Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir orðalag Miðflokksins rangt í þingályktunartillögu

„Getur verið að orðið „hylm­ing“ sé þarna rang­lega notað vit­andi vits?“

Segir orðalag Miðflokksins rangt í þingályktunartillögu
Eiríkur og frú Brot á lögum ef þings­á­lykt­unin verður sam­þykkt? Mynd: Facebook

Eiríkur Rögn­valds­son, upp­gjafa­pró­fessor í íslenskri mál­fræði, gagn­rýnir orða­lag í nýrri þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Mið­flokks­ins þar sem lagt er til að und­ir­búa lög um „bann við hylm­ingu and­lits“.

Í færslu á sam­fé­lags­miðlum bendir Eiríkur á að hug­taka­notk­unin sé röng og útskýrir að „þarna er nafn­orðið „hylm­ing“ látið sam­svara sögn­inni „hylja“ sem er rangt – „hylm­ing“ er lög­fræði­legt íðorð, leitt af sögn­inni „hylma“ en ekki „hylja“, og hefur aðra merk­ingu sam­kvæmt bæði Íslenskri nútíma­máls­orða­bók og Lög­fræði­orða­safni (vísar til auðg­un­ar­brots).“

Hann seg­ist í fyrstu hafa talið um ein­föld mis­tök að ræða og hafi bent á að annað orð hefði átt betur við: „Í fyrstu hélt ég að hinir sjálf­skip­uðu vernd­arar íslensk­unnar í Mið­flokknum hefðu þarna skriplað á skötu eins og getur komið fyrir besta fólk, og skrif­aði um þetta pistil þar sem ég benti á að orðið „huln­ing“ væri fornt orð sem hefði átt þarna við – en ekki „hylm­ing“.“

Við nán­ari skoðun hafi hann þó farið að efast um að um mis­tök sé að ræða. Hann bendir á að meðal flutn­ings­manna til­lög­unnar séu sér­fræð­ingar sem ættu að þekkja rétt orða­lag: „Í hópi til­löguflytj­enda er bæði lög­fræð­ingur og íslensku­fræð­ingur sem hefðu átt að vita betur og átta sig á að „hylm­ing“ á ekki við þarna.“

Eiríkur veltir því upp hvort orða­valið kunni að vera með­vitað: „Getur verið að orðið „hylm­ing“ sé þarna rang­lega notað vit­andi vits til að vekja nei­kvæðar kenndir hjá þing­mönnum og almenn­ingi?“

Hann tekur þó fram að hann geti ekki full­yrt um slíkt, en segir það mögu­lega sam­ræm­ast umræðu sem hann telur vera í gangi: „Ég get auð­vitað ekk­ert full­yrt um það, en það væri þá í anda þeirrar áróð­urs­her­ferðar sem Morg­un­blaðið og Mið­flokk­ur­inn eru nú í gagn­vart múslimum.“

Í annarri Facebook-færslu birtir Eiríkur ljós­mynd frá árinu 2020 sem sýnir hann og eig­in­konu hans með grímur fyrir and­lit­inu. Við færsl­una skýtur hann á Mið­flokk­inn og segir: „Hér má sjá skýrt brot á vænt­an­legum lögum um "bann við hylm­ingu and­lits".“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum