koma á sama tíma og hernaðar­aðgerðir Banda­ríkjanna og Ísraels gegn Íran halda áfram. Í árásunum hafa meðal annars látist æðsti leiðtogi Írans, Ali Khamenei, hátt­settir embættis­menn og hundruð almennra borgara. Harðasta árásin hingað til var á laugardag þegar yfir hundrað stúlkur létust í loftárás á skóla í suður­hluta Írans.

Íran hefur brugðist við með árásum á bandarískar herstöðvar á svæðinu og raskað mikil­vægum olíu­flutninga­leiðum. Þá hafa þó nokkur flug­skeyti hæft skotmörk í Ísrael.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu