Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið

„Ég hélt fyrst að þetta væri grín“

Sjúkraflugmaður Schumachers rifjar upp slysið
Michael Schumacher Schumacher hefur ekki sést opin­ber­lega frá því að slysið varð Mynd: YASUYOSHI CHIBA / AFP

Þyrlu­flug­mað­ur­inn sem flutti Michael Schumacher á sjúkra­hús eftir alvar­legt skíða­slys hans árið 2013 hefur í fyrsta sinn sagt frá reynslu sinni af björg­un­ar­að­gerð­inni.

Schumacher, sem er einn sig­ur­sæl­asti öku­maður í sögu Formúlu 1, hlaut alvar­legan heilaskaða þegar hann féll á skíðum í frönsku Ölpunum í des­em­ber 2013.

Yannick Dainese starf­aði þá fyrir björg­un­ar­þyrlu­fyr­ir­tækið SAF Hélicoptères og tók þátt í að flytja Schumacher á sjúkra­hús. Í við­tali við franska íþrótta­blaðið L'Équipe rifjar hann nú upp hvernig hann fékk fyrst frétt­irnar.

„Björg­un­ar­maður stökk út úr þyrl­unni með lækn­inum og sagði við mig: „Við erum að fara til Schumachers!“.“

Dainese seg­ist fyrst hafa haldið að verið væri að gera grín að sér.

„Í fyrstu hélt ég að hann væri að grín­ast. En þegar yfir­mað­ur­inn skip­aði okkur að taka af okkur hljóð­nema og GoPro-mynda­vélar og banna blaða­mönnum að fylgja með, þá átt­aði ég mig á að þetta var satt.“

„Fyrir mér var hann bara alvarlega slasaður maður“

Þótt Dainese seg­ist ekki vera mik­ill aðdá­andi Formúlu 1 vissi hann vel hver Schumacher var.

„Ómeð­vitað var ákveðin pressa til staðar því ég vissi að hann var nán­ast dýrk­aður eins og guð. En fyrir mér var hann bara enn einn mað­ur­inn sem var alvar­lega slas­aður.“

Schumacher var haldið sof­andi í sex mán­uði eftir slysið. Síðan þá hafa mjög fáar upp­lýs­ingar verið birtar um heilsu­far hans og hann hefur ekki sést opin­ber­lega frá slys­inu.

Talið er að hinn sjö­faldi heims­meist­ari búi nú á heim­ili fjöl­skyld­unnar við Gen­far­vatn þar sem hann nýtur stöðugrar umönn­unar sér­hæfðs læknateymis. Aðeins örfáir ein­stak­lingar utan nán­ustu fjöl­skyldu hafa fengið að heim­sækja hann á þeim þrettán árum sem liðin eru frá slys­inu.

Sjúkrahúsið breyttist í Formúlu 1 braut

Dainese segir að hann hafi snúið aftur á sjúkra­húsið nokkrum dögum síðar vegna ann­ars verk­efnis og orðið hissa á umfangi fjöl­miðlaum­fjöll­un­ar­innar.

„Nokkrum dögum eftir slysið fór ég aftur á sjúkra­húsið til að flytja annan slas­aðan ein­stak­ling.“

„Það sem ég sá kom mér í opna skjöldu. Það voru rútur út um allt, rauðir fánar og fólk á hverju strái. Sjúkra­hú­s­lóðin hafði breyst í eins konar Formúlu 1 braut. Það var ótrú­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife