Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Laugardagsrúntur fjölskyldu endaði með blóðbaði

Sex lögðu af stað í fjöl­skyldu­ferð­ina en aðeins tveir komu til baka

Laugardagsrúntur fjölskyldu endaði með blóðbaði
Ísra­elskir her­menn Ísrelskir her­menn á Vest­ur­bakk­anum Mynd: JAAFAR ASHTIYEH / AFP

Sex með­limir palest­ínskrar fjöl­skyldu fóru saman í bíltúr á Vest­ur­bakk­anum, en aðeins tveir þeirra komust lif­andi heim. New York Times sagði frá mál­inu, meðal ann­arra.

Ali Bani Odeh hafði ekki séð eig­in­konu sína og fjóra unga syni þeirra í um einn og hálfan mánuð þegar hann kom heim til Tammun á Vest­ur­bakk­anum seint á föstu­dags­kvöld eftir vinnu við bygg­ing­ar­störf í Ísrael. Hann ætl­aði að eyða síð­ustu dögum Ramadan með fjöl­skyld­unni.

Á laug­ar­dags­kvöld sann­færðu syn­irnir hann um að fara með sér í stuttan bíltúr. Eid al-Fitr, hátíðin sem markar lok Ramadan, var í nánd og þeir vildu kaupa sér ný föt og fá sér sæl­gæti eftir að dags­föst­unni lauk.

Fjöl­skyldan keypti steikta kleinu­hringi í Tubas og ætl­aði að borða þær síðar. Fata­versl­unin sem þau ætl­uðu í í Nablus reynd­ist þó lokuð þegar þau komu þangað eftir mið­nætti og því héldu þau aftur heim til Tammun.

Í aft­ur­sæt­inu sátu Khaled, 11 ára, Mustafa, 8 ára, og Muhammad, 5 ára. Othman, sex ára, sem er blindur og getur hvorki gengið né borðað sjálfur, sat í fang­inu á móður sinni í fram­sæt­inu.

Skothríð skammt frá heimili þeirra

Þegar fjöl­skyldan var aðeins nokkrar mín­útur frá heim­ili sínu sagði móð­irin, Waad, 35 ára, eig­in­manni sínum að stoppa bíl­inn svo hún gæti rétt úr sér og náð í eitt­hvað úr tösku sinni.

Að sögn drengj­anna sáu þeir skyndi­lega ley­sigeisla bein­ast að bílnum úr öllum áttum. Þeir heyrðu móður sína öskra og föður sinn segja „Guð er mik­ill“ áður en mikil skot­hríð hófst.

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu frá ísra­elsku lög­regl­unni og hernum á sunnu­dags­morgun sagði að landamæra­lög­regla og her­menn hefðu verið í Tammun til að hand­taka grun­aða hryðju­verka­menn. Þar hafi þeir „skynjað hættu“ þegar öku­tæki „hrað­aði sér í átt að þeim“ og þeir því „brugð­ist við með skot­hríð“. Málið sé til rann­sóknar.

Frá­sagn­irnar eru mjög ólíkar en eitt er óum­deilt: Ali Bani Odeh, 37 ára, eig­in­kona hans Waad og syn­irnir Othman og Muhammad lét­ust öll af skotsárum.

Aukið ofbeldi á Vesturbakkanum

Á Vest­ur­bakk­anum, sem er undir her­námi Ísraels, hefur spenna auk­ist veru­lega und­an­farið. Öfga­fullir ísra­elskir svo­kall­aðir land­nemar hafa verið sak­aðir um að ráð­ast á palest­ínska íbúa og mann­fall hefur auk­ist.

Samkvæmt heim­ildum hafa sjö Palest­ínu­menn verið drepnir það sem af er ári, flestir eftir að átök milli Ísraels og Írans hófust 28. febr­úar.

Ísra­elski her­inn segir að hann for­dæmi ofbeldi land­nema og vinni að því að koma í veg fyrir það. Lög­reglan segir einnig að hún rann­saki slík brot, þó að gagn­rýnendur telji að ofbeld­is­menn séu sjaldan dregnir til ábyrgðar.

Tammun er þó djúpt inni á svæði sem palest­ínsk yfir­völd stjórna og er langt frá svæðum þar sem átök svo­kall­aðra land­nema og Palest­ínu­manna eru algeng.

Tveir drengir lifðu af

Tveir synir fjöl­skyld­unnar, Khaled og Mustafa, lifðu árás­ina af.

Mustafa var með sár á nef­inu eftir brot úr byssu­kúlu. Hann sagð­ist hafa reynt að draga yngsta bróður sinn, Muhammad, til sín til að hjálpa honum en þá hafi hann þegar verið lát­inn.

Khaled, sem er í sjötta bekk, sagði að eftir að skot­hríð­inni lauk hafi hann opnað bíl­hurð­ina og kallað eftir hjálp.

Hann segir að her­menn hafi skipað honum að þegja og að einn þeirra hafi dregið hann út úr bílnum í hár­inu, kastað honum í jörð­ina og sparkað í hann á meðan hann var yfir­heyrður um hvort fleiri hefðu verið í bílnum.

Síðar hafi arab­ísku­mæl­andi her­maður talað vin­gjarn­lega við hann og kallað hann „habibi“ (minn kæri), en sparkað síðan í hann aftur.

Drengirnir fengu að ganga í átt að palest­ínskum sjúkra­bíl sem beið um hund­rað metra frá. Þegar Khaled leit aftur inn í bíl fjöl­skyld­unnar sá hann for­eldra sína látna.

„Ólýsanlegt“

Afi drengj­anna sagði að tengda­dóttir hans hefði verið skotin nokkrum sinnum í höfuð og brjóst og að fimm ára gamli Muhammad hefði fengið mörg skotsár í and­lit.

„Það er ólýs­an­legt,“ sagði Khaled, ell­efu ára. „Einni eða tveimur klukku­stundum áður vorum við í Nablus. Þau fóru með okkur á marga staði. Þau keyptu handa okkur kleinu­hringi. Svo vorum við bara á leið­inni heim.“

Kleinu­hringirnir sem fjöl­skyldan keypti fyrr um kvöldið voru enn ósnertir í pok­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife