Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Ég fæ einstaka sinnum einhver skítaskilaboð“

Rakel María Hjalta­dóttir gerir sitt besta til að vera ein­læg

„Ég fæ einstaka sinnum einhver skítaskilaboð“
Rakel María Hjalta­dóttir Hún elskar svo sann­ar­lega að ferð­ast Mynd: Instagram/Rakel María Hjaltadóttir

Rakel María Hjalta­dóttir, hlaup­ari og mark­aðs­stjóri, seg­ist vera þakk­lát á hverjum degi fyrir að fá að starfa við að skapa og deila efni á sam­fé­lags­miðlum. Hún er nýjasti gest­ur­inn í hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar og er nýlega snúin heim úr ferð til Afríku sem hún segir hafa haft djúp­stæð áhrif á sig sem mann­eskju.

Rakel hvetur fólk til að stíga út fyrir þæg­ind­ara­mmann, taka áhættu og læra að segja já við nýjum tæki­færum.

„Ég trúi því að maður eigi alltaf að segja já við öllum tæki­færum. Líka því sem hræðir mann. Það var aldrei planið hjá mér að verða áhrifa­valdur eða vinna við að setja efni á sam­fé­lags­miðla. Ég held að ég hafi verið með 3 þús­und fylgj­endur þegar ég fékk boð frá Mjólk­ur­sam­söl­unni um að fara í sam­starf varð­andi Hleðslu þegar ég var að keppa sem mest í hlaup­unum. Svo leiðir eitt af öðru og bolt­inn fór að rúlla. Þegar ég var farin að fá borgað fyrir þetta og sá að það gæti verið gott tæki­færi í þessu tók ég bara ákvörðun um að gera þetta mark­visst og almenni­lega. Sleppti rödd­inni í hausnum á mér sem var að ofhugsa og ákvað að þeir sem hefðu ekki áhuga gætu bara „unfollowað“ mig. Strax eftir þetta fór þetta á flug og ég fór að fá fleiri og fleiri tæki­færi. Svo núna er ég með meira en 20 þús­und Íslend­inga að fylgja mér og ég er svo inni­lega þakk­lát fyrir þetta sam­fé­lag sem ég er með þarna. Ég fæ dag­lega fal­leg skila­boð frá fólk­inu sem fylgir mér og næ stundum ekki utan um það að þetta sé atvinnan mín í dag. Mér finnst það algjör for­rétt­indi að fá borgað fyrir að búa til efni á sam­fé­lags­miðlum. Auðvitað getur þetta verið mikil vinna og þegar maður er að vinna með fyr­ir­tækjum þarf ég að setja ákveðið magn af efni inn. Af því að ég vil ekki að mið­ill­inn minn sé bara ein stór aug­lýs­ing, þýðir það að ég set þá inn þeim mun meira efni sem er ekki hluti af neinu sam­starfi. Ég geri mitt besta til þess að vera ein­læg og koma til dyr­anna eins og ég er klædd og það skilar sér von­andi,“ segir Rakel, sem segir hluta af því að vinna við að setja efni á sam­fé­lags­miðla.

Ekki hægt að gera öllum til geðs

Ég fæ ein­staka sinnum ein­hver skíta­skila­boð, en maður verður bara að ýta því frá sér og ekki láta það hafa áhrif á sig.“

„Ég hef til dæmis fengið skila­boð um að ég sé of jákvæð, sem segir ekk­ert um mig. Maður getur aldrei gert öllum til geðs og það er best að átta sig sem fyrst á því. Það er skrýtið fyrst að sjá nei­kvæð ummæli um sjálfa sig og hefur auð­vitað áhrif, en svo lærir maður að hrista það af sér. Ég man eftir að hafa séð comment eins og „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema speg­il­inn,“ og að ég væri heimsk og fleira í þeim dúr. Ef við veltum því aðeins fyrir okkur er áhuga­vert að full­orðið fólk sé að láta svona hluti út úr sér um fólk sem það þekkir ekki neitt. Það segir sig sjálft að það segir meira um það heldur en mig. Ég skil eig­in­lega ekki af hverju fólk gerir þetta og hvort það spyrji sig aldrei hvar það er statt í líf­inu. Þetta segir auð­vitað bara allt um þann sem er að skrifa þetta og hvernig við­kom­andi líður. Ef við hugsum það hvernig aug­lýs­ing það er fyrir sjálfan þig að skilja eftir þig svona fót­spor á net­inu er það frekar aug­ljóst. Það nenna fæstir að umgang­ast fólk sem er upp­fullt af nei­kvæðni og bit­ur­leika.“

Rakel vakti fyrst athygli fyrir fram­úr­skar­andi árangur í utan­vega­hlaupum og krefj­andi lang­hlaupum sem henta ekki öllum. Hún segir þó að áherslur sínar hafi breyst með tím­anum; í dag hreyfir hún sig fyrst og fremst fyrir eigin vellíðan, en keppn­is­skapið hefur dvínað.

„Ég var með mikið keppn­is­skap og var að gera góða hluti í hlaup­unum. Ég fór oft í hlaup sem voru yfir 100km og fannst það frá­bært og náði góðum árangri. Ég er ennþá góð í löngu hlaup­unum, en í dag er þetta meira bara ástríða fyrir því að hreyfa mig og vera í nátt­úr­unni heldur en að kepp­ast við ein­hvern tíma. For­send­urnar eru að hafa gaman og njóta. Það er lífs­stíll að hreyfa sig og eitt­hvað sem ég geri eig­in­lega alla daga. Það líður engum verr af því að hreyfa sig og þegar fólk fer að finna jákvæðu áhrifin verður það oft bara sjálf­gefið að stunda reglu­lega hreyf­ingu. Ég er mjög virk og hef alltaf verið og verð hálf­óró­leg ef ég fæ ekki hreyf­ing­una mína. Það þurfa ekki allir að vera að fara í ein­hverja ofur-hreyf­ingu eða ultra­hlaup. Aðal­at­riðið er að koma því inn í lífs­stíl­inn að nota lík­amann og hreyfa sig, hvernig svo sem fólk gerir það. Það breyt­ist svo margt þegar hvatn­ingin fyrir hreyf­ingu er ekki útlitstengd eða drifin áfram af sam­visku­biti, heldur að vilja líða vel. Þá hættir þetta að vera kvöð og verður ein­fald­lega eitt­hvað sem mann langar að gera alla daga.“

Heilluð af Afríku

Rakel er nýlega snúin heim úr ferða­lagi þar sem hún heim­sótti ýmsa staði í Afríku ásamt unnusta sínum, Guðmundi Lúther. Hún segir ferð­ina hafa opnað augu sín á fjöl­breyttan hátt og að Afríka hafi heillað hana algjör­lega.

„Ég er almennt mjög óhrædd í líf­inu og kippi mér ekki upp við margt. Við Gummi eigum það sam­eig­in­legt að elska ferða­lög og fyrir mér snú­ast ferða­lög um að upp­lifa eitt­hvað nýtt og stækka sjón­deild­ar­hring­inn. Að kynn­ast ólíkum menn­ing­ar­heimum, nátt­úru og öllum undr­unum sem eru í boði á þess­ari jörð.  Ég hvet alla til að upp­lifa eitt­hvað svona alla­vega einu sinni á ævinni. Það stækkar sjón­deild­ar­hring­inn svo mikið að fara á staði sem eru svona rosa­lega ólíkir því sem við þekkjum. Það er eig­in­lega mitt hjart­ans mál að hvetja fólk til að taka stökkið og fara út fyrir þæg­ind­ara­mmann. Ekki mikla hlut­ina fyrir ykkur og hræð­ast það að taka af skarið. Lífið verður svo marg­falt fal­legra og skemmti­legra ef maður gerir það. Þess vegna gladdi það mig mikið að fá lík­lega meira en hund­rað skila­boð á hverjum degi á meðan ég var að deila efni úr Afríku-ferð­inni. Mér þykir virki­lega vænt um að geta veitt fólki inn­blástur og von­andi eru ein­hverjir að skipu­leggja ferð til Afríku núna eftir að hafa fylgst með ferð­inni okkar,“ segir Rakel, sem varð algjör­lega heilluð af Afríku, ekki síst fólk­inu og hjart­anu í heims­álf­unni

Stórkostleg upplifun

„Það er erfitt að nefna eitt­hvað eitt sem stendur upp úr. En ég myndi eig­in­lega segja að fólkið sé það sem standi mest upp úr. Þeir sem hafa komið á þessa staði vita hvað ég á við, af því að getur verið erfitt að útskýra það. En það er bara ein­stök upp­lifun að kynn­ast and­anum í fólk­inu, gleð­ina og við­horfið til lífs­ins. Þó að það sé mikil fátækt finnur maður það hratt að gleðin er svo mikil að það yfir­skyggir allt hitt. Fólkið í lönd­unum sem við heim­sóttum er upp til hópa miklu ham­ingju­sam­ara en við á Íslandi og maður hugsar stundum hvar við týndum gleð­inni. Og svo finnur maður svo mikla sam­kennd alls staðar. Fólk sem á ekk­ert en virð­ist til­búið að gefa þér allt. Það breytir manni ein­fald­lega að heim­sækja þessa heims­álfu. Maður upp­lifir ein­hvern vegin að þau skilji hvað sam­fé­lag er og hvað það er mik­il­vægt að halda hóp­inn og vera í sam­veru og sam­starfi. Þó að auð­vitað séu strend­urnar á Zanzibar og menn­ingin í Cape Town í Suður-Afríku eitt­hvað sem er stór­kost­legt að upp­lifa er það samt fólkið sem situr mest eftir. Það er eitt­hvað ein­stakt, stórt hjarta í Afríku sem maður finnur ekki ann­ar­staðar. Ég verð bara klökk af því að tala um þetta,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur