Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á brunanum í vöruskemmu við Gufunesveg í Grafarvogi í Reykjavík í janúar er lokið en greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglu.
Samkvæmt niðurstöðu eldsupptakarannsóknar tæknideildar lögreglu er talið líklegast að eldsupptök hafi orðið út frá hleðslutæki fyrir lyftara, en tveir lyftarar voru í sambandi og hleðslu þegar eldurinn kviknaði. Engin merki fundust um íkveikju eða gáleysi með eldhvetjandi efni.































Athugasemdir