Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Heimur

David Walliams sak­aður um að hafa tælt ung­lings­stúlkur

Hvetur Sjálfstæðisflokkinn til að hafna „þvælu“ Jóns Péturs

Dagbjört Hákon­ar­dóttir er ekki sátt við orð Jóns

Dagbjört Hákonardóttir
Dagbjört Hákon­ar­dóttir Er þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Víkingur Óli Magnússon

Sam­fylk­ing­ar­þing­mað­ur­inn Dagbjört Hákon­ar­dóttir gagn­rýnir harð­lega ummæli Jóns Pétusr Zimsen úr Sjálf­stæð­is­flokknum í nýlegum pistli.

Í pistli sinum segir Dagbjört að óvið­un­andi sé að tengja lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni við stöðu kvenna í sam­fé­lag­inu eða halda því fram að aukið rými þeirra í atvinnu- og sam­fé­lags­lífi sé orsök þró­un­ar­innar. Hún bendir á að fjöl­margar rann­sóknir sýni að aðrar skýr­ingar vegi þyngra.

Samkvæmt Dag­björtu sýna grein­ingar alþjóð­legra stofn­ana á borð við OECD og Eurofound að stór hluti ungs fólks eign­ist færri börn en það kýs, einkum vegna fjár­hags­legs óör­yggis og erf­ið­leika á hús­næð­is­mark­aði. Þá vísa nor­rænar rann­sóknir til þess að aukið atvinnu- og tekju­ör­yggi auki líkur á barn­eignum, sér­stak­lega þegar kemur að öðru og þriðja barni.

Dagbjört leggur áherslu á að stöð­ug­leiki í efna­hags­málum og bætt aðgengi að hús­næði séu lyk­il­þættir þegar kemur að ákvörð­unum fólks um fjöl­skyldu­stækkun. Hún gagn­rýnir jafn­framt stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í efna­hags- og hús­næð­is­málum og telur hana hafa aukið á mis­skipt­ingu og þrýst­ing á hús­næð­is­mark­aði.

Í umfjöllun sinni hafnar hún einnig hug­myndum flokks­ins um svo­kall­aðar heim­greiðslur og segir þær geta fest konur í fátækt­ar­gildru. Þess í stað telur hún mik­il­vægt að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla með mark­vissum aðgerðum.

„Það er kom­inn tími til að skrúfa áfastan tappa á þessa umræðu ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill njóta trú­verð­ug­leika sem frjáls­lyndur frels­is­flokkur.

Ég trúi ekki öðru en sjálf­stæð­is­menn hafni þess­ari þvælu, og það almenni­lega. Ég er viss um að það myndi veita þeim lífs­fyll­ingu og til­gang,“ skrifar Dagbjört að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Vinir minnast Marðar Árnasonar með hlýju
Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Heimur

Gam­an­leik­kona upp­lýsti Guardian um ásak­anir á hendur David Walliams

Heimur

Net­anyahu sak­aður um að nota kyn­þátta­hatur sem síð­asta tromp í valda­bar­átt­unn

Pólitík

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Björn Þorláksson segir málflutning fyrrverandi ráðherra geta skaðað bæði Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn.
  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“