Ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti, í eigu almannatengilsins Andrésar Jónssonar, hefur birt lista yfir 40 efnilega stjórnendur í íslensku viðskiptalífi árið 2026 sem eru 40 ára og yngri.
Þetta er í fimmta sinn sem listinn er gefinn út, en fyrirtækið hefur það að markmiði að birta hann á tveggja ára fresti. Tilgangurinn er að vekja athygli á ungu stjórnendafólki sem hefur skarað fram úr í störfum sínum og gæti átt eftir að gegna lykilhlutverkum í íslensku atvinnulífi á komandi árum.
Í grein sem birt var á miðlinum Medium kemur fram að listinn sé ætlaður til að heiðra einstaklinga sem hafi staðið sig vel í krefjandi stjórnunarhlutverkum og jafnframt gefa vísbendingar um hverjir kunni að verða meðal áhrifamestu stjórnenda landsins í framtíðinni.
Samkvæmt Andrési bárust fjölmargar ábendingar við valið að þessu sinni. Við matið var meðal annars horft til þess hversu langt einstaklingar hafa náð í kröfuhörðu starfsumhverfi og hvort þeir gegni stöðum sem fela í sér mikla ábyrgð innan íslenskra fyrirtækja.
Listinn hefur vakið athygli undanfarin ár og er ætlað að draga fram nýja kynslóð leiðtoga sem markar sífellt sterkari spor í íslensku atvinnulífi.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir