Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Spilling var eins og þjóðaríþrótt“

Orri Björns­son rifjar upp tíma sinn í Búlgaríu og Kenía

„Spilling var eins og þjóðaríþrótt“
Orri Björns­son Orri er ver­ald­ar­vanur maður Mynd: Aðsend

Orri Björns­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Hafn­ar­firði í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum hefur víð­tæka reynslu bæði úr bæj­ar­málum og erlendu atvinnu­lífi. Hann segir í sam­tali við Mannlíf tengsl sín við bæinn sterk og metnað sinn skýran.

„Ég er fæddur árið 1971, og hef búið í Hafn­ar­firði frá því ég var ung­lingur og kláraði stúd­ent frá Flens­borg. Og hef tekið þátt í bæj­ar­málum í Hafn­ar­firði frá 1994 með stuttum hléum, Hugurinn er alla daga bund­inn við að gera Hafn­ar­fjörð stærri betri og vænni, með öllum mögu­legum ráðum. Ég var í sveit á Syðri-Þverá í vestur Húna­vatns­sýslu þar sem ég á marga ætt­ingja og fyrir nokkrum árum keypti ég hluta jarð­ar­innar og er því aftur far­inn að vera mikið á Þverá. Lika konan mín er frá Georgíu og vegna þess erum við oft í því áhuga­verða landi. Ég starf­aði lengi hjá lyfja- og líf­tækni­fyr­ir­tækjum og vegna þess bjó ég í Búlgaríu og síðar í Kenýa. Reynslan af því að búa í löndum sem eru svo ólík Íslandi og norður Evrópu hefur mótað við­horf mín mikið.“

Flutti til Kenía í hruninu

Í miðju hrun­inu árið 2008 flaug Orri til Kenía á vit ævin­týr­anna.

„Árið 2001 réði ég mig til starfa hjá Pharmaco sem hafði þá nýlega keypt stóra lyfja­verk­smiðju af búlgarska rík­inu. Ég flaug út 2. jan­úar árið 2002 og var þar í fjögur lær­dóms­rík ár. Til Kenýa fór ég svo í hrun­inu, flaug út um miðjan októ­ber 2008 og réði mig sem ráð­gjafi hjá fyr­ir­tæki á vegum SÞ sem var að hjálpa þar­lendum fyr­ir­tækjum við að stækka og verða betri þar var ég í önnur tvö ár og sá tími breytti við­horfum mínum til Afríku og þró­un­ar­land­anna gríð­ar­lega mikið.“

Gjörbreytt Búlgaría

Aðspurður um mun­inn á lönd­unum tveimur segir Orri mun­inn vera mjög mik­inn:

„Í stuttu máli má segja að annað til­heyrði þriðja heim­inum og er þar enn. Hitt sem er Búlgaría til­heyrði öðrum heim­inum í kalda stríð­inu, heimi komm­ún­ism­ans. Þegar járn­tjaldið féll breytt­ist lítið í fyrstu, spill­ing grass­er­aði og völdin voru í raun enn í höndum lít­ils hóps eins á tímum kommanna. En engu að síður urðu breyt­ingar á land­inu og þær mestu þegar það varð hluti af Evr­ópu­sam­band­inu, aðlög­unin að því og síðan inn­gangan gjör­breyttu Búlgaríu og spill­ing hefur minnkað og hagur almenn­ings batnað gríð­ar­lega. Ég held enn mjög góðum tengslum við vini mína þar og í hvert skipti sem ég heim­sæki þau sér maður fram­farir og betra líf. Helsta vanda­mál Búlgaríu er gríð­ar­leg fólks­fækkun sem erfitt verður að finna lausn á, en með batn­andi hag má reikna með að ein­hver af þeim hund­ruðum þús­unda Búlgara sem búa erlendis flytji heim og efli landið enn frekar.

Kenýa hefur verið sjálf­stætt land í meira en sex­tíu ár, en spill­ing og inn­byrðis átök milli ætt­flokka, sem eru 42 í land­inu, kemur í veg fyrir að landið blóm­stri. Kenýa er engu að síður eitt af þeim löndum sunnan Sahara sem best gengur. Hag­kerfið er kap­ít­al­ískt og virkar á sinn hátt, þrátt fyrir spill­ingu og sjálftöku vald­hafa á hverjum tíma, fjöl­miðlar eru nokkuð frjálsir og það eru mikil tæki­færi framundan. En ólíkt Búlgaríu má segja að stærsta vanda­mál Kenýa sé fólks­fjölgun, þeim fjölgar um eina milljón á ári og það er land­inu ofviða að mennta allan barna­fjöld­ann.“

„Spillinging er algjörlega út úr öllu korti“

Varstu fyrir menn­ing­ar­sjokki í öðru hvoru land­inu, nú eða báðum?

„Bæði löndin voru gríð­ar­lega áhuga­verð en ég er fljótur að aðlag­ast og varð fljót­lega eins og fiskur í vatni á báðum stöðum. Búlgaría er mikið lík­ari okkur enda hluti af Evrópu, það tók tíma að eign­ast vini en þegar það gerð­ist þá eign­að­ist ég vini fyrir lífs­tíð sem hægt er að treysta fyrir lífi sínu.

Búlgarir eru stoltir af land­inu sínu og menn­ingu líkt og við, og maður á að taka þeim opnum örmum með öllu sem því fylgir. Kenýa var miklu lengra frá okkur og þar var sjokkið meira, mis­skipt­ingin og spill­ingin eru algjör­lega út úr öllu korti. Samhyggð og samúð þeirra ríku gagn­vart þeim fátæku er mjög tak­mörkuð, og þar ofaná bæt­ist við spennan milli ætt­flokka. Í Kenýa var spill­ingin út um allt og í öllu, nán­ast eins og þjóðar­í­þrótt. Lögregla og emb­ætt­is­menn skamm­ast sín ekk­ert fyrir að heimta mútur. Hjá fyr­ir­tæk­inu sem ég var að hjálpa var einn lið­ur­inn í rekstr­ar­á­ætlun ein­fald­lega kall­aður mútur. Og sá bók­halds­lyk­ill var í mjög virkri notkun.“ En auð­vitað er fullt af góðu fólki þar og ég er enn í reglu­legu sam­bandi við suma af gömlu vinnu­fé­lög­unum þar.“

„Við eigum að hætta að gefa geit og hænu eða mat“

Hver er mun­ur­inn á lönd­unum og hvað er hægt að gera til að hjálpa Keníu?

„Helsti mun­ur­inn er sá að Búlgaría er í klárri fram­för og er orðin að venju­legu Evr­ópu­ríki, þó með góðum slatta af Balkanskaga vanda­málum og sér­stöðu. Þeirra vanda­mál er fólks­fækk­unin en ég hef trú á að Búlgarir muni finna lausn á því. Kenía er miklu van­þró­aðra og á langt í land með að kom­ast í fyrsta heim­inn. Eina leiðin til að hjálpa Kenía og Afríku er að eiga við­skipti við þau. Við eigum að hætta að gefa geit og hænu eða mat. Það hefur ekki reynst vel. En með því að eiga í við­skiptum við þessi mörgu og stóru lönd sem gagn­ast báðum. Þannig munu þau þró­ast spill­ing minnka og lífs­kjör batna.“

Mislukkað frí í Mombasa

Orri lærði eftir mis­heppnað helg­ar­frí í Mombasa að í Kenía verði maður að taka öllu með æðru­leysi og hugsa lítið um tím­ann og plön.

„Ég tók ekki mikið frí í Kenýa en eina helg­ina ákváðum við að taka langa helgi í Mombasa sem er næst­stærsta borgin og stendur við Ind­lands­hafið.Við keyptum ferð fram og til baka með næt­ur­lest sem var kynnt sem sú flottasta í austur Afríku. Þessa lest lögðu Bretar með ind­versku vinnu­afli fyrir hund­rað árum. Hún var komin til ára sinna og fór mjög hægt yfir. Miðinn kost­aði ca 30.000 fyrir tvo á fyrsta far­rými. Inni­falið var sér klefi og fullt fæði. Við lögðum af stað seinnipart fimmtu­dags og áttum að koma til Mombasa að morgni föstu­dags. Ferðin gekk að óskum um kvöldið, við vorum kölluð í mat­ar­vagn­inn með gam­al­dags gongi og þjón­ustan var skemmti­leg, fullt af diskum og hnífa­pörum og nán­ast ekk­ert af því sam­stætt. Í birt­ingu þegar ég vakn­aði var lestin á leið í gengum þjóð­garð og stór fíla­hjörð alveg við tein­ana. Þeir færðu sig hægt og lestin fór enn hægar en vana­lega. Það var ótrú­lega gaman að sjá þessi risa­stóru dýr í svo miklu návígi, bara örfá metra frá glugg­anum. En þegar við vorum að nálg­ast Mombasa stopp­aði lestin og engin vissi hvers vegna, svo spurð­ist út að brú framundan hefði skemmst og það yrði smá bið. En eftir ca 4 klst kom í ljós að við­gerðin tæki lengri tíma og þá var okkur far­þeg­unum vísað upp á þjóð­veg­inn til að húkka far, en síð­ustu orð lest­ar­stjór­ans var að vegna þess­ara vand­ræða ættum við að fara á lest­ar­stöð­ina í Mombasa morg­un­inn eftir til að fá end­ur­greitt fyrir ferð­ina. Það gekk furðu vel að fá far, troð­fullur Matatu, sem eru vana­lega Toyota Hiace bílar, stopp­aði og bauð far á nokkrar krónur. Okkur tókst að troð­ast inn í bíl­inn og kom­ast í sæti. Ég fór svo að telja og komst upp í 21, á bíl fyrir 11 manns, svo var kroppað í sköfl­ung­inn á mér og þá kom í ljós að það voru 5 hænur undir sæt­inu. Vegna taf­anna komum við ekki á hót­elið fyrr en um kvöldið og dag­ur­inn alveg tap­aður. En morg­un­inn eftir fór ég á lest­ar­stöð­ina til að fá end­ur­greitt, það tók óra­tíma enda allir far­þeg­arnir mættir til að fá pen­ing­ana sína til baka. Eftir 4 tíma bið kom loks að mér og þá tóku við miklir útreikn­ingar til að sýna hvað ég ætti að fá end­ur­greitt. Þeir voru á þá leið að heildar ferða­lengd lest­ar­innar fram og til baka vorum um 900 km en þar sem að hún stopp­aði 60 km frá Mombasa átti ég rétt á að fá þá kíló­metra end­ur­greidda sem þýddi að ég eyddi öðrum degi af þessu stutta fríi í lest­ar­stúss og hafði 2.000 krónur upp í krafs­inu. Langa helgin í Mombasa varða því að stuttum sunnu­degi á strönd­inni því síðan var lagt af stað til Nairobi kl 17 á sunnu­degi. Lexían er sú að það þarf að taka öllu af æðru­leysi og jafn­að­ar­geði í Kenýa. Ekki hugsa of mikið um tíma eða plön.“

Oft stoppaður af lögreglunni

Að lokum segir Orri frá því að hann hafi oft neyðst til að múta lög­regl­unni í höf­uð­borg Kenía.

„Á tveimur árum í Nairobi var ég margoft stopp­aður af lög­reglu og færður til yfir­heyrslu á lög­reglu­stöð, ef að maður er á ferð­inni eftir myrkur er þetta mjög algengt. Maður hlýðir lög­regl­unni því stað­al­bún­að­ur­inn er kalas­hnikov hríð­skota­byssa hjá nán­ast öllum lög­reglu­mönnum. Í byrjun reifst ég og skamm­að­ist yfir­leitt og veif­aði skír­teini frá SÞ til að reyna að losna en fljót­lega gefst maður upp á því og fer ein­fald­lega að borga fyrir að losna, en auð­vitað við­heldur það spill­ing­unni, það þurfa allir að neita að borga til að brjóta niður þetta ömur­lega kerfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur