Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fimm af sjö fundnir á lífi eftir hættulega leit í helli

„Þvílík tilfinning!“

Frá björguninni
Frá björg­un­inni Alþjóð­legt kaf­arateymi fann þorps­bú­ana Mynd: Instagram-skjáskot

Fimm þorpsbúar sem höfðu setið fastir í flóðum inni í helli í Laos í meira en viku fundust á lífi, en tveggja er enn saknað.

Hópurinn fór inn í helli í Xaisomboun-héraði þann 19. maí, í leit að gulli en miklar rigningar ollu skyndi­flóðum sem lokuðu útgöngu­leiðinni og inni­lokuðu sjö manns, samkvæmt upplýsingum frá laóskum og tælenskum björgunar­sveitum sem tóku þátt í aðgerðinni.

Bounkham Luanglath hjá samtökunum Rescue Volunteer for People sagði að fimm hefðu fundist heil á húfi, en leit héldi áfram að tveimur til viðbótar.

„Ég er enn að skjálfa. Okkar teymi tókst þetta,“ sagði hann í hljóð­skilaboðum.

Myndband sem tælensk björgunar­sveit birti virðist sýna augna­blikið þegar kafarar komu upp úr vatninu og fundu þorps­búana.

Á mynd­skeiðinu sjást þeir sitja á kletti umkringdir flóða­vatni, allir með höfuðljós.

Reyndu að finna loftgöt inn í hellinn

Björgunar­sveitir höfðu áður greint frá því að leit dagsins hefði meðal annars falist í því að kanna loftgöt fyrir ofan hellinn í von um að finna mögulegar leiðir að fólkinu.

Björgunar­fólk frá Taíland kom á svæðið um helgina til að aðstoða við aðgerðina.

Meðal þeirra voru kafarar frá nokkrum löndum sem tóku þátt í hinni flóknu björgun árið 2018 þegar tólf skóla­piltar og knattspyrnu­þjálfari þeirra sátu fastir í helli í norður­hluta Taílands í meira en tvær vikur.

Í leitinni höfðu kafarar farið um 100 metra inn í þröngan, vatns­fylltan hellinn og töldu á þeim tíma­punkti að þorps­búarnir væru 30 metrum lengra inni. Unnið var að því að dæla vatni úr hellinum til að auðvelda björgunar­aðgerðirnar.

Erfitt fjalllendi og miklar rigningar

Hellirinn er stað­settur á afskekktu og hrjóstrugu svæði í Longcheng-héraði, um 120 kílómetra norðan við höfuð­borgina Vientiane.

Björgunar­fólk hefur lýst erfiðum aðstæðum á samfélags­miðlum, þar sem bæði fjall­lendi og miklar rigningar hafa torveldað aðgerðir.

Myndbönd frá tælenskum björgunar­sveitum sýna að það tekur um fjögurra kílómetra göngu upp bratta leið að komast að hellis­opinu.

Sjálft opið er þröngt, bratt og grýtt og aðeins nægilega breitt fyrir eina manneskju í einu.

Inni í hellinum hafa björgunar­menn þurft að skríða í gegnum þröng göng, drullu­kennda kafla og vatns­fyllta ganga.

Erfið björgunaraðgerð framundan

Einn kafaranna sem tekur þátt í björguninni er Finninn Mikko Paasi, birti myndskeið sem hægt er að sjá hér fyrir neðan en þar segir hann:

„Þeir sem segja að það sé ekki hægt, ættu ekki að trufla þá sem eru að gera það“

Þvílík tilfinning!!!! ❤️

Eftir viku af erfiðri teymis­vinnu fundum við loksins 5 af þeim 7 námu­mönnum sem saknað var og voru fastir í vatns­flæddri námu í Laos.

Verkefnið hingað til hefur verið allt annað en auðvelt og allir sem að því koma hafa unnið ótrúlegt starf. Takk allir sem tókuð þátt 🙏🙏🙏

Þetta er aðeins skamm­vinnur léttir þar sem þeir 5 sem lifðu af eru enn í innsta hólfinu, allir heilir á húfi og við góða líðan, en björgunin er enn framundan og hún verður ekki auðveld.

Fyrir mig og @benzscout þýðir þetta að við þurfum að kafa beint aftur inn og færa námu­mönnunum meiri vistir svo þeir geti safnað kröftum og búið sig undir leiðina út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár