Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Bonnie Tyler haldið sofandi eftir bráðaaðgerð

„Við munum senda frá okkur frekari upplýsingar þegar við getum.“

Bonnie Tyler
Bonnie Tyler Fjöl­margir hafa sent söng­kon­unni rám­rödd­uðu bata­kveðjur Mynd: ANDREW MATTHEWS / POOL / AFP

Bonnie Tyler er haldið sofandi af læknum til að aðstoða við bata hennar eftir bráða­aðgerð á þörmum, að sögn talsmanns söng­konunnar.

Greint var frá því að söngkonan, sem er 74 ára og ættuð frá Wales, hefði verið flutt á sjúkrahús nærri heimili sínu í Faro í Portúgal á miðvikudag þar sem hún gekkst undir aðgerðina.

Í yfir­lýsingu á fimmtudags­kvöld sagði talsmaður hennar: „Bonnie er haldið sofandi af læknum sínum til að auðvelda bata­ferlið.“

Hann bætti við: „Við vitum að þið óskið henni alls hins besta og biðjum um næði á þessum erfiða tíma. Við munum senda frá okkur frekari upplýsingar þegar við getum.“

Þúsundir aðdáenda hafa sent henni stuðnings­kveðjur á Facebook, þar á meðal fólk sem hefur sjálft gengist undir svipaðar aðgerðir.

Einnig hafa margir tónlistar­menn sent henni bata­kveðjur. Katrina Leskanich úr hljóm­sveitinni Katrina and the Waves skrifaði: „Kæra Bonnie. Náðu skjótum bata og komdu aftur rokkandi! Við elskum þig.“

Gloria Gaynor skrifaði sömuleiðis: „Óska þér skjóts bata, Bonnie!“

Bonnie Tyler, sem skýrð var Gaynor Hopkins, sló í gegn á alþjóða­vísu með laginu Total Eclipse of the Heart árið 1983. Lagið fór nýlega yfir einn milljarð spilana á Spotify.

Hún hóf feril sinn eftir að hæfileika­veiðarinn Roger Bell uppgötvaði hana á skemmtistað í Swansea og gaf hún út fyrsta lag sitt, Lost in France, árið 1977. Hún á það sameiginleg með Meat Loaf heitnum að hafa átt í áratuga samstarfi við tónskáldið Jim Steinman, sem, eins og hjá Meat, kom að flestum stærstu smellum söng­konunnar. Hér fyrir neðan má sjá eitt þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu