Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Ástu Laufeyju Aðalsteinsdóttur í embætti skólameistara Borgarholtsskóla til fimm ára frá 1. júlí næstkomandi. Tekur hún við starfinu af Ársæli Guðmundssyni.
Ásta Laufey hefur starfað við skólann í yfir 25 ár sem kennari, verkefnastjóri mannauðsmála, aðstoðarskólameistari og sem settur skólameistari.
Ásta Laufey er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun og meistaragráðu í ensku auk kennsluréttinda frá sama skóla. Hún lauk grunnnámi í ensku við Háskóla Íslands.
Alls sóttu tveir um embættið.































Athugasemdir