Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Eiríkur segir Guðrúnu hafa farið með „vísvitandi lygi“

„Með aðgerðum sínum tókst fáeinum fórn­fúsum Íslend­ingum, aðal­lega konum, að bjarga tugum sak­lausra kvenna og barna úr bráðri lífs­hættu“

Eiríkur segir Guðrúnu hafa farið með „vísvitandi lygi“
Guðrún Haf­steins­dóttir Eiríkur hjólar í Guðrúnu í nýrri Facebook-færslu Mynd: Víkingur

Eiríkur Rögn­valds­son pró­fessor emeritus gagn­rýnir Guðrúnu Haf­steins­dóttur, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, harð­lega fyrir ummæli sem hún lét falla í þætt­inum Spursmál fyrir jól. Hann sakar hana um að hafa farið með ósann­indi um aðkomu Íslend­inga að því að flytja fólk frá Gasa en sam­tökin Solaris hefur nú kært Guðrúnu fyrir meið­yrði vegna ummæla hennar.

Í Facebook-færslu segir Eiríkur að það sé „hafið yfir allan vafa“ að Guðrún hafi ekki sagt satt þegar hún hélt því fram að „ein­stak­lingar hér í sam­fé­lag­inu voru að fara að landa­mær­unum í Egypta­landi, til þess að ná fólki út sem eng­inn vissi deili á.“

Að sögn Eiríks hafi Guðrún vitað betur og bendir hann á að um hafi verið að ræða konur og börn sem þegar höfðu fengið hæli á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar og væru skráð hjá ráðu­neyti hennar.

Hann segir:

„Það er þess vegna lygi, vís­vit­andi lygi, að „eng­inn vissi deili á“ þessu fólki. Það var allt skráð hjá ráðu­neyti Guðrúnar.“

Kýs að trúa Solaris

Í færsl­unni fjallar Eiríkur einnig um ummæli Guðrúnar um meintar mútu­greiðslur í tengslum við flutn­ing fólks yfir landa­mæri. Hann segir ekki hægt að full­yrða um slíkt en bendir á að sam­tökin Solaris hafi neitað því að mútur hafi verið greiddar og að hann kjósi að trúa þeim þar til annað kemur í ljós.

Hann gagn­rýnir jafn­framt að slíkar ásak­anir séu settar fram án sönn­un­ar­gagna og segir þær alvar­legar í ljósi þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi lengi lagt áherslu á rétt­ar­ríkið og meg­in­regl­una um að fólk sé sak­laust uns sekt sé sönnuð.

„Sann­leik­ur­inn verður auka­at­riði, eins og hjá Trump – það er nóg að sá fræjum þess að eitt­hvað vafa­samt sé á ferðum og þá er býsna erfitt að bera það til baka.“

Segir mannúð gleymast í umræðunni

Eiríkur telur að meg­in­at­riði máls­ins hafi fallið í skugg­ann í umræð­unni. Hann segir að með aðgerðum fáeinna Íslend­inga hafi tek­ist að bjarga tugum kvenna og barna úr lífs­hættu.

„Með aðgerðum sínum tókst fáeinum fórn­fúsum Íslend­ingum, aðal­lega konum, að bjarga tugum sak­lausra kvenna og barna úr bráðri lífs­hættu – fólki sem þegar hafði fengið hæli á Íslandi en ráðu­neyti Guðrúnar og Bjarna Ben höfðu ekki sinnt að koma til bjargar.“

Að hans mati er gagn­rýni­vert að sú stað­reynd hafi fengið litla athygli í sam­an­burði við umræður um mögu­leg brot.

Bæti hann við að lokum:

„Hvað sem um meinta glæpi Palest­ínu­manna á Íslandi er að segja er ljóst að þeir eru ekki framdir af þessum konum og börnum og það lýsir svo átak­an­legum skorti á mannúð og mann­kær­leika að nefna þetta ekki heldur horfa ein­göngu á meintar mútu­greiðslur að manni er orða vant.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum