Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Pétur Óskar á hraðri uppleið í leiklistarheiminum

Hefur fundið meira rými til að þró­ast og grípa tæki­færi erlendis

Pétur Óskar á hraðri uppleið í leiklistarheiminum
Pétur Óskar Sig­urðs­son Gerir það gott í Þýska­landi Mynd: Aðsend

Leik­ar­inn Pétur Óskar Sig­urðs­son hefur heldur betur verið að vekja á sér athygli í Þýska­landi en hann fór nýlega með stórt hlut­verk í Das Traumschiff, sem er einn af vin­sæl­ustu sjón­varps­þáttum lands­ins.

Þátt­ur­inn ger­ist á Íslandi þar sem íslensk nátt­úra og þjóð­sögur gegna mik­il­vægu hlut­verki. Pétur leikur Jón, dul­ar­fullan huldu­mann sem leiðir aðal­per­són­una inn í dýpri skiln­ing á sjálfri sér. Þau lað­ast að hvort öðru, sem mótar and­rúms­loft sög­unnar tölu­vert.

Þá lék hann einnig í Tatort fyrir stuttu síðan en sú sería hefur verið í sýn­ingu í rúm 50 ár í Þýska­landi.

Mannlíf ræddi við Pétur um lífið í Þýska­landi, fer­il­inn og fram­tíð­ina.

„Það er í raun ekki mik­ill munur,“ sagði Pétur þegar hann var spurður út í mun­inn á því að vinna á Íslandi og í Þýska­landi. „Ég vinn mest í Þýska­landi og nálgun þeirra á leik­list er svipuð og hjá okkur. Fag­mennskan er mikil og vel er hugað að smá­at­riðum, sem ég kann vel að meta. Settin eru oft stærri og umgjörðin meiri, en kjarn­inn er alltaf sá sami, að ná teng­ingu við mót­leik­ara, vera í núinu og treysta ferl­inu. En það sem er fal­legt við Ísland er líka það sem getur verið krefj­andi. Þetta er lítið og sam­ofið kerfi þar sem tengsl skipta oft miklu máli. Í stærri borgum eins og Berlín hef ég fundið meira rými til að þró­ast og grípa tæki­færi á eigin for­sendum, sem hentar mér vel á þessum tíma­punkti,“ en Pétur er senni­lega þekkt­astur á Íslandi fyrir leik sinn í Ófærð. Einnig hefur hann leikið í þátt­unum Flamingó bar og mynd­unum Grimmd og Andið eðli­lega.

Vill bæta sig með hverju hlutverki

Þrátt fyrir vel­gengni erlendis seg­ist hann ekk­ert endi­lega sækj­ast í hlut­verk í útlöndum.

„Fyrir mér skiptir mestu máli að vera að vinna að ein­hverju sem hefur ein­hvern til­gang og með fólki sem ég tengi við. Und­an­farin ár hafa ein­fald­lega fleiri og stærri tæki­færi komið upp í Þýska­landi. Þegar ég er að íhuga að taka að mér hlut­verk þá er ég með eina reglu fyrir sjálfan mig, sama hvort hlut­verkið sé lítið eða stórt - er ég að fara læra eitt­hvað af þessu og er ég að fara að bæta mig sem leik­ari.“

Pétur hefur þó ekki aðeins leikið í sjón­varps­þáttum og kvik­myndum en hann kom einnig fram í tölvu­leiknum Hell­blade: Senua's Sacrifice, sem gerð­ist á Íslandi og sækir mikið í nor­ræna menn­ingu. Leik­ur­inn var einn sá vin­sæl­asti sem kom út árið 2017 og hlaut mörg virt verð­laun.

„Það var mjög skemmti­leg reynsla. Ég man sér­stak­lega eftir casting-ferl­inu. Ég átti að senda inn prufur þar sem ég lék ýmsar verur, meðal ann­ars tröll. Ég var staddur í Lúx­em­borg á þeim tíma og fór út í skóg að taka upp, öskr­andi línur eins og „The TROLLS are coming“. Það var dálítið sér­stakt að standa einn í skógi og gera þetta, vit­andi að ein­hver gæti verið að hlusta og velta fyrir sér hvað Í ósköp­unum væri eig­in­lega í gangi. Þegar ég labb­aði heim úr skóg­inum hugs­aði ég líka bara, hver ertu eig­in­lega, þetta er bara lífið þitt,“ sagði leik­ar­inn um ferlið í kringum tölvu­leik­inn.

Framtíðin á Íslandi og Þýskalandi

Spurður um fram­tíð­ina seg­ist hann sjá fyrir sér að vera á Íslandi á sumrin og Berlín á vet­urna ásamt „stuttum stoppum á heit­ari stöðum inn á milli“ eins og leik­ar­inn orðar það.

„Mig langar að halda áfram að þró­ast sem leik­ari og vinna í ser­íum og kvik­myndum. Á sama tíma legg ég meiri áherslu á, þessi miss­erin, að vera sáttur við sjálfan mig, óháð verk­efnum. Maður getur auð­veld­lega fest sjálfs­mynd­ina við það að finn­ast maður bara vera eitt­hvað þegar maður er í verk­efni - að vinna. Ég er líka bara flottur þó ég sé á leið út í Nettó og það er ekk­ert að gera hjá mér,“ segir Pétur.

En hvernig fórstu að því að koma þér á fram­færi í Þýsklandi?

„Ég lærði við skóla sem heitir Cours Florent í París þar sem við settum á lagg­irnar þýska leik­list­ar­deild. Í tengslum við það fór ég til Berlínar og sú ferð kveikti áhuga minn á að vinna þar. Ég er einnig fæddur og upp­al­inn í Lúx­em­borg til tíu ára ald­urs og tala því þýsku. Sem barn horfði ég mikið á þýskt sjón­varp með fjöl­skyld­unni, og það er sér­stakt að vera nú sjálfur að vinna í því umhverfi og með þessum leik­urum sem maður horfði á í gamla daga. Ég komst svo í sam­band við umboðs­skrif­stofu í Berlín í gegnum vin­konu úr skól­anum og hef unnið með þeim síðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur