Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“

Viktor Orri Val­garðs­son segir and­stæð­inga ESB sætta sig við að Ísland standi í stað.

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“
Ólafur Ragnar Grímsson Ólafur Ragnar er einn af aðal­sprautum Áfram Ísland! Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Viktor Orri Val­garðs­son, stjórn­mála­fræð­ingur og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Pírata, gagn­rýnir and­stæð­inga aðild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið í nýrri Facebook-færslu. Hann segir rangt að ætla að vel­megun Íslands sé til komin vegna þess að landið standi utan ESB og veltir því upp hvort ný hreyf­ing gegn við­ræð­unum sé í raun hreyf­ing sem vilji stöðnun.

Viktor bendir á að Ísland sé vissu­lega eitt rík­asta ríki heims án aðildar að Evr­ópu­sam­band­inu, en telur ástæð­una fremur fel­ast í sér­stöðu lands­ins en því að standa utan sam­bands­ins.

„Það er alveg rétt að Ísland er eitt rík­asta land í heimi án þess að vera í ESB. Eflaust er það stór hluti ástæð­unnar fyrir því að við (og Noregur og Sviss) höfum ekki farið þangað inn enn: hvat­inn er ekki jafn­sterkur og hjá mörgum öðrum ríkjum og ótt­inn við að missa for­rétt­indin sem við fengum við það að fæð­ast á þessu landi er skilj­an­legur,“ skrifar hann.

Hann segir því næst að það sé vill­andi að halda því fram að auð­legð Íslands stafi af því að landið sé ekki í Evr­ópu­sam­band­inu.

„Það þýðir ekki að við séum rík vegna þess að við erum ekki í ESB eða að það myndi breyt­ast við aðild (eins og mér heyr­ist Ólafur Ragnar og fleiri vera að gefa í skyn) – við erum í stuttu máli rík út af fiski í kringum landið, ein­stakri nátt­úru sem laðar að sér ótal ferða­menn, heppni með nágranna og svo aðild okkar að EES,“ segir hann.

Viktor telur að aðild að Evr­ópu­sam­band­inu gæti bætt lífs­kjör enn frekar, meðal ann­ars með stöðugri gjald­miðli, lægri vöxtum og verð­bólgu og auk­inni sam­keppni á mat­vöru­mark­aði. Hann vísar meðal ann­ars til skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands frá 2009 um hugs­an­leg áhrif á mat­væla­verð.

„En það þýðir ekki að við gætum ekki haft það enn betra ef við værum aðilar að ESB og fengjum líka stöðugan gjald­miðil og vænt­an­lega lægri vexti og verð­bólgu með stuðn­ingi Seðla­banka Evrópu, sem og sam­keppni á mat­vöru­mark­aði sem væri lík­leg til að lækka t.d. verð á kjúklingi um ca. 70% og verð á svína­kjöti, mjólk­ur­vörum og eggjum um ca. 35-60% (skv. skýrslu Hag­fræði­stofn­unar HÍ frá 2009).“

Í lok færsl­unnar gagn­rýnir hann nýja hreyf­ingu sem ber nafnið „Áfram Ísland!“ og spyr hvort hún sé í raun and­víg breyt­ingum.

„Af hverju megum við ekki hafa það betra en við gerum í dag, þó svo við höfum það nokkuð gott miðað við aðrar þjóðir? Er „Áfram Ísland!“ hreyf­ingin í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyf­ingin? „Við höfum það nógu gott nú þegar! Við megum ekki við meir...““ skrifar Viktor Orri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum