Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Heimur

David Walliams sak­aður um að hafa tælt ung­lings­stúlkur

Tónlistarheimurinn logar í deilum

Óútgefin verk líka í hættu

SZA hvetur listamenn til að vernda sköpunargáfu sína og menningararfleifð gegn ásælni gervigreindarfyrirtækja.
SZA hvetur lista­menn til að vernda sköp­un­ar­gáfu sína og menn­ing­ar­arf­leifð gegn ásælni gervi­greind­ar­fyr­ir­tækja. Mynd: Wikipedia

Tón­list­ar­iðn­að­ur­inn stendur frammi fyrir mestu breyt­ingum í ára­tugi. Nýjar upp­ljóstr­anir sýna að hund­ruð laga með stór­stjörnum á borð við SZA hafa verið notuð án leyfis til að þjálfa gervi­greind­ar­kerfi. Á meðan sum útgáfu­fé­lög reyna að semja, krefj­ast lista­menn harð­ari lög­gjafar og tala um menn­ing­ar­rán.

Deilan náði nýjum hæðum eftir að nýtt grein­ing­ar­tæki afhjúpaði að gervi­greind­ar­fyr­ir­tæki höfðu notað 238 lög eftir banda­rísku tón­list­ar­kon­una SZA til að þjálfa tón­list­ar­líkön sín. Þar á meðal voru mörg óút­gefin lög sem geymd höfðu verið á lok­uðum svæðum.

SZA (borið fram „Sizza“) er lista­manns­nafn Solánu Imani Rowe, sem er ein áhrifa­mesta tón­list­ar­kona og laga­höf­undur sam­tím­ans. Hún er sér­stak­lega þekkt fyrir að end­ur­skil­greina nútíma R&B-tón­list með því að blanda henni saman við indie-rokk, popp og hip-hop.

SZA brást við af mik­illi hörku á sam­fé­lags­miðlum og kall­aði athæfið sið­laust og ófyr­ir­gef­an­legt. Beindi hún spjótum sínum sér­stak­lega að tón­list­ar­mann­inum Diplo vegna tengsla hans við gervi­greind­ar­for­ritið Suno, en hann hafði áður valdið usla með því að segja lista­mönnum að „aðlag­ast eða ger­ast Uber-bíl­stjórar“. SZA vakti jafn­framt athygli á því að brotin bitn­uðu sér­stak­lega illa á svörtum lista­mönnum. Þeir hefðu mótað dæg­ur­menn­ingu á heims­vísu en fengu minnstu laga­legu- og skap­andi vernd.

„Ekki gefa frá ykkur ykkar Vibranium(e. „Do not give away your vibranium“),“ sagði lista­konan. Með þessu vísar hún í þekkta mynd­lík­ingu úr Marvel-ofur­hetju­heim­inum og hvetur lista­menn til að vernda sköp­un­ar­gáfu sína og menn­ing­ar­arf­leifð gegn ásælni gervi­greind­ar­fyr­ir­tækja.

Iðnaðurinn logar í deilum: Listamenn vs. gervigreind

Málið teygir sig langt út fyrir SZA því fjöldi ann­arra þekktra lista­manna hafa fundið verk sín í sama gagna­grunni.

Víðtæk mót­mæli urðu þegar yfir 200 tón­list­ar­menn, þar á meðal Billie Eilish, Nicki Minaj og Katy Perry skrif­uðu undir opið bréf þar sem óleyfi­leg gervi­greind­ar­þjálfun er sögð „árás á mennska sköp­un­ar­gáfu“.

Þótt meiri­hluti for­dæmi tækn­ina, kjósa sumir að nýta hana. Tón­list­ar­konan Grimes hefur boðið öðrum að nota gervi­greind­ar­út­gáfu af rödd sinni gegn helm­ingi streym­is­hagn­aðar, og upp­töku­stjór­inn Timbaland telur gervi­greind­ina opna nýjar dyr í sköpun.

Dómsmál og klofningur meðal útgáfufyrirtækja

Samtök hljóð­rita­iðn­að­ar­ins í Banda­ríkj­unum (RIAA) standa í ströngum mála­ferlum gegn gervi­greind­ar­fyr­ir­tækj­unum Suno og Udio. Útgáfu­fyr­ir­tækin krefj­ast gríð­ar­legra skaða­bóta vegna kerf­is­bund­ins höf­und­ar­rétt­ar­brots, en Udio við­ur­kenndi nýverið að hafa halað niður tón­list af YouTube í stórum stíl til þess að þjálfa kerfi sín.

Hins vegar gætir ákveð­ins klofn­ings í brans­anum:

Risar á borð við Warner Music Group og Uni­ver­sal Music Group hafa gert sam­komu­lag við Suno og Udio. Þeir munu leyfa notkun á tón­list sinni gegn greiðslum og hlutafé í gervi­greind­ar­fyr­ir­tækj­unum. Sony Music neitar að semja og berst áfram fyrir dóm­stólum. Málið veltur nú á því hvernig dóm­stólar skil­greina „sann­gjarna notkun“ (e. fair use) og hvort tækni­fyr­ir­tækjum sé frjálst að surfa inter­netið eftir hug­verkum manna.

Framtíð tón­listar gerð með gervi­greind

Lagaleg staða tón­listar gerð með gervi­greind er enn á gráu svæði. Grund­vall­ar­reglan er sú að tón­list sem er 100% búin til af gervi­greind nýtur engrar höf­und­ar­rétt­ar­verndar, þar sem ein­göngu mennsk sköpun er vernduð sam­kvæmt lögum.

Stærsta laga­lega áskor­unin snýr hins vegar að per­sónu­vernd og svoköll­uðum „deepfake“ lögum, þar sem raddir þekktra lista­manna eru fals­aðar með gervi­greind. Banda­ríkin reyna nú að bregð­ast við þessu með svoköll­uðum NO FAKES lögum, en tón­list­ar­fólk um allan heim kallar eftir hrað­ari við­brögðum stjórn­valda þar sem gervi­greind­ar­tón­list telur nú þegar tæp helm­ing allra dags­legra upp­hleðslna á ákveðnum streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Vinir minnast Marðar Árnasonar með hlýju
Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Heimur

Gam­an­leik­kona upp­lýsti Guardian um ásak­anir á hendur David Walliams

Heimur

Net­anyahu sak­aður um að nota kyn­þátta­hatur sem síð­asta tromp í valda­bar­átt­unn

Heimur

Heimur

Kim Kar­dashian neyð­ist til að end­ur­greiða við­skipta­vinum

Aðdáendur Kim Kardashian æfir eftir að hafa opnað rándýrt aðventudagatal
Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Heimur

Þríhliða við­ræður Rúss­lands, Úkraínu og Banda­ríkj­anna hafnar

Heimur

Ísra­elskur veð­ur­frétta­maður gerði grín að flóð­unum á Gaza

Heimur

Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fang­elsi

Heimur

Þrjár háskóla­stúlkur sak­aðar um kyn­þátta­for­dóma eftir að upp­taka fór á flug á net­inu